Fréttir

true

Næst verður keppt í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni

Föstudagskvöldið 17. mars verður keppt í gæðingafimi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg í Borgarnesi og hefst klukkan 19.00. Ráslisti verður þessi: Þórdís Fjeldsted – Snjólfur frá Eskiholti – Fasteignamiðstöðin Styrmir Sæmundsson – Halla frá Fremri-Gufudal – Gufudaldur/Arnbjörg/Söðulsholt Berglind Ragnarsdóttir – Ómur frá Brimilsvöllum – Leiknir/Skáney Marie Greve Rasmussen…Lesa meira

true

Íslandsmót iðn- og verkgreina hefst í dag

Það verður líf og fjör í Laugardalshöllinni dagana 16. – 18. mars en nú er að hefjast, í fjórða sinn, Íslandsmót iðn- og verkgreina. Hátt í 200 ungmenni munu keppa um að hljóta nafnbótina Íslandsmeistari í 25 iðngreinum. Sigurvegarar eiga margir hverjir kost á að keppa síðan við þá bestu í sinni grein á Evrópumóti…Lesa meira

true

Húsmæðraskólinn á Varmalandi verður hótel

Um þessar mundir er unnið hörðum höndum að því að breyta gamla Húsmæðraskólanum á Varmalandi í hótel sem áætlað er að opnað verði í sumar. Skessuhorn var á ferðinni í Borgarfirði á dögunum og ræddi við Bjarna Þór Ólafsson, verkefnis- og byggingarstjóra og Hauk Birgisson, rekstrarstjóra Hótels Varmalands, um framkvæmdina. „Hér er verið að breyta…Lesa meira

true

Á Vesturland fara 116 milljónir til umhverfisverkefna

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um úthlutun styrkja vorið 2017. Alls eru veittir styrkir til 58 verkefna á landsvísu og nemur heildarfjárhæð þeirra 610 milljónum króna. Þar af renna tæplega 116 milljónir til 13 verkefna á Vesturlandi, eða sem nemur 19% af úthlutun sjóðsins. Að auki hefur ráðherra…Lesa meira

true

Aukin kaupgleði en minni umsvif fataverslunar

Aukinn kaupmáttur og vaxandi væntingar er jafnan ávísun á aukna kaupgleði. Þess sjást meðal annars merki í neyslu á mat og drykk. Í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að í febrúar var velta dagvöruverslana 3% meiri en í sama mánuði í fyrra og að jafnaði hefur velta dagvöruverslana aukist um 6% síðustu 12 mánuði.…Lesa meira

true

Vill skoða að lagt verði umhverfisgjald á ruslpóst

Andrés Ingi Jónsson alþingismaður VG í Reykjavík hefur lagt fram fyrirspurn á þingi til umhverfisráðherra um kostnað almennings við förgun óumbeðins ruslpósts. Andrés Ingi segir fyrirspurn sína sprottna vegna umræðna á samskiptasíðunni Betri Reykjavík. „Þar hefur mikið verið rætt um ruslpóst og meðal annars er velt upp þessari spurningu: „Hvað ætli fari mörg tonn af…Lesa meira

true

Góður rekstur UMSB á liðnu ári

Síðastliðinn laugardsag var 95. sambandsþing UMSB haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi. Dagskrá þingsins var hefðbundin samkvæmt lögum sambandsins og fengum við góða gesti í tilefni þingsins. Gunnlaugur Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar færði kveðjur frá ÍSÍ en hann situr í stjórn ÍSÍ og Guðmundur Sigurbergsson færði kveðju UMFÍ ásamt því að hann veitti Írisi Grönfeldt starfsmerki UMFÍ…Lesa meira

true

Ævar Þór einn af bestu barnabókahöfundum Evrópu

Barnabókahöfundurinn Ævar Þór Benediktsson er á lista yfir 39 bestu evrópsku barnabókahöfundana, undir 39 ára aldri. Var þetta kynnt á alþjóðlegu bókamessunni London Book Fair sem nú fer fram í London. Um er að ræða svokallaðan Aarhus 39-lista og er Ævar Þór eini Íslendingurinn á listanum. Ævar er staddur í London til að veita viðurkenningunni…Lesa meira

true

Brimrún Eir tryggði sér silfur á Íslandsmeistaramóti

Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri lauk um síðustu helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Eins og áður fjölmenntu ÍA klifrarar á mótið og stóðu sig með prýði. Í unglingaflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir fyrir ÍA. Fyrir mótið var hún í öðru sæti og þurfti því að klifra vel til að verja sitt sæti. Hún lauk keppni með 147…Lesa meira