
Hálkublettir eru frá Borgarnesi að Heydalsvegamótum, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði á Snæfellsnesi en hálkublettir eru á Bröttubrekku.Lesa meira

Hálkublettir eru frá Borgarnesi að Heydalsvegamótum, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Hálka er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði á Snæfellsnesi en hálkublettir eru á Bröttubrekku.Lesa meira

Vinnuvika á Íslandi er almennt lengri en gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Sem dæmi var vinnuvikan á Íslandi sú næstlengsta í Evrópu á síðasta ári og um fimm tímum lengri en á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í efnahagsyfirliti VR. „Það sem er hins vegar minna fjallað…Lesa meira

Knattspyrnukonan Bergdís Fanney Einarsdóttir hefur gengið í raðir Pepsi deildar liðs Vals frá ÍA. Skrifaði hún undir þriggja ára samning við Val. Bergdís Fanney er aðeins 18 ára gömul og er í hópi efnilegust knattspyrnukvenna landsins. Hún hefur leikið 57 meistaraflokksleiki fyrir ÍA og skorað í þeim 22 mörk. Bergdís skoraði 15 mörk í 18…Lesa meira

Sunnudaginn 4. nóvember næstkomandi verða haldnir tónleikar í Innra-Hólmskirkju. Það eru þær Sigríður Hjördís Indriðadóttir flautuleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari sem flytja dagskrá sem þær kalla Barrokk og brasilískt. Sigríður Hjördís er frá Kjarnasstöðum og mun hún því spila á heimaslóðum, en tónleikarnir eru liður í Vökudögum á Akranesi. Á tónleikunum verða flutt tvö…Lesa meira

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema rétt tæpum tíu milljörðum króna árið 2019. Hlutverk Jöfnunarsjóðs er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemina. Þá greiðir sjóðurinn framlög til samtaka sveitarfélaga, stofnana þeirra og annarra aðila í samræmi við ákvæði…Lesa meira

Fjáröflunarátakið Landsbjargar, Neyðarkall björgunarsveita fer fram dagana 1.- 3. nóvember nk. Neyðarkall þessa árs er tileinkaður 90 ára afmæli félagsins og því klæddur í stíl við það björgunarsveitarfólk sem ruddi brautina.Lesa meira

Samgöngustofa og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóðu að fundi í síðustu viku um hina alvarlegu þróun sem er að verða í akstri undir áhrifum fíkniefna. Þar sátu fulltrúar frá embætti ríkislögreglustjóra, samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu, velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, bráðamóttöku Landspítalans og SÁÁ. Í frétt á vef Samgöngustofu segir að fundurinn sé skref í þá átt að…Lesa meira

Meðfylgjandi mynd var tekin síðdegis í dag um borð í Sverri SH-126 á Breiðafirði, en báturinn er á landleið til Ólafsvíkur. Veiðin er um níu tonn; sjö af þeim þorkur og tvö af ýsu. Aflinn fékkst á landbeitta línu, 36 bala, sem lögð var í Flákanum. Það er Sverrisútgerðin sem gerir bátinn út, en skipstjóri…Lesa meira

Laust fyrir klukkan fimm í gærmorgun barst björgunarsveitinni Ósk í Búðardal beiðni um aðstoð vegna bíla sem sátu fastir á norðanverðri Bröttubrekku. Vonskuveður var á brekkunni um þetta leyti, um 25 m/s og snjókoma. Starf björgunarsveitarmanna gekk þó vel. Greiðlega gekk að losa bílana og koma þeim niður af brekkunni. Menn og tæki voru komnir…Lesa meira

Klifurfélag ÍA stóð fyrir Hrekkjavökuklifurmóti á Smiðjuloftinu síðasta laugardag. Keppt var í fjórum aldursflokkum. Krakkarnir voru hvattir til að mæta í búningum og helst mæta hryllilegir til fara, enda hrekkjavakan tilefni mótsins. Púkar, uppvakningar, draugar, vampýrur og aðrar hryllingsverur klifruðu upp eftir veggjunum hvattir áfram af foreldrum og öðrum ættingjum. Veitt voru verðlaun í tveimur…Lesa meira