Fréttir

true

Ríkið yfirtekur lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna

Fjármálaráðherra og Bændasamtök Íslands hafa undirritað samkomulag þess efnis að frá og með næstu áramótum muni ríkið taka yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna að upphæð 172 milljónir króna á ári. Samkvæmt samningnum mun framlag ríkisins vegna búvörusamninga lækka sem því nemur frá áramótum. Á vef Bændasamtakanna er sagt frá þessu: „Þegar Bændasamtök Íslands voru stofnuð árið 1995…Lesa meira

true

Hvassviðri á morgun, laugardag

Veðurstofan bendir á að hvassviðri gengur yfir landið á morgun. Gul viðvörun er í gildi og appelsínugul fyrir Norðvesturland. Spáin er þannig: „Suðvestan 8-15 m/s og skúrir en léttskýjað norðaustan og austanlands. Heldur hægari um tíma undir kvöld en suðaustan 13-20 í nótt með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands. Snýst í suðvestan 18-28 m/s fyrir…Lesa meira

true

Samið um endurgreiðslu sálfræðiþjónustu

Nýverið skrifuðu Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar, og Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands, undir samkomulag milli MB og sjúkrasjóðs StéttVest um stuðning við nemendur í formi endurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Samningurinn gildir út skólaárið 2019-2020 og er hugsaður sem forvörn gegn brottfalli nemenda úr skóla. Sjóðurinn hefur áður styrkt nemendur MB með þessum hætti, undanfarin…Lesa meira

true

Öld frá því Spænska veikin herjaði á landsmenn

Í dag eru hundrað ár síðan Spænska veikin barst til Íslands. Varð hún mannskæðasti faraldur sem sögur fara af á heimsvísu og þar með talið hér á landi. Geisaði hún í tvö ár og er talið að 50 milljónir manna hafi dáið af völdum hennar. Veikinni er lýst þannið að henni fylgdi jafnan lungnabólga og…Lesa meira

true

Apóteki Vesturlands dæmdar bætur í Hæstarétti

Lyfjum og heilsu gert að greiða sekt fyrir samkeppnisbrot Hæstiréttur kvað í gær upp þann úrskurð að Lyf og heilsu skuli greiða Apóteki Vesturlands 4,5 milljón króna í bætur, auk vaxta, vegna tjóns af völdum samkeppnisbrota fyrrnefnda fyrirtækisins fyrir rúmum áratug síðan. Með dómi Hæstaréttar er snúið við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu og er…Lesa meira

true

Varúðarreglu beitt við úthlutun veiðikvóta úr rjúpnastofninum

Umhverfisstofnun hefur gefið það út að fjöldi veiðidaga á rjúpu verða tólf nú í vetur, líkt og undanfarin ár. Skiptast veiðidagar á fjórar samliggjandi helgar og verður fyrsti veiðidagur föstudagurinn 26. október, sú helgi öll og í kjölfarið þrjár fyrstu helgarnar í nóvember. Þann 12. september síðastliðinn boðaði Náttúrufræðistofnun Íslands til samráðsfundar með Skotvís, þar…Lesa meira

true

Unnið að stækkun gistiheimilisins á Hofgörðum

Á Hofgörðum í Staðarsveit á Snæfellsnesi er rekið gistiheimili þar sem tekur er á móti stórum og smáum hópum í gistingu. Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir við stækkun gistiheimilisins. Undirbúningur að verkinu hófst í janúar 2016 og var byrjað á sökkli nýbyggingarinnar í október fyrir ári. Ekki er komin dagsetning á hvenær framkvæmdum mun ljúka…Lesa meira

true

Mats gefur út bókina Frjáls eins og fuglinn

Myndir og minningar Mats Wibe Lund eru komnar út í bókinni Frjáls eins og fuglinn, sem bókaútgáfan Skrudda gefur út. Í bókinni má finna 164 ljósmyndir og frásagnir af ýmsum uppákomum í starfi og kynnum Mats af fólki hér á landi í yfir 50 ár. Gaman er að geta þess að forsíðu bókarinnar prýðir ljósmynd…Lesa meira

true

Fyrsta bók Lilju Magnúsdóttur komin út

Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur gefið út fyrstu skáldsögu Lilju Magnúsdóttur og nefnist bókin Svikarinn. Lilja er fædd og uppalin á Hraunsnefni í Norðurárdal en hefur um árbil verið kennara og bóndi austur á Kirkjubæjarklaustri. Svikarinn er saga ungrar konu sem missir allt og tekst á við að byggja líf sitt upp að nýju. Lygi…Lesa meira

true

Þorsteinsmót í tvímenningi verður 24. nóvember

Laugardaginn 24. nóvember næstkomandi er fyrirhugað að halda Þorsteinsmót í tvímenningi í bridds. Spilað verður í Logalandi í Reykholtsdal og byrjað á hádegi. Mótið var fyrst haldið fyrir ári síðan og reyndist eitt sterkasta briddsmót sem haldið hefur verið í landshlutanum. Þetta er silfurstigamót og haldið til minningar um Þorstein Pétursson kennara frá Hömrum sem…Lesa meira