Fréttir

true

Manni of mikið og byssa í skottinu

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði för ökumanns í Borgarfirði síðastliðinn föstudag. Reyndist hann vera með aukafarþega í skotti bifreiðarinnar sem hann ók. Í skottinu fannst einnig haglabyssa. Lagt var hald á vopnið, sem var ekki í eigu neins í bílnum. Sjö voru teknir fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar undir stýri í vikunni sem leið. Í…Lesa meira

true

Taka upp plötu í Vinaminni

„Það er svolítið lagt upp með að þetta sé eitthvað sem grípur,“ segir Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti og kórstjóri í Akraneskirkju, um lögin sem verða á nýjum diski sem Kór Akraneskirkju ætlar að gefa út fyrir jólin. Kórinn tók upp plötu í síðustu viku. Þrjú kvöld og fleiri klukkutímar fóru í að fínpússa lögin og…Lesa meira

true

Jafnlaunavottun frestað um ár

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra hefur ákveðið að framlengja um 12 mánuði frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Framlengingin tekur til fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra, en þó ekki til opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu…Lesa meira

true

„Það þarf að leggja líf og sál í boltann“

Jón Þór Hauksson tók við þjálfun íslenska landsliðsins í knattspyrnu kvenna seint í síðasta mánuði. Viðræður höfðu þá staðið yfir um í um tvær vikur, þar til tilkynnt var um ráðningu hans og Ians Jeffs aðstoðarþjálfara. Skessuhorn hitti landsliðsþjálfarann að máli á dögunum og ræddi við hann um nýja starfið, fótboltann og fleira. Hann var…Lesa meira

true

Michael Newberry snýr aftur til Ólafsvíkur

Víkingur Ó. hefur samið að nýju við varnarmanninn Michael Newberry. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2019. Michael gekk til liðs við lið Víking Ó. fyrir síðasta keppnistímabil og lék með liðinu við góðan orðstír í sumar. Hann var fastamaður í liði Ólafsvíkinga sem hafnaði í fjórða sæti í 1. deild karla í knattspyrnu og komst í…Lesa meira

true

ÍA semur við tvo unga leikmenn

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert tveggja ára samning við þá Hlyn Sævar Jónsson og Róbert Ísak Erlingsson. Báðir eru þeir uppaldir hjá ÍA og hafa undanfarin ár leikið með yngri flokkum félagsins. Báðir eru þeir fæddir árið 1999 og voru hluti af liði 2. flokks karla sem varð Íslandsmeistari í sumar. Þá hafa þeir báðir leikið…Lesa meira

true

Ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs

Bjarni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Hann hefur starfað síðustu tíu árin sem framkvæmdastjóri félagasamtaka, nú síðast fyrir Siðmennt og áður fyrir garðyrkjubændur. Votlendissjóðurinn hefur það hlutverk að vinna að endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagssamtök og einstaklinga. Fjölmargir sérfræðingar eru í baklandinu og veita sérfræðiráðgjöf. Markmið Votlendissjóðs er að…Lesa meira

true

Málefni Lauga rædd á fjölmennum íbúafundi

Sveitarfélagið Dalabyggð boðaði til íbúafundar í Dalabúð í síðustu viku. Á dagskrá fundarins var eitt mál, Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð. Fundinum stýrði Páll S Brynjarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Fyrirkomulag fundarins var þannig að allir sjö fulltrúar í sveitarstjórn lýstu í upphafi afstöðu sinni til sölu fasteigna á Laugum og skýrðu stöðu…Lesa meira

true

Eyþór Ingi heldur hátíðartónleika á Vesturlandi

Stórsöngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson heldur hátíðartónleika um allt land á aðventunni. Hátíðartónleikaröðin hefst á Húsavík fyrsta sunnudag í aðventu en að þeim loknum leggur hann í ferðalag um Vesturland. Hann syngur í Akraneskirkju miðvikudaginn 5. desember, Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík 6. desember og Borgarneskirkju 7. desember. Auk þess að vera landsþekktur söngvari hefur Eyþór getið…Lesa meira

true

Sauðamessa hefur runnið sitt skeið

Félagarnir Gísli Einarsson og Björn Bjarki Þorsteinsson í Borgarnesi birtu um helgina tímamótayfirlýsingu, þar sem fram kemur að Sauðamessan í Borgarnesi í október hafi jafnframt verið sú síðasta. Hafa þeir ákveðið að leggja hátíðina niður í þeirri mynd sem landmenn þekkja hana, en eru þó hvergi af baki dottnir í hátíðarhöldum. „Eftir stendur sú hefð…Lesa meira