Fréttir

true

Segja boðaða virðisaukaskattsbreytingu reiðarslag fyrir ferðaþjónustu

„Verði virðisaukaskattur á ferðaþjónustu tvöfaldaður eins og forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa boðað mun það hafa í för með sér grafalvarlegar afleiðingar fyrir fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu um land allt,“ segir í ályktun frá fundi sem Samtök ferðaþjónustunnar boðuðu  til síðastliðinn fimmtudag. „Afleiðingarnar verða alvarlegastar fyrir landsbyggðina sem á nú þegar undir högg að sækja þegar…Lesa meira

true

Bjóða upp á nýtt meistaranám í markaðsfræðum á Bifröst

Háskólinn á Bifröst ætlar í haust að bjóða upp á nýtt meistaranám í markaðsfræðum í fjarnámi með tilheyrandi vinnuhelgum í hverri lotu. Um verður að ræða 90 eininga nám sem hægt verður að ljúka með MS gráðu og einnig MMM (Master of Marketing Management) gráðu. Nám til MS gráðu verður þannig upp byggt að af…Lesa meira

true

Hafa opnað matvagn í Sáinu í Ólafsvík

Það var nóg að gera hjá þeim Erlu Gunnlaugsdóttur og Ásdísi Lilju Pétursdóttur en þær eiga og reka Matvagninn sem opnaður var í Sáinu í Ólafsvík á laugardaginn. Í matvagninum ætla þær stöllur að selja fisk og franskar eða „fish and chips” og einnig pylsur með fjölbreyttu meðlæti, bæði djúpsteiktar og hitaðar. Nóg var að…Lesa meira

true

Siguroddur sigurvegari í einstaklingskeppni en Skáney/Leiknir í keppni liða

Síðastliðið föstudagskvöld fór fram lokakeppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í vetur þegar keppt var í flugaskeiði í gegnum höllina. Í keppni föstudagsins var það Konráð Valur Sveinsson frá Laugarvöllum sem sigraði næsta örugglega á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu. Tíminn var 4,89 sek. Í öðru sæti varð Styrmir Sæmundsson á Skjóna frá Stapa á tímanum 5,26 sek.…Lesa meira

true

Á verðlaunapall á Norðurlandamóti í hnefaleikum

Hnefaleikasamband Íslands sendi 17 manna landsliðshóp á Norðurlandamótið í Ólympískum hnefaleikum sem haldið var í Gilleleje í Danmörku helgina 31. mars – 2 apríl. Skagamennirnir Bjarni Þór Benediktsson keppandi í 64kg flokki ungmenna og Örnólfur Stefán Þorleifsson þjálfari voru meðal þátttakenda. Bjarni Þór lenti á móti mjög sterkum andstæðingi frá Svíþjóð. Sá er margfaldur Svíameistari…Lesa meira

true

Strekkings vindur og úrkoma í dag

Spáð er suðaustan 13-20 m/s og talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands framan af degi. Sumsstaðar hvassari í vindstrengjum við fjöll. Sunnan 8-15 m/sek undir kvöld með súld og rigningu. Hlýnandi veður, hiti 5 til 10 stig í kvöld. Á þriðjudaginn verður norðan- og norðvestan hvassviðri eða stormur og snjókoma og vægt frost, en úrkomulítið sunnantil…Lesa meira

true

Ekki satt orð í gær

Landsmenn voru býsna meðvitaðir um að í gær var 1. apríl en þá leyfist að freista þess að láta fólk hlaupa á fölskum forsendum. Til að fyrirbyggja allan misskilning skal það tekið fram að luftgítar var ekki til sölu í Búðardal, engir grindhvalir sáust við Borgarnes og Kútter Sigurfari er enn á sínum stað við…Lesa meira

true

Flutningur á Sigurfara gekk að óskum og lítill leki við sjósetningu

Bráðabirgða lagfæringum á ytra byrði Kútters Sigurfara lauk á fimmtudaginn. Skipið var tekið af stöllum sínum við Byggðasafnið í Görðum og flutt í Akraneshöfn síðdegis í gær. Stærstu flutningabílar frá Bifreiðastöð ÞÞÞ voru notaðir til verksins og gekk aksturinn vel, en tók á sjötta tíma. Það var síðan krani frá Skóflunni hf. sem tók skipið…Lesa meira

true

Á fimmta hundrað grindhvala við Dílatanga í Borgarnesi

“Ég hef aldrei séð svona marga grindhvali áður og þó hef ég verið viðstaddur þegar grindhvalir gengu á land í Færeyjum þegar ég var unglingur í heimsókn hjá frændfólki mínu,” segir Þorleifur Geirsson í Borgarnesi í samtali við Skessuhorn. Hann sendi Skessuhorni meðfylgjandi mynd nú rétt í þessu. Þorleifur segir að nú í morgun hafi…Lesa meira

true

Lúftgítar Íslandsmeistarans til sölu

Skessuhorn greindi frá því síðasta haust þegar Dalamaðurinn Ásgeir Geirsson hampaði Íslandsmeistaratitlinum í lúftgítarleik á Íslandsmótinu sem haldið var í Reykjavík. Eins og lesendur geta eflaust gert sér í hugarlund þá fer keppni í lúftgítarleik þannig fram að keppendur spila á ímyndaðan gítar, svokallaðan lúftgítar eða loftgítar, á meðan lag að þeirra eigin vali ómar…Lesa meira