Fréttir

true

Af hverju ertu ekki uppi í húsi að vinna?

Hjónin Hrefna Daníelsdóttir og Páll Gísli Jónsson festu nýverið kaup á einbýlishúsi á tveimur hæðum við Heiðarbraut á Akranesi. Undanfarna daga og vikur hafa þau staðið í ströngu við að undirbúa flutning fjölskyldunnar. Eins og gengur og gerist þegar fólk kaupir fasteign vill það gjarnan breyta einhverju eftir eigin höfði. Hrefna og Palli eru þar…Lesa meira

true

Matarmarkaður Búrsins verður í Hörpunni um helgina

Hinn árlegi Matarmarkaður Búrsins verður í Hörpunni í Reykjavík um næstu helgi, frá klukkan 11-17 bæði laugardag og sunnudag. Fjölmargir af frambærilegustu smáframleiðendum landsins kynna þar vörur sínar og þær nýjungar sem eru á markaði. Þar má nefna súkkulaði úr kakóbaunum frá Tansaníu, ljúffengir lambabitar úr Breiðdal, hráfæði úr Eyjafirði og kartöflusnakk. „Allir ættu að…Lesa meira

true

SamVest sendi lið til keppni á Bikarmóti FSÍ

Við í SamVest erum afar stolt yfir því að hafa sent lið til Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir 15 ára og yngri, sem fram fór sunnudaginn 12. mars í Laugardalshöllinni. Bikarkeppnin er liðakeppni í frjálsum íþróttum, þar sem keppt er í sjö greinum í piltaflokki og sjö greinum í stúlknaflokki, auk boðhlaups. Keppendur eru 15 ára…Lesa meira

true

Snæfell styrkir stöðu sína á toppi deildarinnar

Úrslitakeppni Dominosdeildar kvenna í körfuknattleik hófst í gær með fjórum leikjum. Valur sigraði Grindavík og Keflvíkingar rótburstuðu Njarðvík. Vesturlandsliðin voru misheppin í leikjum sínum, lánið lék með Snæfelli á sama tíma og Skallagrímskonur töpuðu sínum leik með minnsta mun. Stjarnan sótti Snæfell heim í Hólminn og lyktaði viðureign liðanna með sigri heimastúlkna 79:76 sem hafa…Lesa meira

true

Næst verður keppt í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni

Föstudagskvöldið 17. mars verður keppt í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi og hefst klukkan 19.00. Ráslisti verður þessi: Þórdís Fjeldsted – Snjólfur frá Eskiholti – Fasteignamiðstöðin Styrmir Sæmundsson – Halla frá Fremri-Gufudal – Gufudaldur/Arnbjörg/Söðulsholt Berglind Ragnarsdóttir – Ómur frá Brimilsvöllum – Leiknir/Skáney Marie Greve Rasmussen…Lesa meira

true

Íslandsmót iðn- og verkgreina hefst í dag

Það verður líf og fjör í Laugardalshöllinni dagana 16. – 18. mars en nú er að hefjast, í fjórða sinn, Íslandsmót iðn- og verkgreina. Hátt í 200 ungmenni munu keppa um að hljóta nafnbótina Íslandsmeistari í 25 iðngreinum. Sigurvegarar eiga margir hverjir kost á að keppa síðan við þá bestu í sinni grein á Evrópumóti…Lesa meira

true

Húsmæðraskólinn á Varmalandi verður hótel

Um þessar mundir er unnið hörðum höndum að því að breyta gamla Húsmæðraskólanum á Varmalandi í hótel sem áætlað er að opnað verði í sumar. Skessuhorn var á ferðinni í Borgarfirði á dögunum og ræddi við Bjarna Þór Ólafsson, verkefnis- og byggingarstjóra og Hauk Birgisson, rekstrarstjóra Hótels Varmalands, um framkvæmdina. „Hér er verið að breyta…Lesa meira

true

Á Vesturland fara 116 milljónir til umhverfisverkefna

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun styrkja vorið 2017. Alls eru veittir styrkir til 58 verkefna á landsvísu og nemur heildarfjárhæð þeirra 610 milljónum króna. Þar af renna tæplega 116 milljónir til 13 verkefna á Vesturlandi, eða sem nemur 19% af úthlutun sjóðsins. Að auki hefur ráðherra…Lesa meira

true

Aukin kaupgleði en minni umsvif fataverslunar

Aukinn kaupmáttur og vaxandi væntingar er jafnan ávísun á aukna kaupgleði. Þess sjást meðal annars merki í neyslu á mat og drykk. Í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að í febrúar var velta dagvöruverslana 3% meiri en í sama mánuði í fyrra og að jafnaði hefur velta dagvöruverslana aukist um 6% síðustu 12 mánuði.…Lesa meira