Fréttir

true

Leggja þarf áherslu á nýsköpun í landbúnaði

Ráðherra landbúnaðarmála, Kristján Þór Júlíusson, boðaði til morgunfundar með fulltrúum bænda, neytenda og verslunar í síðustu viku. Fundurinn, sem fram fór í Þjóðminjasafni Íslands, bar yfirskriftina „Hvernig aukum við verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði?“ Fundurinn var vel sóttur og umræðurnar voru heilt yfir á mjög jákvæðum nótum. Greint er frá fundinum og umræðum á honum í…Lesa meira

true

Rekstrarafkoma landsbyggðarhótela versnar til muna

Mikil umræða hefur verið um erfitt rekstrarumhverfi fyrirtækja í ferðaþjónustu og því haldið fram að afkoma þeirra hafi versnað á síðustu misserum. Til að kanna hvort þessi staðhæfing ætti við rök að styðjast fól Ferðamálastofa endurskoðunarfyrirtækinu KPMG að gera úttekt á rekstri fyrirtækja í ferðaþjónustu. Niðurstaðan hefur nú verið kynnt í viðamikilli skýrslu og á…Lesa meira

true

ÖBÍ andsnúið “tilraunakenndu starfsgetumati”

Stjórn Öryrkjabandalags Íslands skorar á stjórnvöld að efla núverandi kerfi örorkumats í stað tilraunakennds starfsgetumats, eins og það er orðað í tilkynningu frá stjórn ÖBÍ. Þar segir að núverandi kerfi örorkumats sé í grundvallaratriðum vel uppbyggt, sveigjanlegt og traust. Bandalagið vill efla það og draga úr tekjutengingum í stað þess að leggja út í þá…Lesa meira

true

Skerpt á reglum um heimagistingu í nýju frumvarpi

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ferðamálaráðherra hefur birt á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga sem breytir ákvæðum varðandi heimagistingu í landinu. Breytingarnar sem lagðar eru til varða allar starfssvið Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur umsjón með skráningu og eftirliti á heimagistingu í landinu. Frumvarpið verður í opnu samráði til 24. október nk. Í fyrsta lagi er…Lesa meira

true

Ísland er friðsælasta ríki heims

Ísland er friðsælasta ríki heims samkvæmt úttekt sem Global Peace Index hefur gert fyrir árið 2018. Ísland hefur setið í efsta sæti 163 landa allt frá árinu 2008. Í næstu sætum á eftir koma Nýja-Sjáland, Austurríki, Portúgal og Danmörk. Sýrland er það land þar sem mestur ófriður ríkir og er það fimmta árið í röð…Lesa meira

true

Gonzalo Zamorano semur við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert tveggja ára samning við spænska sóknarmanninn Gonzalo Zamorano. Mun hann því leika með liðinu í Pepsi deild karla næsta sumar. Gonzalo lék stórt hlutverk í liði Víkings Ó. í 1. deildinni á liðnu sumri og skoraði tíu mörk fyrir Ólafsvíkurliðið sem hafnaði í fjórða sæti deildarinnar. Áður hafði hann raðað inn…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu suður með sjó

Skallagrímskonur máttu sætta sig við tap gegn Keflvíkingum í þriðju umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var suður með sjó í gærkvöldi. Heimaliðið hafði undirtökin meira og minna allan leikinn og vann að lokum tíu stiga sigur, 75-65. Keflavík byrjaði mun betur og komst í 15-4 eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Skallagrímskonur komust smám…Lesa meira

true

Snæfell sigraði stórleik umferðarinnar

Snæfell og Stjarnan mættust í stórleik þriðju umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á heimavelli Stjörnunnar, Mathús Garðabæjar höllinni. Bæði lið voru taplaus fyrir leik gærkvöldsins og því jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Búist var við hörkuleik og sú varð einmitt raunin, en að lokum náðu Snæfellskonur að knýja fram…Lesa meira

true

Vodafone í viðræðum um fjarskiptasamband í Hítardal

Sýn hf, móðurfélag Vodafone á Íslandi, vill fá að koma á framfæri upplýsingum í framhaldi af birtingu fréttar á vef Skessuhorns 11. október síðastliðinn undir fyrirsögninni „Vodafone vill leggja af fjarskiptasamband í Hítardal.“ Í tilkynningu frá Vodafone kemur fram að fyrirtækið er í samskiptum við sveitarstjórn Borgarbyggðar um stöðuna í Hítardal. „Við vonumst eftir ásættanlegri…Lesa meira

true

Haustfagnaður FSD á næsta leiti

Haustfagnaður Félags Sauðfjárbænda í Dalasýslu ferður haldinn dagana 26. og 27. október næstkomandi. Fagnaðurinn er fyrir löngu orðinn árviss viðburður, nokkurs konar uppskeruhátíð sauðfjárbænda í Dölum og nágrenni. Það er stjórn FSD sem skipuleggur gleðina í sameiningu, með góðri aðstoð íbúa í Dölum. „Það er nóg að gera hjá stjórninni þessa dagana við undirbúning haustfagnaðar…Lesa meira