Fréttir

true

Færeyskur kór syngur í Saurbæ á laugardaginn

Dagana 7.-10. apríl verður Siloa-kórinn frá Fuglafirði í Færeyjum á ferð hér á landi og syngur á fjórum stöðum. Meðal annars heldur kórinn tónleika í Hallgrímskirkju í Saurbæ laugardginn 8. apríl klukkan 20:00. Meðal kórfélaga er einn sveitungi, Sólrún Ásta Haraldsdóttir frá Belgsholti í Melasveit, en hún býr í Fuglafirði í Færeyjum. Sólrún Ásta vonast…Lesa meira

true

Hollvinir HVE færðu stofnuninni gjafir

Vel var mætt á þriðja aðalfund Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem fram fór að morgni síðastliðins laugardags. Endurnýjað var umboð stjórnar og fulltrúaráðs félagsins. Steinunn Sigurðardóttir formaður hollvinasamtakanna fór yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári og Skúli Ingvarsson gjaldkeri skýrði reikninga. Félagar eru nú 327 og fjölgaði um fjóra frá síðasta starfsári. Hvatti Steinunn almenning til…Lesa meira

true

Frumsýndu franskan spuna á afmælisári

Leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna í Borgarfirði er fjörutíu ára á þessu ári. Á þessum fjórum áratugum hefur deildin fært upp fjölmörg verk, stór og smá, ýmist eftir heimafólk eða aðra. Nú á afmælisárinu var ákveðið að færa á fjalirnar franskan ærslaleik sem í íslenskri þýðingu nefnist Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan.…Lesa meira

true

Það er eitthvað sem stemmir ekki

MTh útgáfa á Akranesi hefur gefið út skáldsöguna „Það er eitthvað sem stemmir ekki,“ eftir Martinu Haag. Kristján H. Kristjánsson þýðir. Sagan fjallar um Petru og Anders sem hafa verið gift í 15 ár. Hún er höfundur vinsælla bóka um sambönd fólks en hann er þekktur sjónvarpsmaður og saman eiga þau tvo drengi, tvo hunda,…Lesa meira

true

Vesturlandsstofa orðin skuldlaus við lánastofnanir

Gert var grein fyrir ársreikningi og -skýrslu Vesturlandsstofu samhliða aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldinn var í síðustu viku. Páll S. Brynjarsson, framkvæmdastjóri SSV, fór yfir ársreikning Vesturlandsstofu. Ástæðu þess að hann gerði grein fyrir fjármálunum sagði hann vera þá að síðan í árslok 2013 á SSV allt hlutafé Vesturlandsstofu. Í stuttu máli var…Lesa meira

true

Stórsýning Fimleikafélags Akraness

Fimleikafélag Akraness bauð upp á tvær vorsýningar í Íþróttahúsinu við Vesturgötu síðastliðinn laugardag. Sérstök ástæða er fyrir félagið til að fagna því nú hefur bæjarstjórn Akraness samþykkt að hefja byggingu nýs fimleikahúss við Vesturgötu. Um leið mun aðstaða þessa fjölmenna íþróttafélags batna til mikilla muna. Fullt var út úr dyrum á báðum sýningunum. Þar sýndu…Lesa meira

true

Bjarki á lista bestu kylfinga bandarísku háskóladeildarinnar

Bjarki Pétursson, kylfingur úr Golfklúbbi Borgarness, hefur leikið gríðarlega vel það sem af er ári með háskólaliði sínu Kent State í Bandaríkjunum. Sömu sögu er að segja af liðsfélaga hans, Gísla Sveinbergssyni úr Keili. Lið þeirra hefur unnið þrjú mót það sem af er tímabili, þar af tvö af síðustu þremur. Þeir hafa aldrei lent…Lesa meira

true

Mæðgin fóru í hjálparstarf til Suður – Afríku

Skagakonan Auður Líndal er nýkomin heim úr tveggja vikna ferð frá Suður – Afríku, þar sem hún sinnti sjálfboðaliðastarfi ásamt Júlíusi Emil Baldurssyni, fimmtán ára syni sínum. Hún segir hugmyndina að því að fara í ferðina hafa komið óvænt og í framhaldinu gerðust hlutirnir hratt. „Það er ekkert verið að flækja hlutina. Í nóvember var…Lesa meira

true

Lýst eftir manni sem jafnvel gæti verið á Akranesi

Vísir.is greinir frá því nú rétt í þessu að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsi eftir Marek Marko sem fæddur er 1986. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni er Marek 186 sentimetrar á hæð, sköllóttur með brún augu, grannvaxinn og gengur yfirleitt með sólgleraugu. „Talið er að hann sé klæddur í svarta 66° Norður úlpu, gráar íþróttabuxur, gráa hettupeysu…Lesa meira

true

Dularfulla búðin verður opnuð á Akranesi í maí

„Það er orðið öruggt að Dularfulla búðin verður til húsa að Skólabraut 14 hér á Akranesi, þar sem síðast var bakaríið Brauðval og áður Café Mörk,“ segir Ingimar Oddsson í samtali við Skessuhorn. Hann vinnur þessa dagana hörðum höndum að opnun búðarinnar, sem verður í senn verslun, safn, kaffisala og fleira. „Næst á dagskrá er…Lesa meira