Fréttir

true

Malbikun á Kjalarnesi í kvöld

Í kvöld er stefnt á að malbika eina akrein til norðurs á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi, á um 3,5 km kafla á milli Leiðhamra og Sjávarhóla. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá klukkan 18:00 til 04:00 í nótt. Í gærkvöldi var einnig verið að malbika á svæðinu og mynduðust þá talsverðar bílaraðir. „Vegfarendur eru beðnir…Lesa meira

true

Vestlenskir sauðfjárbændur boðaðir til fundar á morgun

Kristján Þór Júlíusson ráðherra landbúnaðarmála hefur boðað fund í Dalabúð Búðardal á morgun, 15. ágúst kl 14:00. Ráðherra vill fá sem flesta sauðfjárbændur til fundar. „Það er landbúnaðarráðherra sem boðar til fundarins ásamt Unni Brá Konráðsdóttur, formanni samninganefndar ríkisins, og Haraldi Benediktssyni, formanni Samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga,“ segir í fundarboði. Fundurinn í Búðardal er ætlaður…Lesa meira

true

Vegfarandi taldi kviknað í

Allur tiltækur mannskapur Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallaður út á áttunda tímanum í morgun að fjölbýlishúsinu við Þjóðbraut 1 á Akranesi. Vegfarandi taldi sig hafa séð eld í íbúð á 2. hæð hússins. Í ljós kom að kveikt var á rafdrifnum arni í íbúð og leit það út frá götunni eins og eldur væri…Lesa meira

true

Jafnt á Ólafsvíkurvelli

Víkingur Ó. mátti sætta sig við jafntefli við Selfoss, 1-1, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikmenn Víkings voru heldur sprækari framan af leik án þess þó að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Það var því verðskuldað frekar en hitt þegar Nacho Heras kom Ólafsvíkingum yfir á 32. mínútu með…Lesa meira

true

Álíka mikil umferð

Umferðin í gegnum Hvalfjarðargöngin var álíka mikil í júlí og í sama mánuði árið 2017. Í júnímánuði var samdráttur í umferð frá síðasta ári um 0,65%. Umferðin á hringveginum jókst hins vegar um 2,6% í júlí, sem er engu að síður minnsta aukning í þessum mánuði frá því sumarið 2012.Lesa meira

true

Sautján sóttu um stöðu sveitarstjóra

Sautján sækjast eftir því að gegna stöðu sveitarstjóra Reykhólahrepps, fimm konur og tólf karlar. Ráðgjafafyrirtækið Capacent vinnur núna mat á umsækjendum og mun kalla þá í viðtöl í vikunni, að því er fram kemur á Reykhólavefnum. Stefnt er að því að ráða sveitarstjóra eins fljótt og auðið er. Nýr sveitarstjóri mun taka við starfinu af…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 14. ágúst frá kl. 10:00 – 17:00. Íbúar á Akranesi og í nágrannabyggðum eru hvattir til að gefa blóð.Lesa meira

true

Veruleg hætta á auknum skriðuföllum í Hítardal

Stór sprunga hefur myndast innan við skriðusárið í Fagraskógarfjalli í Hítardal. Frá þessu greindu vísindamenn á Veðurstofu Íslands síðdegis í dag. Það berghlaup mun að líkindum falla ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist 7. júlí. Það var um helgina sem starfsmenn Landhelgisgæslunnar voru með æfingar í grennd við framhlaupið í Hítardal. Komu þeir þá auga á…Lesa meira

true

Breyttar forsendur fyrir útflutningi á heyi til Noregs

„Eftir nánari athugun hafa lögfræðingar Mattilsynet í Noregi nú komist að þeirri niðurstöðu að útflutningur á heyi frá Íslandi falli undir ákvæði um frjálst flæði vöru innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Vegna þessa þarf ekki að gefa út heilbrigðisvottorð við útflutning og þar með er ekki þörf á aðkomu Matvælastofnunar að málinu,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Mikilvægur útisigur Skagakvenna

Skagastelpur gerðu góða ferð í Laugardalinn þegar þær sigruðu Þróttara 2-1 í þrettándu umferð Inkassodeildarinnar á föstudaginn var. ÍA er í harðri baráttu við efstu lið deildarinnar og hafa þær gulklæddu verið á sigurgöngu síðustu vikur. Sigurinn á Þrótti var sá fjórði í röð og eru Skagastelpur til alls líklegar þegar líður á síðara hluta…Lesa meira