
Rafmagn fór af Hellissandi í Snæfellsbæ í gærkvöldi. Eftir bilanaleit og viðgerð starfsmanna Rariki var búið að koma rafmagni á að nýju um klukkan 20.Lesa meira

Rafmagn fór af Hellissandi í Snæfellsbæ í gærkvöldi. Eftir bilanaleit og viðgerð starfsmanna Rariki var búið að koma rafmagni á að nýju um klukkan 20.Lesa meira

Þjóðarátakið Ég á bara eitt líf er komið með nýja og endurbætta vefsíðu, www.egabaraeittlif.is. „Það hefur lítið verið sofið undanfarið til að koma þessu í gagnið,“ segir Bára Tómasdóttir móðir Einars Darra í samtali við Skessuhorn. Síðan gefur gott heildaryfirlit yfir verkefni þjóðarátaksins, sem eru orðin ótalmörg og yfirgripsmikil. Auðveldlega er hægt að styrkja átakið…Lesa meira

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var í dag kjörinn 1. varaforseti ASÍ með um 60% atkvæða. Guðbrandur Einarsson, formaður VS og LÍV, var einnig í framboði. Áður en til kosningar kom hafði Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR dregið framboð sitt til 1. varaforseta til baka. Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands var sjálfkjörinn í embætti…Lesa meira

Ung kona sem býr í sveitinni skammt ofan við Borgarnes varð fyrir því óláni fyrr í vikunni að missa úr vasa sínum 30 þúsund krónur í peningum. Kallaði hún eftir viðbrögðum samfélagsins og höfðaði til heiðarleika fólks og skrifaði um ólán sitt á íbúasíðunni Borgarnes á Facebook. „Núna langar mig að láta reyna á hversu…Lesa meira

Rjómabúið Erpsstaðir hlaut í gær Fjöreggið 2018 fyrir frumkvöðlastarf á sviði matvælaferðamennsku og þróun afurða úr eigin framleiðslu. Viðurkenningin er veitt árlega af Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands, með stuðningi Samtaka iðnaðarins, fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Það var Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, sem afhenti Fjöreggið á Matvæladegi MNÍ sem haldinn var sama…Lesa meira

Alþýðusamband Íslands hefur nú í fyrsta skipti í 102 ára sögu félagsins kosið konu til að gegna forystu, en Drífa Snædal var nú rétt í þessu kjörin forseti ASÍ. Hlaut hún 65,8% atkvæða, en mótframbjóðandi hennar Sverrir Mar Albertsson hlaut 34,2%. Kosning varaforseta stendur nú yfir.Lesa meira

Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Vesturlands frá 22. október sl. þar sem karlmaður með albanskt vegabréf var úrskurðaður í farbann til 19. nóvember nk. Hann er grunaður um nauðgun 22. ágúst í sumar sem átti sér stað á Vesturlandi og sætir rannsókn vegna þess máls. Taldi héraðsdómari yfirgnæfandi lýkur á að maðurinn myndi hverfa…Lesa meira

Menningarhátíðin Vökudagar hófst á Akranesi síðastliðinn miðvikudag og stendur til 4. nóvember. Mjög þétt dagskrá ýmissa menningarviðburða er að finna í dagskrá hátíðarinnar og ástæða til að hvetja íbúa og nágranna að kynna sér hana vel. Dagskrána má m.a. finna í Skessuhorni. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns tók á nýliðnum dögum.…Lesa meira

Byggðarráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum í gær fyrir tillögu Sigurðar Inga Jóhannsson samgönguráðherra að fimmtán ára samgönguáætlun. Byggðarráð bókaði m.a. í umsögn sinni að litlu er áætlað að verja í vegagerð á Vesturlandi á komandi árum. Þá mótmælir byggðarráð harðlega hversu litlum fjármunum er varið í vegabætur innan sveitarfélagsins á næstu fimmtán árum, ekki…Lesa meira

Hrútasýning Búnaðarfélags Hvalfjarðar var haldin föstudaginn 19. október á Eystri-Leirárgörðum. Hún var vel heppnuð, lífleg og spennandi. Veitt voru þrenn verðlaun í þremur flokkum hrúta. Að auki voru veitt ný verðlaun – Heiðarhornið fyrir besta hrút sýningarinnar. Áhorfendur kusu fallegustu gimbrar sýningarinnar. Þrjár gimbrar í efstu sætunum voru síðan boðnar upp og rann afrakstur sölunnar…Lesa meira