Fréttir

true

Öllu starfsfólki bolfiskvinnslu HB Granda á Akranesi verður sagt upp

„HB Grandi áformar að láta af botnfiskvinnslu á Akranesi,“ segir í upphafi yfirlýsingar sem Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda las upp á blaðamannfundi sem var að ljúka á Akranesi. Stefnt er að því að sameina botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi við vinnsluna í Reykjavík og segja upp öllum 93 starfsmönnum fyrirtækisins sem unnið hafa við bolfiskinn…Lesa meira

true

Fimm bú með yfir sjö þúsund lítra meðalnyt eftir kú

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu á Vesturlandi fór nýverið fram. Gestur á fundinum var Arnar Árnason stjórnarformaður Landssambands kúabænda. Mikið var rætt um framtíðarhorfur og stöðu greinarinnar, félagsaðild, framgöngu ráðherra landbúnaðarmála, tollamál og fleira. Í annað skipti í sögu félagsins var nokkrum bændum veittar viðurkenningar. Hér eru listar yfir afurðahæstu búin, kýrnar og hæst dæmdu kýr úr…Lesa meira

true

Kraftlyftingakappar af Akranesi sigursælir um helgina

Íslandsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fór fram í Reykjavík á laugardaginn var. Samhliða fór fram Íslandsmeistaramót ungmenna og öldunga, einnig í klassískum lyftingum. Sex lyftingakappar frá Kraftlyftingafélagi Akraness tóku þátt í mótunum. Skemmst er frá því að segja að kraftlyftingafólk af Akranesi sneri heim með fimm Íslandsmeistaratitla og ein bronsverðlaun.   Þrjú Íslandsmet Einars Á Íslandsmeistarmótinu…Lesa meira

true

Vill fund með þingmönnum, verkalýðsfélagi og bæjarstjórn

Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður (B) segir nauðsynlegt er að allir vinni saman að því að standa vörð um starfsemi fiskvinnslu HB Granda á Akranesi. „Ég hef því óskað eftir því að þingmenn NV kjördæmis, bæjarstjórnarmenn á Akranesi og Verkalýðsfélag Akraness, komi saman. Það þarf að ræða þessi mál og fá upplýsingar um hvað er í…Lesa meira

true

Fundað verður í dag með starfsfólki HB Granda

Forsvarsmenn HB Granda munu í dag klukkan 14:30 eiga fund með forsvarsmönnum Verkalýðsfélags Akraness og trúnaðarmönnum starfsfólks í fiskvinnslu HB Granda. Eftir fundinn verður rætt við starfsfólk. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Eins og fram kemur í annarri frétt hér að framan er tap af landvinnslu HB Granda vegna…Lesa meira

true

HB Grandi dregur úr landvinnslu

„Rekstrarhorfur fyrir botnfiskvinnslu hafa ekki verið lakari í áratugi og mun HB Grandi því draga verulega úr eða hætta kaupum botnfisks á fiskmarkaði. Árið 2016 voru unnin 28 þúsund tonn af þorski, ufsa og karfa í fiskvinnslum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi. Þar af voru keypt fjögur þúsund tonn af ufsa og þorski…Lesa meira

true

Íbúi á Jaðri liðtækur í krókunum

Hinrik Pálsson íbúi á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík situr ekki auðum höndum þrátt fyrir að verða 79 ára á árinu. Hann er að eigin sögn við hestaheilsu og dundar við að hnýta króka á tauma sem síðan fara á línuna. Kveðst hann vera búinn að hnýta um 10 þúsund króka á tveimur vikum. Hann segist…Lesa meira

true

Hvenær varð Hákon gamli konungur Íslendinga?

Næsti fyrirlestur Snorrastofu í Reykholti verður annað kvöld, þriðjudaginn 28. mars. Þar verður fjallað um hina dramatísku stjórnmálasögu Íslands á 12. og 13. öld þar sem yfirskriftin er bæði áleitin og kímniblandin; hvenær Hákon gamli hafi orðið konungur Íslendinga? Það er sagnfræðingurinn Sverrir Jakobsson sem reifar málefnið og leggur gestum til fróðleik og eigin hugleiðingar…Lesa meira

true

Hvergerðingar komnir í keppnisskap

Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið ár hvert frá 2012 og verður í sumar haldið í Hveragerði um jónsmessuhelgina 23.-25. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) er mótshaldari. Búist er við meiri fjölda af öflugum þátttakendum 50 ára og eldri en áður hefur sést á mótunum. Landsmót UMFÍ 50+ er fyrir…Lesa meira

true

Margar tiltækar íbúðarhúsalóðir á Akranesi

Ágætis horfur eru á byggingamarkaði á Akranesi. Að sögn Sigurðar Páls Harðarsonar sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er nú verið að byggja á nokkrum stöðum. Auk þess eru lausar til umsóknar tæplega 40 íbúðarhúsalóðir og mun þeim fjölga þegar líður á árið. „Sú uppbygging sem er fyrst og fremst í gangi er í Skógarhverfi 2. Þar…Lesa meira