Fréttir

true

Kynningarfundur á morgun um næsta Startup Tourism

Startup Tourism er viðskiptahraðall sem sérsniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að veita viðskiptahugmyndum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn til 3. desember næstkomandi.  Næsti Startup Tourism áfangi hefst 14. janúar 2019 og…Lesa meira

true

Brynhildur náði lágmarki á NM í sundi

Brynhildur Traustadóttir sundkona úr ÍA náði um helgina lágmarki á Norðurlandameisraramót sem fram fer í Finnlandi í desember. Þessum árangri náði hún á Extra-móti SH sem haldið var í Ásvallalaug. Sundfélag Akraness átti níu sundmenn á mótinu. Árangur Skagakrakkanna var góður og náðu þau öll að bæta fyrri árangur. Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir synti sig meðal…Lesa meira

true

Fyrsta tilfelli kúariðu í Skotlandi í áratug

Kúariða hefur greinst á nautgripabúi í Skotlandi. Þetta er fyrsta tilfelli hefðbundinnar kúariðu í landinu í tíu ár. Fáein tilfelli hafa komið upp í Evrópu á undanförnum árum en lítil hætta er á að sjúkdómurinn komi upp á Íslandi, samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun. Dreifingarbann hefur verið sett á nautgripi frá búi í Aberdeenshire í Skotlandi…Lesa meira

true

Vetrarstarf Briddsfélags Akraness hafið

Briddsfélag Akraness hóf vetrarstarf sitt síðastliðið fimmtudagskvöld. Fámennt var en góðmennt, eins og oft er á fyrsta kvöldinu þegar starfið er að hefjast. Slegið var upp í léttan tvímenning og spilað á þremur borðum. Frændurnir Alfreð Þór Alfreðsson og Viktor Björnsson enduðu efstir með 69 stig eða 57,5% skor. Næstir voru Tryggvi Bjarnason og Þorgeir…Lesa meira

true

Hálka eða snjóþekja upp til landsins og á fjallvegum

Hálkublettir eru nú á Vatnaleið á Snæfellsnesi og í Norðurárdal í Borgarfirði. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði, éljagangur og snjóþekja á Bröttubrekku og Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er snjóþekja eða nokkur hálka á flestum fjallvegum ásamt snjókomu eða éljagangi, þæfingur er á Hrafnseyrarheiði. Hálkublettir eru á Strandavegi vegur 643 og Innstrandavegi 68 frá Þambárvöllum í Broddanes.Lesa meira

true

Uppselt á hjónanámskeið þessa árs

Uppselt er á öll hjónanámskeið ársins hjá séra Þórhalli Heimissyni, en hann hefur staðið fyrir slíkum námskeiðum í 23 ár. Hann hefur nú opnað fyrir skráningu á fyrsta hjónanámskeið ársins 2019 sem haldið verður í Reykjavík 14. janúar næstkomandi. Námskeiðið verður með hefbundnum hætti, stuttir fyrirlestrar, verkefni, æfingar og samtal. Eftir námskeiðið fá pörin með…Lesa meira

true

Fosshótel Stykkishólmi verður stækkað í vetur

Áform eru uppi um stækkun Fosshótels Stykkishólmi í vetur. Ætlunin er að byggja ofan á miðbyggingu hússins, þar sem inngangur og mótttaka hótelsins er. Stækkunin nemur tólf herbergjum, þar af einni svítu. Breytingar á annarri hæð hússins vegna stækkunarinnar gera það hins vegar af verkum að tvö herbergi sem þar eru fyrir þurfa að víkja,…Lesa meira

true

Sýningu Ísaks Marvins lýkur í dag

Grundfirðingurinn Ísak Marvins opnaði myndlistasýningu sína, Innsýn, í Samkomuhúsi Grundarfjarðar fimmtudaginn 18. október síðastliðinn. Sýningin er liður í dagskrá Rökkurdaga. Fjölskylda Ísaks er frá Grundarfirði og hefur hann miklar tengingar þangað en hann er tengdur ættunum frá Bár og Hellnafelli. Á sýningunni eru átta verk til sýnis en þrjú af þeim eru þegar seld. Meðal…Lesa meira

true

Kattafló á innfluttum hundi í einangrunarstöð

Kattafló fannst á innfluttum hundi í einangrunarstöð fyrir gæludýr í liðinni viku og var greiningin staðfest af sníkjudýrafræðingum á Tilraunastöð HÍ í meinafræði á Keldum. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun verður gripið til nauðsynlegra ráðstafana til að hefta útbreiðslu smitsins, m.a. hafa þau dýr sem hugsanlega hafa komist í snertingu við smitið, ýmist beint eða óbeint,…Lesa meira