Fréttir

true

Aron Hannes tók Eurovisionlagið í Grundaskóla

Söngvarann Aron Hannes Emilsson úr Grundarfirði leit við í Grundaskóla á Akranesi að morgni síðasta miðvikudags. Hann komst sem kunnugt er í úrslitaþátt í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarspsstöðva sem sýnt hefur verið frá á RÚV undanfarið. Í keppninni flytur hann lagið Nótt, eða Tonight eins og það hefur verið nefnt upp á enska tungu. Aron…Lesa meira

true

Ný stjórn Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í gær var Guðrún Hafsteinsdóttir í Kjörís endurkjörin formaður SI með 91% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2018. Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetu og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem  setjast í stjórn til næstu tveggja ára eru Katrín Pétursdóttir í…Lesa meira

true

Mottudagurinn er í dag

Í dag, föstudaginn 10. mars, hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr! Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini í körlum. Markmið átaksins í ár er að auka þekkingu á skaðsemi tóbaksnotkunar og hvetja þá karla sem…Lesa meira

true

Færðu Heiðarsmönnum og leikdeildarfólki glaðning

Konur í Kvenfélagi Hvítársíðu fóru í gærkvöldi í heimsókn til félaga í Björgunarsveitinni Heiðari sem hefur aðsetur á Varmalandi. Kvenfélagskonur færðu björgunarsveitinni 150 þúsund króna gjafabréf en auk þess heitt súkkulaði, pönnukökur og kleinur til að lífga upp á stjórnarfund sem þá stóð yfir. Að vonum var vel tekið á móti gestunum. „Við fengum að…Lesa meira

true

Steinþór mun hefja rekstur 19. holunnar á Garðavelli

Í liðinni viku var samið við Steinþór Árnason um veitingarekstur í golfskála Golfklúbbsins Leynis fyrir komandi sumar. Steinþór er fæddur og uppalinn Skagamaður, búsettur á Akranesi en tekur nú í fyrsta sinn að sér rekstur í heimabænum. „Ég er menntaður bakari og konditor frá Danmörku og með meistaragráðu í hótelstjórnun. Undanfarinn áratug hef ég rekið…Lesa meira

true

Hvalveiðar ekki stundaðar næsta sumar

Sterkt gengi íslensku krónunnar og viðskiptahindranir með vöruútflutning til Japans eru helstu ástæður þess að veiðar á langreyði verða ekki stundaðar frá Hvalfirði sumarið 2017. Engar veiðar voru heldur í fyrrasumar, en sumarið 2015 bárust á land 155 langreyðar. Allt að 150 manns höfðu þá atvinnu af veiðum og vinnslu hvalaafurða og er því um…Lesa meira

true

Komu að læstum dyrum eftir hléið

Skallagrímur mætti Keflavík í stórleik Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík í gærkvöldi. Skallagrímur var sterkari framan af leik en um miðjan þriðja leikhluta skellti heimaliðið í lás í vörninni, komst yfir og stakk svo af á lokamínútunum. Lokatölurnar gefa því ekki alveg rétta mynd af þróun leiksins. Keflavík vann 72-51. Jafnræði…Lesa meira

true

Tíu sigrar í röð hjá Snæfelli

Leikið var í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Snæfell mætti Haukum á Ásvöllum og bar öruggan sigur úr býtum, 60-75 eftir að hafa verið sterkari allan leikinn. Var þetta tíundi sigur Íslandsmeistaranna í röð í Domino‘s deildinni. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu. Þær byrjuðu af krafti og voru komnar í 2-9 þegar…Lesa meira

true

Iðkar hnit og teiknar vegi eftir hnitum

Birgitta Rán Ásgeirsdóttir er tæknifræðingur hjá Vegagerðinni í Borgarnesi. Þar hannar hún vegi og vinnur að því að bæta umferðaröryggi á Vestursvæði, sem nær yfir Vesturland og Vestfirði. Þegar hún er ekki í vinnunni þykir henni gaman að grípa í spaða og spila badminton, eða hnit eins og íþróttin hefur verið kölluð á íslensku. Íþróttin…Lesa meira

true

Bændasamtök Íslands hefja innheimtu félagsgjalda

Bændasamtök Íslands sendu í vikunni út reikninga og greiðsluseðla upp á 42.000 krónur þar sem innheimt er nýtt Búnaðarsamtakagjald. Allir sem eiga aðild að einu eða fleiri búnaðarsamtökum, búgreinum eða samtökum ungra bænda fá slíkan reikning. Þeir eru því ekki eingöngu sendir starfandi bændum, heldur öllum sem eiga aðild að einhverju sérgreinafélagi, svo sem í…Lesa meira