Fréttir

true

Héraðið varð sambandslaust um tíma

Síðdegis á föstudaginn varð það óhapp að ljósleiðari var grafinn í sundur þegar unnið var við vegagerð við Götuás, neðsta hluta Uxahryggjarvegar, þar sem beygt er af Borgarfjarðarbraut inn á Uxahryggjaveg. Um leið rofnaði allt net,- síma- og sjónvarpssamband í sveitunum ofan við og gætti áhrifa þessa allt upp í Húsafell. Starfsmenn Telnet voru snöggir…Lesa meira

true

Orka náttúrunnar uppfærir hlöðu sína á Akranesi

Orka náttúrunnar hefur uppfært hlöðu fyrirtækisins á Akranesi þar sem rafbílaeigendur geta fengið straum á bíla sína. Nú er komin þar upp ný hraðhleðsla, sem auk CCS og CHAdeMO hraðhleðslutengja, er með Type 2 tengi, sem nota má um leið og hraðhleðsluna. Nýi búnaðurinn er af gerðinni ABB sem reynst hefur stöðugri og traustari í…Lesa meira

true

Síðsumargleði Borgfirðings fór fram á Stóra Kroppi

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt síðsumargleði á Stóra-Kroppi í Reykholtsdal síðastliðinn laugardag í blíðskaparveðri. Góð þátttaka var á mótinu og gekk framkvæmd þess vel fyrir sig, að sögn Borgfirðingsfélaga. Keppt var í góðhestakeppni með firmakeppnissniði auk kappreiða en að móti loknu sáu Kræsingar um grill. Úrslit urðu þessi:   Pollar (teymt undir): Laufey Erna Oddsdóttir og Skrámur…Lesa meira

true

Kynntu fyrir heilbrigðisráðherra forvarnarverkefnið #égábaraeittlíf

Fjölskylda Einars Darra Óskarssonar afhenti fyrir helgina Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra armbönd, eða kærleiksgjöf, frá minningarsjóði Einars Darra, sem lést aðeins 18 ára gamall í maí síðastliðnum eftir neyslu róandi lyfja. Í kjölfar andláts Einars Darra stofnuðu ættingjar hans minningarsjóð sem hefur það markmið að styðja við ungmenni í fíknivanda og sinna forvarnarfræðslu um skaðsemina sem…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast á Esjumelum

Í dag klukkan 6 árdegis hefst vinna við byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum í Mosfellssveit og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar í frábæru veðri

Dagskrá héraðshátíðarinnar Hvalfjarðardaga hefur staðið yfir frá því á föstudaginn. Óhætt er að segja að fólkið í sveitinni og gestir hafi notið dagskrárinnar í einmuna veðurblíðu. Dagskrárliðir hafa verið vel sóttir og fólk verið í hátíðarskapi. Nánar verður fjallað um hátíðina í næsta Skessuhorni. Meðfylgjandi mynd var tekin á túninu á Þórisstöðum í gær. Í…Lesa meira

true

Spennan eykst á toppi 1. deildar karla

ÍA og HK gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í toppslag 1. deildar karla í knattspyrnu á Akranesvelli nú í kvöld. Leikurinn var heilt yfir hálf bragðdaufur en Skagamenn hefðu hæglega getað sótt sigur því þeir misnotuðu tvær vítaspyrnur í leiknum. Fyrst var það Jeppe Hansen sem fór á vítapunktinn á lokamínútu fyrri hálfleiks. Hann…Lesa meira

true

Sívöktun fiskiskipa gæti orðið hvalreki fyrir embættisiðnaðinn

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa lýst einarðri andstöðu sinni við fyrirætlun stjórnvalda að setja upp myndavélavöktun um borði í íslenskum fiskiskipum, sem og við löndun sjávarafla. Sjávarútvegsráðherra hefur eins og kunnugt er lagt fram frumvarp þar að lútandi. Frumvarpið hefur að undanförnu verið í umsagnarferli en í kynningu um það segir: „Meginmarkmið meðfylgjandi frumvarps er…Lesa meira

true

Brotist inn í Hólabúð á Reykhólum

Aðfararnótt fimmtudagsins var brotist inn í Hólabúð á Reykhólum. Peningar og tóbak var tekið ófrjálsri hendi, ásamt því að sjóðsvélinni sjálfri var stolið. Þetta kemur fram á Reykhólavefnum. Á vefnum eru þeir sem geta veitt einhverjar upplýsingar um málið vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Reyni Þór Róbertsson og Ásu Fossdal í Hólabúðinni eða…Lesa meira

true

Góð vörn skóp sigur ÍA stúlkna

Skagastelpur náðu sér í dýrmæt þrjú stig þegar þær unnu Fylki í 15. umferð Inkassodeildar í Akraneshöllinni í gær. Með sigrinum bætir ÍA stöðu sína í efri hluta deildarinnar og á enn möguleika á að komast upp um deild nú þegar þrír leikir eru eftir af tímabilinu. Heimastúlkur komu ákveðnar til leiks og settu tóninn…Lesa meira