Fréttir

true

Háskóladagurinn á Akranesi á morgun

Á morgun, föstudag klukkan 10 til 12, verður Háskóladagurinn í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þar munu allir háskólar landsins kynna námsleiðir sínar, sem eru yfir 500 talsins, og námsráðgjafar og nemendur verða á staðnum. „Kynningin hér á Akranesi tókst frábærlega í fyrra og því erum við sérstaklega spennt að koma aftur,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri…Lesa meira

true

Búsetukjarna verður fundin lóð

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 2. mars síðastliðinn, var skipulags- og umhverfissviði bæjarins falið að finna lóð undir byggingu nýs búsetukjarna fyrir fólk með fötlun á Akranesi. Búsetumál fólks með fötlun á Akranesi voru til umræðu í Skessuhorni í síðustu viku. Faðir manns sem býr að sambýlinu við Laugarbraut gagnrýndi bæjarfélagið fyrir að sambýlið væri…Lesa meira

true

Félag eldri borgara í Snæfellsbæ í stærra og hentugra húsæði

Félag eldri borgara í Snæfellsbæ opnaði nýja og glæsilega handverksaðstöðu síðastliðinn laugardag á efri hæð hússins við Kirkjutún 2 í Ólafsvík, á hæðinni yfir Átthagastofunni. Með tilkomu þessa nýja húsnæðis batnar aðstaða félagsins til muna enda er það bæði stærra og bjartara. Undanfarna mánuði hafa félagar lagt á sig mikla vinnu við að færa húsnæðið…Lesa meira

true

Randi sigraði í fimmgangskeppninni

Randi Holaker á Skáney hafði sigur í hnífjöfnum fimmgangsúrslitum Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum, en keppt var á föstudaginn í Faxaborg. Lið Leiknis/Skáneyjar hafði sigur í liðakeppninni þriðja mótið í röð og bætir því enn við forystu sína.   Í einstaklingskeppninni urðu úrslit þessi: Randi Holaker – Þytur frá Skáney – 6,38 Konráð Valur Sveinsson – Þeldökk…Lesa meira

true

Slitnir Strengir gefa út nýjan disk

Þjóðlagasveitin Slitnir Strengir undir stjórn Skúla Ragnars Skúlasonar hefur unnið hörðum höndum að útgáfu nýs geisladisks undanfarið ár. Diskurinn kemur út föstudaginn 17. mars og mun sveitin halda tvenna útgáfutónleika á Akranesi helgina 17. – 18. mars á Akranesi. Verkefnið var fjármagnað með styrkjum í gegnum styrktarsíðuna Karolinafund, ásamt styrki frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Almenningur tók…Lesa meira

true

Frumsýna Hafið í Brautartungu á föstudagskvöldið

Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar í Lundarreykjadal hefur frá því um áramótin æft leikverkið Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson. Æfingar og sýningar fara fram í félagsheimilinu Brautartungu og verður verkið frumsýnt næstkomandi föstudagskvöld. Leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir. Í uppfærslunni taka þátt sautján leikarar en alls er á fjórða tug sem kemur að uppfærslunni með einum eða…Lesa meira

true

Minnist Gullaldarliðsins – Íslandsmeistaranna 1951 sem ruddu brautina

“Árið 1951 er á ýmsan hátt tímamótaár í íslenskri knattspyrnu. Þar komu Akurnesingar mikið við sögu. Knattspyrnan á Íslandi breyttist. Nýr leikstíll var innleiddur af Akurnesingum. Á þessu ári vann íslenska landsliðið einn sinn fræknasta sigur þegar það lagði sænska landsliðið 4 – 3. Í liðinu voru tveir Akurnesingar, þeir Ríkharður Jónsson og Þórður Þórðarson.…Lesa meira

true

Stykkishólmur í samtökum gamalla Hansabæja

Nú hafa 187 bæjarfélög í 16 löndum myndað samtök gamalla Hansabæja. Sveitarfélög þessi eiga þann sameiginlega menningarsögulega bakgrunn að hafa verið Hansabæir á miðöldum. Hansasambandið var bandalag verslunarborga, aðallega í Norður-Þýskalandi, sem tókst að koma á einokun í verslun á Eystrasalti og um alla Norður-Evrópu. Í byrjun 15. aldar fóru þýskir Hansa kaupmenn að versla…Lesa meira

true

Fimmtíu ára björgunarsveit

Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði varð 50 ára í liðnum mánuði, en stofnfundur sveitarinnar var haldinn í Logalandi 18. febrúar 1967 og voru um 50 skráðir stofnfélagar. Starfssvæðið er nú sem fyrr sveitirnar norðan Skarðsheiðar ásamt Hvítársíðu. Það mun hafa verið síðsumars 1966 að fólk í uppsveitum Borgarfjarðar fór að ræða það í fullri alvöru að…Lesa meira

true

Sóttu eyjafé

Um liðna helgi fór vaskur hópur smala í sjóferð út í eyjuna Sellón á Breiðafirði. Þangað voru sóttar tæplega fimmtíu kindur frá Ögri og fluttar í land. Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari slóst með í för og má nánar lesa um ferðina í Skessuhorni sem kom út í dag.Lesa meira