Fréttir

true

Stefnir í mikla fjölgun gististaða

Á síðasta ári voru skráðir 69 nýir gististaðir á Vesturlandi og það sem af er árinu 2017 hefur Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gefið út 18 starfsleyfi vegna heimagistingar og 15 til viðbótar bíða afgreiðslu. Því hefur verið sótt um samtals 33 leyfi frá áramótum. Þetta kom fram í máli Helga Helgasonar, framkvæmdastjóra HeV, á aðalfundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands…Lesa meira

true

Frítekjumörk vegna húsnæðisbóta hækkuð

Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur sem hækkar þau viðmið tekna sem leigjendur geta haft áður en þær skerða rétt þeirra til húsnæðisbóta. Reglugerðin er afturvirk og gildir frá gildistöku laga um húsnæðisbætur 1. janúar 2017. Með reglugerðarbreytingunni er brugðist við misræmi sem orðið hefur á milli framfærsluviðmiðs almannatrygginga…Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla á Kambsvegi

Árekstur varð á Kambsvegi, skammt frá Hrútsstöðum í Dölum síðdegis í gær. Færð var varhugaverð og slabb á veginum. Minniháttar slys urðu á fólki en bílana þurfti að fjarlægja með aðstoð dráttarbíls.Lesa meira

true

Undirbýr aldarafmæli sjálfstæðs fullvalda ríkis

Undirbúningsnefnd vegna aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands hefur ráðið Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, menningarfulltrúa Eyþings, sem framkvæmdastjóra vegna undirbúnings hátíðarhalda í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018. Ragnheiður Jóna hefur tíu ára reynslu af störfum á vettvangi menningar og lista, undanfarin ár hefur hún starfað sem menningarfulltrúi Eyþings og sem verkefnastjóri uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra. Ragnheiður…Lesa meira

true

Bessastaðir reyndust fyrsta hindrunin fyrir hjólastól

Brandur Bjarnason Karlsson er nú í ferð umhverfis landið með föruneyti sínu til vekja fólk til vitundar um mikilvægi þess að hreyfihamlaðir komist sem víðast. Hvatt er til að leitað verði lausna til að eyða ýmsum farartálmum og bent á að byggingar verði þannig úr garði gerðar að hreyfihamlaðir komist helst leiðar sinnar líkt og…Lesa meira

true

Fallegir sjóbirtingar úr Grímsá

„Við frændurnir, ég og Óli Tómas, byrjuðum veiðitímabilið á hinni árlegu ferð okkar í Grímsá í Borgarfirði,“ sagði Elías Pétur Þórarinsson sem var að koma úr fyrsta veiðitúrnum á tímabilinu, en leyfilegt er að renna fyrir sjóbirting 1. apríl ár hvert. Það er Hreggnasi, leigutaki árinnar, sem sér um sölu veiðileyfa í Grímsá. „Væntingar okkar…Lesa meira

true

Leggur til að innheimtur virðisaukaskattur af umferð fari í samgönguátak

Bjarni Jónsson varaþingmaður VG í Norðvesturkjördæmi tók sæti á Alþingi í um vikutíma í lok mars í forföllum Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur. Bjarni nýtti tímann til hins ítrasta á þingi og opnaði hvorki meira né minna en fjögur þingmál í fjórtán töluliðum sem öll snertu beint og óbeint umferð um Vesturlandsveg. Var fyrirspurnunum beint til Jóns…Lesa meira

true

Snæfell komið í úrslitin

Snæfell og Stjarnan mættust í þriðja undanúrslitaleik Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi. Fyrir leikinn í gær leiddu Snæfellskonur viðureignina með tveimur sigrum gegn engum. Með sigri gátu þær því tryggt sér sæti í úrslitum, sem þær og gerðu. Snæfell leiddi frá fyrstu mínútu og sigraði að lokum örugglega, 84-70 og…Lesa meira

true

Höfuðborgin fær jákvæða umsögn erlendra ferðamanna

Á síðasta ári komu tæplega 1,8 milljónir ferðamanna til landsins. Langflestir þeirra eða um níu af hverjum tíu gistu í Reykjavík á ferð sinni, að jafnaði í fjórar til sex nætur. Samkvæmt því voru gistinætur í borginni í fyrra um 5,2 milljónir og má lauslega áætla að ferðamenn hafi eytt 160 milljörðum króna miðað við…Lesa meira

true

Vöruverð hefur lækkað í öllum matvöruverslunum síðan í haust

Alþýðusamband Íslands framkvæmir reglulega verðkannir á matvöru. Í vörukörfu ASÍ hefur matarverð lækkað frá því í september 2016 hjá öllum þeim tíu verslununum sem skoðaðar voru vikuna 20.–24. mars síðastliðinn. Mest er lækkunin 5,6% hjá Hagkaup og 5,5% hjá Krónunni. Minnsta lækkunin er hjá Samkaup-Strax, 0,2% og Víði 0,4%. Á umræddu tímabili má sjá verðbreytingar…Lesa meira