Fréttir

true

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar í oddaleik

Skallagrímskonur hafa lokið þátttöku í Íslandsmótinu í körfuknattleik þetta árið, eftir tap gegn Keflavík í oddaleik um sæti í úrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitilinn. Oddaleikurinn fór fram í Keflavík í gærkvöldi. Eftir mjög jafnan fyrri hálfleik reyndust Keflvíkingar sterkari í þeim síðari. Skallagrímskonur gerðu góða tilraun til að komast aftur inn í leikinn í lokafjórðungnum en höfðu…Lesa meira

true

Endurnýja hjúskaparheitið við altari Hallgrímskirkju

Í dag, föstudaginn langa, ætla leikararnir Steinunn Jóhannesdóttir og Sigurður Karlsson ætla að skipta með sér flutningi Passíusálmanna í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Áætla þau að hefja lestur klukkan 13:30 og áætla að ljúka honum um klukkan 18:30. Um tónlistarflutning í upplestrarhléum sér Erla Rut Káradóttir. Þau Steinunn og Sigurður eru bæði vel kunnug skáldskap Hallgríms…Lesa meira

true

„Getum vonandi boðið nokkrar útfærslur einingahúsa framtíðinni“

Límtré Vírnet hefur undanfarið verið í samstarfi við arkitektana Hjördísi Sigurgísladóttur og Dennis Davíð Jóhannesson um hönnun steinullareiningahúsa. Hjördís og Dennis hafa séð um aðaluppdrætti, Límtré Vírnet hannað burðavirkið og öll deilivinna hefur verið samvinna beggja aðila. „Límtré Vírnet hannar ekki útlit húsanna heldur snýr þáttur fyrirtækisins meira að útfærslunni. Okkar hlutverk er að leysa…Lesa meira

true

Myndavélar vakta hafnirnar

Eftirlitsmyndavélum hefur verið komið upp á Ólafsvíkurhöfn. Nú þegar er búið að taka í notkun fimm myndavélar en þær verða líklega sex eða sjö þegar allar verða komnar í gagnið. Var myndavélunum komið upp í kjölfar þess að brotist var ítrekað inn í allmarga báta á svæðinu. Þar var lyfjum og  öðrum verðmætum stolið. Mun…Lesa meira

true

Sagðist hafa verið að flýta sér

Á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi er greint frá því að lögregluþjónar við umferðareftirlit hafi í dag stöðvað ökumann á Vesturlandsvegi til að kanna með ástand hans og ökuréttindi. Var lögreglubifreiðinni lagt fyrir aftan bifreið mannsins með forgangsljósin kveikt eins og reglur kveða á um. Þar sem lögreglumennirnir ræddu við ökumanninn í lögreglubifreiðinni urðu þeir varir…Lesa meira

true

Strandveiðikvóti aukinn um 200 tonn

Aflaheimildir til strandveiða á sumri komanda verða auknar um 200 tonn frá síðasta ári og kemur aukningin öll í hlut D svæðis, sem nær frá Hornafirði til Borgarfjarðar. Heildar aflaheimildir á svæðinu verða því 1500 tonn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra gaf í gær út reglugerð um strandveiðitímabilið í sumar. Leyfilegur heildarafli verður 9.200 tonn. Tímabilið…Lesa meira

true

Akranes í undanúrslit Útsvars

Akranes tryggði sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum spurningaþáttarins Útsvars, sem sýndur er á RÚV. Skagamenn lögðu Kópavogsbúa í æsispennandi keppni með 56 stigum gegn 53. Liðin voru jöfn lengst framan af þættinum en þegar komið var að orðaleiknum náðu Skagamenn afgerandi forskoti. Þar sóttu þeir 14 stig gegn aðeins fimm stigum Kópavogsbúa. En liðsmenn…Lesa meira

true

Raðhús í byggingu á Húsafelli

Verið er að byggja raðhúsalengju með sex íbúðum á Húsafelli í Borgarfirði. Hótel Húsafell stendur að framkvæmdunum og að sögn Bergþórs Kristleifssonar framkvæmdastjóra er íbúðunum ætla að leysa þann húsnæðisvanda sem gerir atvinnurekendum á Húsafelli erfitt fyrir. „Við byrjuðum á raðhúsalengju með sex litlum íbúðum fyrir rúmri viku síðan og gengur vel. Nú er verið…Lesa meira

true

Styrkir afhentir til menningar og uppbyggingar á Vesturlandi

Síðastliðinn föstudag fór fram úthlutun um styrki til menningar- atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Vesturlandi. Úthlutunin fór fram í Búðardal. Það eru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem annast úthlutun úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og Nýsköpunar- og uppbyggingarsjóði. Samtals var úthlutað 38,6 milljónum króna. Styrkir til menningarmála námu 21,7 milljón og stofnstyrkir til menningarmála 7,1 milljón. Þá úthlutaði…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik í dag

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á Lalla Meryem Cup mótinu í Marokkó nú í morgunsárið. Mótið er þriðja mót ársins á LET Evrópumótaraðarinnar í golfi og annað mót tímabilsins hjá Valdísi í þessari sterkustu mótaröð Evrópu, en hún hafnaði í 51. sæti á fyrsta mótinu sem fram fór í Ástralíu. Valdís…Lesa meira