Fréttir

true

Umfangsmikil áætlunargerð í ferðaþjónustu um land allt

Ferðamálastofa hefur gengið til samninga um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (e. Destination Management Plan) í öllum landshlutum. Þetta er eitt stærsta verkefnis á sviði ferðaþjónustu sem ráðist hefur verið í hér á landi og mun Ferðamálastofa beina 100 milljónum króna af verkefnafé sínu til framkvæmdar verkefnisins á næstu tólf mánuðum. Samið verður við markaðsstofur landshlutanna og…Lesa meira

true

Arnór Sigurðsson til IFK Norrköping

Sænska úrvalsdeildarliðið IFK Norrköping hefur keypt Skagamanninn Arnór Sigurðsson frá ÍA. Arnóri var boðið til reynslu hjá sænska liðinu síðasta haust auk þess sem hann fór í æfingabúðir liðsins í Portúgal í byrjun þessa árs. Nú hefur IFK Norrköping keypt Arnór, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við liðið. „Við erum gríðarlega ánægðir fyrir Arnórs…Lesa meira

true

Glímukrökkum gekk vel á grunnskólamóti

Grunnskólamót Glímusambandsins var haldið í Ármannsheimilinu í Reykjavík laugardaginn 18. mars. Glímt var á tveimur völlum samtímis og gekk keppnin vel fyrir sig. Krakkarnir skemmtu sér vel og var almenn ánægja með mótið. Keppendur frá Vesturlandi komu frá tveimur skólum í landshlutanum; Auðarskóla í Búðardal og Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi. Jóhanna Vigdís Pálmadóttir úr Auðarskóla varð…Lesa meira

true

Vel haldinn þorskur á handfærin

Lárus Hermannsson úr Borgarnesi rær við annan mann á Signýju HU. Lárus er kokkur og hefur starfað sem slíkur en einnig sótt sjóinn. „Við höfum gert út á línu frá Ólafsvík en fluttum okkur um set sunnudaginn 13. mars eftir að loðnan var mætt í Breiðafjörðinn. Þá fórum við til Sandgerðis og fórum jafnframt yfir…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 3,2% í febrúar

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 199.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í febrúar 2017, sem jafngildir 82,8% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 192.900 starfandi og 6.500 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,1% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,2%. Samanburður mælinga fyrir febrúar 2016 og 2017 sýnir…Lesa meira

true

Vilja að erlendir ríkisborgarar geti kosið til sveitastjórna

Pawel Bartoszek alþingismaður Viðreisnar, ásamt öðrum þingmönnum flokksins, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um kosningarétt erlendra ríkisborgara til sveitastjórna. „Kosningaréttur er lykilatriði í þátttöku í lýðræðislegu samfélagi. Erlendir ríkisborgarar eru nú um 8% allra íbúa Íslands. Þeir greiða hér skatta og leggja mikið til uppbyggingar samfélagsins, margir þeirra munu svo að öllum líkindum öðlast…Lesa meira

true

Aukið viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu

Viðbúnaðarstig vegna varna gegn fuglaflensu hefur verið aukið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Það þýðir að allir fuglar í haldi þurfa tímabundið að vera haldnir í yfirbyggðum gerðum þar sem villtir fuglar komast ekki inn eða í fuglaheldum húsum. Smitvarnir skulu viðhafðar sem miða að því að ekki getur borist smit frá villtum…Lesa meira

true

Fánar héngu við hún á afmæli Borgarness

Veðurguðirnir voru í hátíðarskapi í gær þegar Borgnesingar og nærsveitungar fögnuðu 150 ára afmæli kaupstaðarins. Af því tilefni hélt sveitarstjórn sérstakan hátíðarfund í Kaupangi, elsta húsi Borgarness, en í húsinu er nú rekin ferðaþjónusta í nafni Egils Guesthouse. Björn Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar stýrði fundi og var raunar sá eini sem tók til máls. Fagnaði…Lesa meira

true

Dagsektir lagðar á þar til endurbætur hafa farið fram

Matvælastofnun hefur lagt dagsektir á bónda á Suðurlandi vegna aðbúnaðar nautgripa og sauðfjár á bænum. Um endurtekið brot er að ræða án þess að kröfur stofnunarinnar um úrbætur hafi verið virtar. Matvælastofnun krafðist úrbóta á búinu í lok síðasta árs vegna útigangs nautgripa og aðbúnaðar í fjárhúsum og fjósi. Við eftirlit í janúar og mars…Lesa meira

true

Spáð er hvassviðri í dag og éljagangi í kvöld

Búast má við snörpum vindhviðum, eða allt að 30 m/s, við fjöll suðvestantil á landinu í dag. Varar Vegagerðin við hvössum strengjum t.d. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli fram eftir degi. Einnig má búast við stormi eða roki og vindhviðum allt að 35 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á norðvestanverðu landinu fram eftir degi.…Lesa meira