Fréttir

true

Skapandi skrif gott nesti út í lífið

Í byrjun mánaðarins fór rithöfundurinn og teiknarinn Bergrún Íris Sævarsdóttir um grunnskóla á Vesturlandi, annars staðar en á Akranesi, og hélt námskeið í skapandi skrifum. Menntamálastofnun fékk Bergrúnu Írisi til liðs við sig í verkefni sem heitir Skáld í skólum. Námskeiðinu var ætlað að auka áhuga barna á bókalestri, ritun og skapandi skrifum. „Krakkar sem…Lesa meira

true

Endurnýja sýningarbúnaðinn í Bíóhöllinni

Sýningarvélin í Bíóhöllinni á Akranesi bilaði síðastliðið sumar. Því hefur ekki verið boðið upp á bíósýningar á Akranesi frá þeim tíma. Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum 25. október síðastliðinn að veita 8,1 milljón króna til kaupa á nýjum sýningarbúnaði í Bíóhöllina. Bæjarráð vísaði ákvörðuninni til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir í gangi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull fékk á þessu ári úthlutað peningum úr svokallaðri Innviðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem styrkja á uppbygginga á ferðamannastöðum. Pengingar fengust til ýmissa verkefna í Þjóðgarðinum, eins og rakið er hér að neðan. Meðal stærri má nefna uppbyggingu bílastæðis við gestastofu Þjóðgarðsins á Malarrifi, bætt bílastæði við Djúpalón og nýtt salernishús sem verður staðsett við Útnesveg…Lesa meira

true

Frá Félagi kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi

Síðastliðið vor var stofnuð deild innan Félags kvenna í atvinnulífinu á Vesturlandi. Stofn- og kynningarfundur var haldinn í Stykkishólmi í apríl og í maí var haldinn fyrsti félagsfundurinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að spennandi viðburðir eru framundan hjá konum í atvinnulífi á Vesturlandi. „Vetrarstarfið er komið á fullt og…Lesa meira

true

Rauður himinn í dögun

Það var falleg birtan á himni nú í morgun þegar sólin sendi geisla sína og lýsti upp skammdegið. Nú er vetur genginn í garð og gætir þess strax í veðrinu. Snjóföl er víða inn til landsins og jafnvel fjúk og skert færð á fjallavegum, svo sem á Holtavörðuheiði. Hér má sjá bleikrauð ský yfir Esjunni…Lesa meira

true

Tæknin virkjuð við þjálfun hrossa

Með hjálp nútímatækni geta knapar nú lært um frammistöðu sína á reiðvellinum og skipulagt þjálfun í samræmi við hana, en íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Locatify hefur í fyrsta sinn sett upp slíkan staðsetningarbúnað í reiðhöll í Strömsholm í Svíþjóð, í samvinnu við Ridsportens Innovationer. Þetta nýja kerfi sýnir hversu hratt er riðið og hvernig hesturinn hefur farið…Lesa meira

true

Snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði

Veturinn er farinn að minna á sig og gætir þess í færðinni. Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í morgun segir að víða er hálka eða snjóþekja á vegum. Snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði, sbr meðfylgjandi mynd.Lesa meira

true

Ísfiskur byrjar vinnslu að nýju á morgun

Ísfiskur byrjar að nýju bolfisksvinnslu á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 1. nóvember, eftir hlé frá því í lok júlí í sumar. Unnið hefur verið að ýmsum breytingum í húsnæði fyrirtækisins við Bárugötu 8-10 og þá hefur verið skrifað undir sölusamning á húsnæði fyrirtækisins við Hafnarbraut í Kópavogi. Sem kunnugt er keypti Ísfiskur bolfiskvinnsluhús HB Granda…Lesa meira

true

Margt sem mælir með hrossakjötsneyslu

Eva Margrét Jónudóttir er alin upp í Reykholtsdal í Borgarfirði við það frelsi og þau fríðindi sem fylgja því að alast upp í sveit. Foreldrar hennar áttu garðyrkjustöð en líka nokkur hross. Á borðum var oft hrossa- eða folaldakjöt.  „Það var borðað mikið hrossakjöt heima. Það var oft hrossahakk í hamborgunum eða hrossakjöt á grillinu,…Lesa meira

true

Uppsagnir hjá HB Granda

Töluverðar breytingar eru framundan í vinnslu HB Granda á landsvísu. Nú fyrir mánaðamótin var ellefu starfsmönnum, sem unnið hafa við bolfiskvinnslu á Vopnafirði, sagt upp störfum, en til stendur að hætta bolfiskvinnslu þar í núverandi mynd. Austurfrétt greindi frá. Auk þessara uppsagna var fjórum starfsmönnum í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins á Akranesi sagt upp störfum nú fyrir…Lesa meira