Fréttir

true

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi álykta um samgöngumál

„Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárveitingum til vegabóta. Í landshlutanum voru áætlaðar aðeins tvær nýframkvæmdir á árinu 2017, annars vegar áframhaldandi framkvæmdir við veg um Uxahryggi og hins vegar framkvæmdir við veg um Skógarströnd. Samtals voru þetta framkvæmdir fyrir um 450 m.kr.,“ segir í upphafi ályktunar sem stjórn SSV samþykkti…Lesa meira

true

Borgfirsk ungmenni sporðrenndu Agli sterka eftir æfingu

Keppni í Skólahreysti grunnskólanna hér á landi hefst í næstu viku. Nemendur frá ellefu skólum á Vesturlandi keppa á þriðjudaginn í TM höllinni í Garðabæ. Þar ræðst hvaða skóli verður fulltrúi Vesturlands í lokakeppninni sem fram fer í Laugardalshöllinni 26. apríl. Tólf skólar munu keppa til úrslita. Á meðfylgjandi mynd er keppnislið frá Grunnskóla Borgarfjarðar…Lesa meira

true

Ármann Smári leggur skóna á hilluna

Ármann Smári Björnsson fyrirliði meistaraflokks karla hjá ÍA til margra ára hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og mun ekki spila fyrir liðið í sumar. Ármann Smári meiddist illa undir lok síðustu leiktíðar þegar hann sleit hásin í leik gegn KR. Hann var staðráðinn í því að snúa aftur á völlinn í sumar, eins…Lesa meira

true

Misstu leikinn frá sér eftir hléið

Snæfell og Þór Ak. mættust í síðustu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Leikið var á Akrueyri. Sem kunnugt er varð fall Snæfells óumflýjanlegt í febrúar en Þór háði harða baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Eftir dapran fyrri hálfleik beggja liða gerðu heimamenn út um leikinn með góðum kafla í þriðja leikhluta. Þeir…Lesa meira

true

Mótmælir of háu kostnaðarþaki í greiðsluþátttöku sjúklinga

Í umræðu á Alþingi í liðinni viku um greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskostnaði  kom fram í máli heilbrigðisráðherra að árlegt kostnaðarþak yrði á bilinu 50 til 70 þúsund ári frá og með 1. maí næstkomandi. ASÍ kallar eftir því að staðið verði við fyrirheit um 50.000 kr. þak eins og lagt var upp með. „Heilbrigðisráðherra verður…Lesa meira

true

Fermingarblað í næstu viku

Með Skessuhorni í næstu viku fylgir árlegt Fermingarblað sem helgað er þessum merku tímamótum í lífi unga fólksins. Fyrstu fermingar á Vesturlandi verða sunnudaginn 19. mars en fermt verður í landshlutanum fram á vor. Þeim auglýsendum sem vilja nýta sér blaðið er bent á að hafa samband við auglýsingadeild í síma 433-5500 eða með því…Lesa meira

true

Eldur kom upp í loftpressu bormanna

Slökkvilið Borgarbyggðar var í gær kallað að borstað Orkuveitu Reykjavíkur vestan við Rauðsgil, í landi Steindórsstaða í Reykholtsdal. Þar logaði eldur í loftpressu sem bormenn Trölla, frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða, nota við starf sitt. Slökkvistarf gekk greiðlega en loftpressan er talin ónýt. Á þessum stað á sér stað borun eftir meira neysluvatni til að…Lesa meira

true

„Lélegt og vanburða vegakerfi með tilheyrandi slysagildrum“

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í að lýsa vonbrigðum með niðurskurð ríkisstjórnarinnar til samgöngumála: „Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun samgönguyfirvalda að skera alfarið niður allar þær framkvæmdir í Borgarbyggð og Vesturlandi öllu sem fyrirhugaðar voru á árinu 2017 samkvæmt nýsamþykktri Samgönguáætlun. Halda átti áfram langþráðri uppbyggingu Uxahryggjarvegar ásamt því að…Lesa meira

true

Sækja þarf um greiðslumark í mjólk fyrir 4. apríl

Matvælastofnun hefur kynnt að skilafrestur umsókna um innlausn og kaup á greiðslumarki í mjólk er 4. apríl næstkomandi. Fram kemur að kaupendur þurfa að skila greiðslu í síðasta lagi 20. apríl. Innlausnarverð á innleystu greiðslumarki er 138 krónur á lítra. „Matvælastofnun greiðir fyrir innleyst greiðslumark eigi síðar en 15. maí 2017. Ársgreiðsla fyrir greiðslumark er…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn kvöddu hljóðlega

Síðasta umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik var leikin í gær. Skallagrímur mætti Grindavík suður með sjó. Borgnesingar voru fallnir fyrir leikinn og höfðu því ekki að neinu að keppa. Þeir virkuðu hálf andlausir á köflum, enda erfitt að gíra sig upp fyrir leik sem engu máli skiptir. Fór að lokum svo að heimamenn höfðu…Lesa meira