Fréttir

true

Véfrétt Vilhjálms vekur ugg

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness fer vissulega ekki troðnar slóðir í starfi sínu og hefur sem slíkur markað sér sérstöðu meðal verkalýðsforkólfa hér á landi. Vilhjálmur notar samfélagsmiðla mikið og bloggar þar um sitthvað sem að hagsmunabaráttu fyrir launafólk snýr. Síðastliðinn föstudag skrifaði Vilhjálmur færslu á Facebook síðu sína sem vakið hefur viðbrögð, spurningar og…Lesa meira

true

Framlag Vesturlands hafnaði í öðru sæti Samfés

Söngkeppni Samfés, árleg keppni félagsmiðstöðva hér á landi, fór fram um heligna í Laugardalshöllinni. Á föstudagskvöldið fylltu 4.600 unglingar höllina og fylgdust með tónleikum þar sem fram komu m.a. DJ Dagur, DJ Aqua­Dream, DJ Sunna Ben, Hljómsveitin Trausti og Gylfi, Sylvía Erla, Hildur, Sturla Atlas, Best of 12:00 ásamt Áttunni og Páll Óskar. Allt tónlistarfólk…Lesa meira

true

Hálkublettir og sumsstaðar snjóþekja

Á Vesturlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum og eitthvað um éljagang, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í morgun. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og í Svínadal.Lesa meira

true

Ræktunarsýning Vesturlands er í kvöld

Hrossaræktarsamband Vesturlands gengst í kvöld fyrir sýningu í Reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi. Þar mun sitthvað gleðja augað. Meðal annars verða kynntir þeir stóðhestar sem sambandið hefur til afnota í sumar og ræktunarbú kynna sig og hrossin. Sjá meðfylgjandi auglýsingu, en sýningin hefst klukkan 20.Lesa meira

true

Þungt undir fæti í sölu dilkakjöts

Fulltrúi Sláturhúss Kaupfélags Skagfirðinga hélt síðastliðinn miðvikudag fund með sauðfjárbændum í félagsheimilinu Valfelli í Borgarhreppi. Á fundinum fór Ágúst Andrésson formaður samtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri kjötafurðasviðs KS yfir stöðuna í sölumálum sauðfjárafurða og horfur fyrir næstu sláturtíð. Fram kom á fundinum að útlit er fyrir meiri birgðir lambakjöts 1. september í haust miðað við sama…Lesa meira

true

Viðbótarfé veitt í vegabætur á Uxahryggjum, Skógarströnd og Gufudalssveit

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 1200 milljónum króna viðbótarfé í vegamál. Af upphæðinni fara 125 milljónir í vegabætur á Uxahryggjarvegi í Borgarfirði, 25 milljónir í Snæfellsnesveg um Skógaströnd og 200 milljónir í Vestfjarðarveg um Gufudalssveit í Reykhólahreppi. Þessar 1.200 milljónir koma til viðbótar þeim 4,6 milljörðum sem eyrnamerkt voru í vegamál…Lesa meira

true

Í öðru sæti í Hæfileikakeppni starfsbrauta

Nemendur á starfsbraut í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fóru á kostum í hæfileikakeppni starfsbrauta sem fram fór í Flensborg í Hafnarfirði á dögunum. Þau gerðu sér lítið fyrir og enduðu í öðru sæti fyrir afar skemmtilegt myndband. Hægt er að skoða myndband hópsins hér.Lesa meira

true

Tvö hundruð unglingar þreyta í dag próf í stærðfræði

Hátt í tvö hundruð ungmenni úr 8.-10 bekk grunnskóla þreyta í dag próf í stærðfræði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þetta er í nítjánda skipti sem skólinn gengst fyrir stærðfræðikeppni þessari og hefur aldrei áður verið jafn góð þátttaka. Til prófs voru skráðir 196 nemendur úr níu skólum af Vesturlandi og frá Hólmavík. Ágústa Elín…Lesa meira

true

Taka upp þjónustugjald vegna fjölda ferðafólks

Eigendur jarðarinnar Helgafells í Helgafellssveit hafa ákveðið að hefja innheimtu viðhalds- og þjónustugjalds af ferðafólki sem vill njóta staðarins, en gríðarlegur ferðamannastraumur er að Helgafelli enda fagur staður og víðsýnt af fellinu. Gjaldið verður 400 krónur og notað til að bæta aðgengi að staðnum sem og þjónustugjald þar sem salerni og bílastæði eru til staðar…Lesa meira

true

Alvarlegt slys í kerskála Norðuráls (uppfærð frétt)

Alvarlegt vinnuslys varð í kerskála álvers Norðuráls á Grundartanga um kvöldmatarleytið á miðvikudag. Einn starfsmaður slasaðist. Þetta staðfestir Sólveig Bergmann, upplýsingafulltrúi Norðuráls, í samtali við Skessuhorns. Hún vill ekki tjá sig um tildrög slyssins en samkvæmt heimildum Skessuhorns varð slysið með þeim hætti að starfsmaðurinn var við störf við brúkrana í kerskála, sem var útbúinn…Lesa meira