Fréttir

true

Faxaflóasund strax og aðstæður leyfa

Hið árlega Faxaflóasund Sundfélags Akraness er framundan. Undanfarið hafa iðkendur safnað áheitum í aðdraganda sundsins, en ágóðinn er nýttur til að standa straum af kostnaði við æfingaferðir sundfélaga. Það eru iðkendur 14 ára og eldri sem taka þátt í Faxaflóasundinu. Synt er frá Reykjavík til Akraness og komið í land á Langasandi, samtals um 21…Lesa meira

true

Sóttu ameríska rannsóknabauju

Átta félagar í björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ fóru í þjónustuverkefni síðastliðinn laugardag fyrir ameríska fyrirtækið Xeotech. Farið var á Ford bifreið sveitarinnar, sexhjóli, zodiak báti og björgunarbátnum Björgu. Tilgangur ferðarinnar var að sækja það sem eftir var af bauju sem Xeotech framleiðir sem tapast hafði, en hún var staðsett á milli Íslands og Grænlands áður…Lesa meira

true

Víðtæk leit vegna neyðarsendis

Björgunarsveitir allt frá Suðurlandi og vestur um á Akranes voru í gærkvöldi kallaðar út vegna boða sem bárust frá neyðarsendi norðan Torfajökuls. Á sama tíma var í gildi gul viðvörun frá Veðurstofunni fyrir miðhálendið; slagveðursrigning og miklir vatnavextir. Fyrir innan Landmannalaugar voru þannig í gær 15-20 metrar á sekúndu, slydda og hvítt til fjall. Um…Lesa meira

true

Sparkvöllur á mettíma í Húsafelli

Ferðaþjónustan í Húsafelli hefur nú látið útbúa sparkvöll neðan við sundlaugina á staðnum þar sem fyrir er m.a. ærslabelgur og enn neðan golfvöllur staðarins. Það var Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA í knattspyrnu og sumarbústaðareigandi í Húsafelli sem fyrstur vakti máls á hversu skemmtilegt væri að hafa sparkvöll á þessum stað. Strax var tekið vel…Lesa meira

true

Brotist inn á veitingastað í Borgarnesi

Brotist var inn á veitingastaðinn La Colina í Borgarnesi aðfararnótt laugardags. Tilkynnt var um innbrotið strax morguninn eftir, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi. Að sögn lögreglu var farið inn um opnanlegt fag á húsinu og áfengi tekið ófrjálsri hendi. Engum peningum var stolið í innbrotinu, svo vitað sé. Fleira liggur ekki fyrir um innbrotið…Lesa meira

true

GB fékk mjög jákvæða umsögn

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í síðustu viku var til kynningar bréf Erindis – samtaka um samskipti og skólamál, í tilefni aðkomu að starfi Grunnskólans í Borgarnesi síðastliðinn vetur. Í bréfinu kemur fram mikil ánægja með kynni samtakanna af hinu faglega starfi sem unnið er í Grunnskólanum í Borgarnesi. „Viðmót kennara gagnvart nemendum og áhugi skólastjórnenda…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að fimleikahúsi á Akranesi

Fjölmenni var saman komið við íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi núna klukkan 16:00. Þá tóku Guðmundur Claxton, formaður Fimleikafélags Akraness, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Marella Steinsdóttir, formaður Íþróttabandalags Akraness, fyrstu skóflustunguna að nýju fimleikahúsi á Akranesi. Þar með teljast framkvæmdir við bygginguna formlega hafnar. Fimleikahús á Akranesi verður sambyggt íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar verður…Lesa meira

true

Afkomubati hjá Orkuveitu Reykjavíkur

„Aukin umsvif í samfélaginu, fjöldi nýbygginga og kalt tíðarfar valda því að fyrstu sex mánuði ársins jukust tekjur Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga um 1.550 milljónir króna miðað við sama tímabil 2017. Þetta gerðist þrátt fyrir lækkun á gjaldskrám Veitna fyrir kalt vatn og rafmagnsdreifingu í upphafi árs,“ segir í tilkynningu frá OR. Rekstrargjöld jukust á…Lesa meira

true

320 kílómetrar af malarvegum

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í liðinni viku var lagt fram yfirlit yfir malarvegi í sveitarfélaginu. Fram kom að alls eru 32 númeraðir malarvegir skráðir í Borgarbyggð sem eru um 320 kílómetrar að lengd. Þrátt fyrir að litlar nýframkvæmdir hafi verið til að leggja vegi bundnu slitlaði hafa framlög til styrkvega í dreifbýli engu að síður…Lesa meira

true

Verkefni um þróun byggða, samfélagsþátttöku og frumkvöðlastarf

Samkvæmt lögum skal Byggðastofnun hafa það hlutverk að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Sem hluta af Byggðaáætlun 2014-2017 hefur stofnunin stýrt verkefninu Brothættar byggðir sem miðar að því að aðstoða byggðalög sem eiga undir högg að sækja. „Vel þekkt er að með fólksfækkun brestur grundvöllur fyrir rekstri þjónustu við íbúa og gjarnan…Lesa meira