
Út er komin ljóðabókin Hugdettur og heilabrot: Ljóðasafn hjónanna Hallgríms Ólafssonar og Helgu Halldórsdóttur frá Dagverðará. Yrkisefni þeirra eru fjölmörg og fjölbreytt, ljóðin endurspegla heilabrot þeirra og hugdettur um náttúruna, söguna, mannfólkið, lífið og tilveruna. Hallgrímur var fæddur á Sogni í Ölfusi 26. október 1888 og lést 21. febrúar 1981. Helga var fædd á Haga…Lesa meira








