Fréttir

true

Snæfell tryggði sér deildarmeistaratitilinn

  Snæfell tryggði sér á föstudag deildarmeistaratitil Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með góðum útisigri á botnliði Grindavíkur. Eftir erfiða byrjun náðu Snæfellskonur yfirhöndinni í öðrum fjórðungi og héldu forystunni allt til loka. Þær sigruðu með tólf stigum, 65-77. Grindavík byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 15-4 um miðjan fyrsta leikhluta. Snæfellskonur létu…Lesa meira

true

Borgarráð samþykkti að auglýsa ferjusiglingar til Akraness

Á fundi borgarráðs Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag var lagt fram bréf borgarstjóra þar sem óskað var eftir að borgarráð samþykkti auglýsingagögn vegna fyrirhugaðrar siglingar farþegaferju milli Reykjavíkur og Akraness næsta sumar. Gert er ráð fyrir að í siglingarnar verði notuð ferja sem tekið gæti 50-200 farþega. Hver sigling tæki 30-45 mínútur. Samþykkt var með fjórum atkvæðum…Lesa meira

true

Stóraukinn stuðningur við Safetravel verkefnið

Ráðuneyti ferðamála og Samtök ferðaþjónustunnar skrifuðu í síðustu viku undir samstarfssamning við Slysavarnafélagið Landsbjörg sem felur í sér stóraukinn stuðning við verkefnið Safetravel. Samningurinn hljóðar upp á 35 milljónir króna á ári og er til þriggja ára til viðbótar því fjármagni sem Slysavarnafélagið Landsbjörg leggur til verkefnisins árlega auk ómælds tíma og vinnu sem sjálfboðaliðar…Lesa meira

true

Bjóða ferðafólki að kynnast íslenska hestinum í návígi

Hrafnhildur Guðmundsdóttir og Jóhannes Kristleifsson á Sturlu-Reykjum í Reykholtsdal eru um þessar mundir að undirbúa opnun ferðaþjónustufyrirtækis í hestatengdri ferðaþjónustu. Mun það bera heitið Visiting HorseFarm. Þar verður tekið á móti ferðamönnum og þeim gefinn kostur á að komast í návígi við íslenska hestinn. Skessuhorn hitti Hrafnhildi að máli á dögunum og fékk að heyra…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning opnuð á afmæli Borgarness

Miðvikudaginn 22. mars verða 150 ár síðan Borgarnes fékk verslunarleyfi og forsendur urðu þar fyrir myndun þéttbýlis. Þann dag verður opnuð ný sýning í Safnahúsi Borgarfjarðar og hefur hún hlotið heitið „Tíminn gegnum linsuna“. Þar verða sýndar ljósmyndir sem fjórir ljósmyndarar hafa tekið í Borgarnesi á 20. öld. Val á ljósmyndum og textagerð er í…Lesa meira

true

Líklega hætt að innheimta gjald í göngin í júlí 2018

Aðalfundur Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, fór fram síðastliðinn föstudag. Þar kom fram að líklegt er að hætt verði að innheimta veggjald í Hvalfjarðargöngum í júlí 2018. „Tekjur af umferðinni eru umfram áætlanir og Spölur greiðir upp skuldir sínar fyrr en gert var ráð fyrir,“ segir í tilkynningu um fundinn. Í lögfestum samningi Spalar…Lesa meira

true

Skafrenningur á fjallvegum

Nú er hálka eða hálkublettir allvíða á vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og skafrenningur á nokkrum fjallvegum. Veðurspá gerir ráð fyrir norðaustan 10-18 m/s og snjókomu og skafrenningi á norðan- og austanverðu landinu, allt frá Vestfjörðum til austurs að sunnanverðum Austfjörðum.Lesa meira

true

Írskir vetrardagar standa nú yfir á Akranesi

Dagana 16. – 18. mars eru Írskir vetrardagar haldnir í annað sinn á Akranesi. Markmiðið með hátíðinni er að efla þekkingu og tengsl Akurnesinga við írska arfleifð sína sem og að kynna hana fyrir gestum. Í morgun fór írska tónlistarkonan Elaine Ní Cuana í heimsókn á leikskóla kaupstaðarins þar sem hún lék írsk lög og…Lesa meira

true

Samherjar í verkalýðsbaráttu stilla saman strengi

Ragnar Þór Ingólfsson nýkjörinn formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur heimsótti höfuðstöðvar Verkalýðsfélags Akraness í dag. Eins og fram hefur komið hefur Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness lýst eindregnum stuðningi við kjör Ragnars og segir hann pólitískan samferðamann sinn í verkalýðsbaráttunni. „Það liggur fyrir að hér er um að ræða afar mikilvægan bandamann í baráttunni fyrir hinum ýmsu…Lesa meira