Fréttir

true

Starfsemin samrýmist ekki nýju deiliskipulagi

Með bréfi sem lögmaður Borgarbyggðar hefur ritað forsvarsmönnum Líflands annars vegar og Bifreiðaþjónustu Harðar hins vegar er þess krafist að starfsemi fyrirtækjanna verði hætt á Borgarbraut 55 í Borgarnesi þegar lóðarsamningur rennur út. Húsið skulu fyrirtækin láta rífa á sinn kostnað og skila lóðinni til sveitarfélagsins eigi síðar en 25. apríl 2019. Á lóðinni Borgarbraut…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að brúargerð yfir Norðlingafljót

Nú er hafin vegagerð að væntanlegu brúarstæði yfir Norðlingafljót á Arnarvatnsheiði. Samið hefur verið við Vestfirska verktaka ehf. um að byggja brúna og stendur til að því verki verði lokið fyrir 1. október næstkomandi. Reist verður stálgrindarbrú með timburgólfi milli tveggja hraunklappa við ána, skammt ofan við Helluvað. Verktakar úr Borgarfirði sjá um vegagerðina sem…Lesa meira

true

Slitlagsframkvæmdir í Borgarfirði í dag

Vegavinna er í dag í gangi á kaflanum frá Borgarnesi að Baulusjoppunni í Stafholtstungum. Umferðarstýring verður á svæðinu og reikna má með töfum í fimm mínútur í senn, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Áætlað er vinnan standi til klukkan 19 í kvöld.Lesa meira

true

Skagamenn halda toppsætinu

Skagamenn halda fast í toppsæti 1. deildar karla í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Fram á Akranesvelli í gær. Stefán Teitur Þórðarson skoraði bæði mörk ÍA á fjögurra mínútna kafla í síðari hálfleik, en Skagamenn höfðu verið sterkara lið vallarins frá fyrstu mínútu leiksins. En þrátt fyrir að Skagamenn væru sterkari og sýndu á köflum…Lesa meira

true

Andlát – Guðný Baldvinsdóttir frá Grenjum

Guðný Baldvinsdóttir frá Grenjum á Mýrum lést laugardaginn 11. ágúst síðastliðinn, 104 ára að aldri. Guðný var fædd 18. apríl 1914. Náði hún hærri aldri en nokkur annar íbúi Borgarness, en næsthæstum aldri náði Herdís Einarsdóttir, sem dó árið 1965, þá 103 ára og 152 daga. Aðeins einn Borgfirðingur hefur orðið eldri en Guðný frá…Lesa meira

true

Menntastoðir eru kjörið tækifæri til að hefja nám að nýju

Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi er nú að fara af stað með nám í Menntastoðum, sem verður alfarið kennt í fjarnámi. Hingað til hafa Menntastoðir verið kenndar með dreifnámssniði, en nemendur hafa þá þurft að mæta einu sinni í mánuði í staðlotu. Með því að bjóða upp á námið eingöngu í fjarnámi er verið að koma enn…Lesa meira

true

Eitthvað fyrir alla á Dönskum dögum

Bæjarhátíðin Danskir dagar nær hámarki í Stykkishólmi um næstu helgi, en hátíðin stendur yfir dagana 14.-19. ágúst. Hólmarar tóku forskot á sæluna og byrjuðu hátíðahöld í gær, þriðjudaginn 14. ágúst, með skapandi smiðju fyrir börnin á bókasafninu. Á morgun fimmtudag verður grillað Snobrød í Nýrækt, tónleikar í Vatnasafni ásamt því að bæjarbúar leggja lokahönd á…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá á Ólafsdalshátíð

Veðrið lék við Dalamenn og aðra gesti í Ólafsdal síðastliðinn laugardag þegar hin árlega Ólafsdalshátíð var haldin. Flestir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi á dagskránni en hún hófst með gönguferð með leiðsögn um dalinn. Þá héldu Eyjólfur Ingvi Bjarnason, oddviti Dalabyggðar, og Auður Axelsdóttir, forstöðukona Hugarafls og afkomandi Torfa skólastjóra og Guðlaugar í Ólafsdal,…Lesa meira

true

Skógræktin hreiðrar um sig á Múlastöðum í Flókadal

„Þetta er eitt skemmtilegasta verkefnið sem við hjá skógræktarfélaginu höfum tekið okkur fyrir hendur og allir, sem að vinnunni koma, hafa haft mikla ánægju af. Það er aldrei vandamál að fá menn til að fara í Múlastaði að vinna,“ segir Helgi Gíslason framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur um verkefni félagsins á jörðinni Múlastöðum í Flókadal í Borgarfirði.…Lesa meira

true

Ásbyrgi fær nýtt húsnæði – samið við Skipavík

Síðastliðinn mánudagsmorgun undirrituðu Sveinn Þór Elinbergsson, forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, og Sævar Harðarson forstjóri Skipavíkur, samning um byggingu og langtímaleigu Ásbyrgis, dagþjónustu- og hæfingarstöðvar sem reist verður við Aðalgötu 22 í Stykkishólmi. Um er að ræða 240 fermetra byggingu sem hönnuð er út frá starfseminni sem fram fer í Ásbyrgi. „Þetta mun hafa gífurlega…Lesa meira