Fréttir

true

Tók sex ár að fá svar UST

Helgi Helgason, framkvæmdastjóri Heiðbrigðiseftirlits Vesturlands, gagnrýndi seinagang í kerfinu og í samskiptum við stjórnsýsluna, einkum Umhverfisstofnun, þegar hann fór yfir ársskýrslu eftirlitsins á aðalfundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands 29. mars síðastliðinn. Ingibjörg Valdimarsdóttir, formaður heilbrigðisnefndarinnar, hafði sömuleiðis orð á því í sínu erindi að Umhverfisstofnun hefði verið sein til svara, líkt og undanfarin ár, þegar þreifingar áttu…Lesa meira

true

Andlát: Magnús Oddsson

Magnús Oddsson, fyrrum bæjarstjóri á Akranesi og rafveitustjóri rafveitu Akraness, lést í gær, þriðjudaginn 11. apríl. Magnús fæddist 17. nóvember 1935 og var tæknifræðingur að mennt. Hann flutti á Akranes frá Reykjavík árið 1968 til að taka við starfi rafveitustjóra Rafveitu Akraness. Gegndi hann því starfi þar til haustið 1974, en var þá ráðinn bæjarstjóri.…Lesa meira

true

Inga Vildís ráðin félagsmálastjóri Borgarbyggðar

Inga Vildís Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Borgarbyggðar. Hún er með meistaragráðu í félagsráðgjöf og diplómapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Frá árinu 2011 hefur Inga Vildís starfað sem félagsráðgjafi hjá Borgarbyggð. Fjórar umsóknir bárust um starfið, en auk Ingu Vildísar sóttust eftir stöðunni Hanna Lára Steinsdóttir félagsráðgjafi, Kristín Þyri Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi…Lesa meira

true

Akranes keppir í Útsvari í kvöld

Næsta viðureign átta liða úrslita spurningaþáttarins Útsvars, sem sýndur er í sjónvarpi RÚV, fer farm í kvöld þegar lið Akraness mætir liði Kópavogs. Útsvar er vanalega á föstudögum en þátturinn verður ekki sýndur á föstudaginn langa. Því fer viðureign Skagamanna og Kópavogsbúa fram í kvöld og hefst kl. 20:35. Lið Akraness skipa sem fyrr þau…Lesa meira

true

Ofsakastur á Snæfellsnesvegi

Alls voru 63 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi síðastliðna viku. Sá sem hraðast ók var ferðamaður sem var stöðvaður á Snæfellsnesvegi fyrir að aka á 129 km/klst. Varð hann að staðgreiða sekt upp á 52.500 krónur áður en hann hélt ferð sinni áfram. Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi Lögreglunnar…Lesa meira

true

Eignarhald Þörungaverksmiðjunnar breytist

Bandaríska stórfyrirtækið DuPont hefur eignast meirihluta í Þörungaverksmiðjunni hf. á Reykhólum í gegnum kaup sín á heilsuvöruframleiðslu bandaríska fyrirtækisins FMC Corporation. FMC Corporation er skráð fyrir 71,6% hlutafjár Þörungaverksmiðjunnar, en Byggðastofnun á 27,7% hlut. Aðrir hluthafar eru um 70 talsins. Morgunblaðið greinir frá. Þar er haft eftir Magnúsi Helgasyni, sem situr í stjórn Þörungaverksmiðjunnar fyrir…Lesa meira

true

Heimsfrumsýning Fast 8 á Akranesi

Kvikmyndin Fate of the Furious, einnig þekkt sem Fast & the Furious 8, eða Fast 8, verður heimsfrumsýnd í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn 12. apríl klukkan 18:00. Myndin verður frumsýnd í öðrum bíóhúsum hér á landi síðar sama kvöldið, sem og víða í Evrópu og næstu daga verður hún frumsýnd í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku…Lesa meira

true

„Það mótaði okkur að þurfa ung að skipuleggja lífið upp á nýtt“

Ólöf Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur var nýverið ráðin úr hópi tæplega fjörutíu umsækjenda í starf atvinnuráðgjafa hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Ólöf stefnir nú að flutningi á heimaslóðir, en hún er fædd og uppalin í Borgarnesi og hefur starfað á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugina. Nú setja þau, hún og Alexander Hrafnkelsson eiginmaður hennar, stefnuna á flutning á Vesturland…Lesa meira

true

Rífandi gangur í húsgagna- og byggingavöruverslun

Aukin umsvif í byggingaframkvæmdum komu greinilega fram í sölutölum byggingavöruverslana í marsmánuði. Þetta á bæði við um almennar byggingavörur svo og sérhæfðar verslanir sem selja gólfefni. Í samantekt Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur fram að sömuleiðis var umtalsverð veltuaukning hjá húsgagnaverslunum og verslunum sem selja stór heimilistæki. Velta húsgagnaverslana jókst um 21,2% frá mars í fyrra en…Lesa meira

true

Útþrá og kraftur Egils fái að njóta sín í listaverki í Borgarfirði

„Mér fannst vanta eitthvað til að draga fram sögu Borgarfjarðar við þjóðveg eitt hjá Borgarnesi. Borgarfjörðurinn er mjög merkileg söguslóð og hún mætti vera meira áberandi fyrir vegfarendur,“ segir listamaðurinn Hilmar Páll Jóhannesson sem vill reisa 9 metra hátt listaverk á Selskeri út af Seleyri við syðri enda Borgarfjarðarbrúarinnar. Um er að ræða hönd sem…Lesa meira