Fréttir

true

Snæfellingar töpuðu stórt

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn Hamri, 60-89, í fjórðu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og höfðu öll völd á vellinum í upphafi leiks. Allt virtist ganga upp hjá þeim á meðan heimamenn höfðu engin svör. Hamar komst í 19-0 áður…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður veitir á hverju ári einstaklingum og hópum sem staðið hafa vel að því að fegra bæinn umhverfisviðurkenningar. Voru þær afhentar á Breiðinni síðastliðinn laugardag. Fjölmargar tillögur bárust í ár frá íbúum Akraness til valnefndar sem skipuð var Sindra Birgissyni umhverfisstjóra og Helenu Guttormsdóttur lektor við LbhÍ. Valnefndin skilaði tillögum til skipulags- og umhverfisráð þar…Lesa meira

true

Frábær endurkoma Skallagríms

Skallagrímur sigraði á ÍR, 99-96, í æsispennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var í Borgarnesi. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og leikur þeirra einkenndist af góðri stemningu. Gestirnir voru þó aldrei langt undan og fjórum stigum munaði eftir fyrsta leikhluta, 27-23. Jafnræði var með liðunum í öðrum fjórðungi. ÍR-ingar jöfnuðu metin…Lesa meira

true

Menningarstarf Safnahúss á fullveldis- og menningarári

Borgarbyggð tekur í gegnum starfsemi Safnahúss Borgarfjarðar þátt í tvenns konar menningardagskrá á landsvísu í ár. Annars vegar með tónleikum sem hluta af afmælisdagskrá fullveldisins og hins vegar með sýningu um Hvítárbrúna nú í nóvember, en það verkefni er þáttur í viðburðaskrá Menningararfsárs Evrópu. Það er Minjastofnun sem heldur utan um þá dagskrá hér á…Lesa meira

true

Skýrsla um áhrif veiðigjalda í NV kjördæmi

Fjórðungssamband Vestfirðinga, SSNV og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi réðu í sumar Deliotte til að vinna skýrslu um áhrif veiðigjalda í landshlutanum. Borin eru saman fiskveiðiárin 2016 og 2017. Í skýrslunni, sem nýverið kom út, kemur skýrt fram hversu mikil áhrif veiðigjöld hafa á fyrirtæki í kjördæminu og sennilega eru áhrif þeirra mest á Snæfellsnesi. Greiningin…Lesa meira

true

Anna tekin við af Gylfa og stýrir Speli

Anna Kristjánsdóttir tók á laugardaginn við af Gylfa Þórðarsyni sem framkvæmdastjóri Spalar, félagsins sem átti og rak Hvalfjarðargöngin þar til þau voru afhent ríkinu í lok september. Anna mun gegna starfinu þar til félaginu verður slitið á næsta ári og verður því að líkindum fyrsta og eina konan í framkvæmdastjórastóli fyrirtækisins. Anna er aðalbókari Spalar…Lesa meira

true

Dælan hætt að ganga á Grund

Síðastliðinn föstudag var hætt sölu eldsneytis á Grund í Skorradal. Lýkur um leið samfelldri 67 ára sölu eldsneytis á bænum. Það var Olíufélagið Essó sem setti upp dælu á Grund og hóf sölu 13. september 1951. Fyrsta dælan var handdrifin, en rafmagn kom ekki á bæinn fyrr en 1957 og nokkrum árum síðar rafdrifin dæla.…Lesa meira

true

Verslunin FOK opnuð í Borgarnesi

Síðastliðinn föstudag var verslunin FOK opnuð við Borgarbraut 57 í Borgarnesi í húsi sem í raun er tengibygging milli fjölbýlishússins við Borgarbraut 57 og Hótel-59. Að versluninni standa hjónin María Júlía Jónsdóttir og Jónas Björgvin Ólafsson. FOK er lífsstíls- og gjafavöruverslun þar sem til sölu er fatnaður, skrautmunir, búsáhöld og fleira fyrir heimafólk jafnt sem…Lesa meira

true

Farið fram á að ríkið borgi lagfæringar á Faxabraut

Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa með bréfi til fjárlaganefndar Alþingis, fjármálaráðherra og þingmanna farið fram á að ríkið greiði kostnað við uppbyggingu Faxabrautar á Akranesi, sem er hluti af þjóðvegi í þéttbýli. Nauðsynlegar framkvæmdir við hækkun götunnar og styrkingu sjóvarnargarðs eru taldar kosta rúman hálfan milljarð króna. Faxabraut er þjóðvegur að höfninni og liggur samsíða athafnasvæði…Lesa meira

true

Einn var með fimm rétta

Áskrifandi í Laugardagslottóinu hafði heppnina með sér að þessu sinni í gærkvöldi, en hann var einn með allar tölurnar réttar og hlýtur rúmlega 15,5 milljónir króna í vinning.  Bónusvinningurinn gekk ekki út og verður tvöfaldur í næstu viku. Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir vinning upp á…Lesa meira