Fréttir

true

Heilbrigðisráðherra lagði söfnuninni fyrir Anítu lið

Eins og greint var frá í Skessuhorni á miðvikudag hefur Pauline McCarthy á Akranesi hrundið af stað söfnun fyrir vinkonu sína, Anítu Gunnarsdóttur og fjölskyldu hennar. Aníta er sex barna móðir sem glímir við erfið veikindi og gæti þurft að gangast undir heilaskurðaðgerð í haust. Aðgerðin er áhættusöm og gæti orðið til þess að Aníta…Lesa meira

true

Flandrafólk kom hlaupagikknum og afmælisbarninu á óvart

Í gær var þrítugasti Flandraspretturinn hlaupinn í Borgarnesi og voru ýmis tímamót í hlaupinu að þessu sinni. Hlaupahópurinn Flandri stendur fyrir þessum fimm kílómetra keppnishlaupum þriðja fimmtudag í mánuði frá október til mars, alls sex sprettir á vetri. Í vetur er að ljúka fimmta hlaupatímabilinu. Fyrir nokkrum vikum fóru félagar í Flandra að ræða það…Lesa meira

true

Svæðistónleikar Nótunnar verða um helgina

Fernir svæðistónleikar Nótunnar 2017, uppskeruhátíðar tónlistarskóla, fara fram um þessa helgi. Hátt í fimmhundruð nemendur frá tónlistarskólum af öllu landinu taka þátt. Sjö framúrskarandi tónlistaratriði á hverjum svæðistónleikum fyrir sig fá sérstakar viðurkenningar og verðlaunagrip Nótunnar. Þau atriði öðlast jafnframt þátttökurétt á lokahátíð Nótunnar, þriðja og síðasta hluta uppskeruhátíðarinnar, sem verður haldin 2. apríl í…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Akraness mótmælir áfengisfrumvarpinu

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag, með sex atkvæðum og hjásetu þriggja bæjarfulltrúa, áskorun til þingmanna um að fella frumvarp um afnám einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis og að heimila áfengisauglýsingar. Tillöguna fluttu Valgarður L Jónsson og Ingibjörg Valdimarsson frá Samfylkingunni. Við afgreiðslu málsins sátu hjá þrír bæjarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn, þau…Lesa meira

true

Ekki verður kjallari undir fimleikahúsi

Ekki verður gert ráð fyrir kjallara undir nýju fimleikahúsi sem til stendur að byggja við Vesturgötu á Akranesi. Bæjarráð Akraneskaupstaðar svaraði á fundi sínum í gær fyrirspurn frá Hnefaleikafélagi Akraness þar sem félagið falaðist eftir afnotum af kjallara undir fimleikahúsinu ef til kemur að það verði byggt. Bæjarráð svaraði erindi félagsins með þeim hætti að…Lesa meira

true

Sönghópurinn Hljómeyki á Akranesi

„Yfir vorgrænan völl…“ er yfirskrift tónleika sem sönghópurinn Hljómeyki heldur í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi mánudagskvöldið 20. mars kl. 20.30.  Á efnisskránni er m.a. tónlist eftir Emil Thoroddsen og Hildigunni Rúnarsdóttur auk verka eftir ítalska tónskáldið Bruno Bettinelli og Englendinginn Ralph Vaughan Williams. Þá verða fluttar þjóðlagaútsetningar eftir Snorra Sigfús Birgisson og Ungverjann György Ligeti…Lesa meira

true

Boða til íbúafundar um stækkun Grunnskólans í Borgarnesi

Mánudaginn 20. mars klukkan 20 stendur Borgarbyggð fyrir íbúafundi í Hjálmakletti. Þar verða kynntar tillögur hönnuðar um viðbyggingu við Grunnskólann í Borgarnesi og tillögur um lagfæringar á eldri mannvirkjum. Á undanförnum mánuðum hefur veirð unnið að útfærslu hönnunar á viðbyggingu við skólann, skipulagsmálum á byggingarreit og öðru sem tengist þessu stóra verkefni. Hér er um…Lesa meira

true

Sumarskóli Háskólans á Bifröst eftirsóttur

„Við erum búin að fá 22 gildar umsóknir, en yfir 50 hafa borist í heildina,“ segir Karl Eiríksson alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst um aðsókn að sumarskóla háskólans. Sumarskólinn felst í námskeiðinu „Sustainable Future: Creative Leadership in the 21st Century,“ sem útleggst á íslensku sem Sjálfbær framtíð: Skapandi forysta á 21. öldinni. Skólinn fer fram 8.…Lesa meira

true

Gleðin sem gjöf nefnist sýning Steinu Matt í Gerðubergi

Steinunn Matthíasdóttir í Búðardal sýnir glaðleg portrett af eldri borgurum á sýningu sem opnuð verður í Gerðubergi um helgina. Í kynningu segir að sýningunni sé ætlað að draga athygli að virðingu fyrir þeim sem eldri eru og lífsgæðum þeirra, mikilvægi þess að finna gleðina sama hvernig lífið leikur okkur og vekja fólk til umhugsunar um hvernig…Lesa meira

true

Biggest Loser fluttur í Borgarfjörðinn

Framleiðendur sjónvarpsþáttaraðarinnar Biggest Loser hafa ákveðið að næsta þáttaröð verði tekin upp í Borgarfirði og verður heimili keppenda á Bifröst. Þetta er í fjórða skipti sem upptökur fara fram en hingað til hafa þættirnir verið teknir upp á Ásbrú í Reykjanesbæ. Að sögn Jóns Hauks Jenssonar leikstjóra hjá Saga Film, sem framleiðir þættina, eru bundnar…Lesa meira