Fréttir

true

Birkið er sligað og brotið af snjóþunga

Glöggir vegfarendur um Hafnarskóg hafa tekið eftir því að birkið í skóginum er illa farið eftir snjóinn sem féll aðfararnótt 26. febrúar síðastliðinn. Gera má ráð fyrir að svipaðar aðstæður séu víðar í landshlutanum þar sem mikið snjóaði þessa nótt en eftir það hefur veður verið hæglátt þannig að snjórinn hefur ekki fokið til. Jón…Lesa meira

true

Ný reglugerð um samræmd próf í grunnskólum

Frá því síðasta haust hefur á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis verið unnið að breytingum á reglugerð um framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla. Helstu breytingar frá gildandi reglugerð eru þær að samræmd könnunarpróf eiga að vera einstaklingsmiðuð, þ.e. laga sig að getu nemandans miðað við frammistöðu hans á prófinu.…Lesa meira

true

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands opnar heimasíðu og kynnir lógó

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur nú fengið lógó og opnað heimasíðu. „Lengi hafa fundargerðir heilbrigðiseftirlitsins verið birtar á heimasíðu SSV, en heilbrigðisteftirlitið sjálft ekki verið með slíka síðu. Markmiðið með nýrri heimasíðu er að bæta upplýsingastreymi til íbúa á Vesturlandi ásamt því að fræða og leiðbeina fólki hvert það skal snúa sér þegar kemur að heilbrigðis- og…Lesa meira

true

Heimtu átta kindur af Botnsheiði

Síðastliðinn sunnudag fór Friðjón Guðmundsson bóndi á Hóli í Svínadal við fjórðamann frá Hóli til smalamennsku á Botnsheiði. Sést hafði til útigenginna kinda. Að sögn Friðjóns fundu þeir átta kindur syðst á afréttinum við Sellæk skammt frá Hvalvatni. Kindurnar reyndust vera frá tveimur bæjum í Hvalfjarðarsveit og einum bæ í Lundarreykjadal, tvær fullorðnar og sex…Lesa meira

true

Úrskurðað að of dýrt sé að koma ábúanda í netsamband

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur staðfest ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 5/2016 um fjarskiptasamband ábúanda í Strandasýslu. Málið varðar réttinn til alþjónustu á sviði fjarskipta, en erindi barst PFS frá ábúanda í Strandasýslu þar sem óskað var eftir svörum við því hvenær von væri á síma- og háhraðatengingu líkt og allir landsmenn ættu rétt á.…Lesa meira

true

Mjög góð loðnuveiði við Snæfellsnes

Rífandi gangur er í loðnuveiðunum við Snæfellsnes þessa dagana. Skip HB Granda; Víkingur AK og Venus NS, skiptast á um að sigla að landi á Akranesi með hæfilegan farm og stöðug vinnsla er í gangi í húsum fyrirtækisins. Loðnan er flokkuð, hrygnan skorin og hrogn fryst, en annað fer í bræðslu. Hráefni er auk þess…Lesa meira

true

Æfingabúðir í frjálsum haldnar á Laugum

Um helgina voru æfingabúðir í frjálsum íþróttum á vegum SamVest samstarfsins haldnar á Laugum í Sælingsdal. 32 krakkar mættu frá fjórum félögum; HSS, Skipaskaga, Víkingi Ólafsvík og UDN. Æfingabúðirnar gengu mjög vel að sögn forsvarsmanna samstarfsins. Þeir Hermann og Kormákur frá FH sáu um æfingarnar á laugardeginum og Eva Kristín frá Víkingi Ólafsvík, Sigríður Drífa…Lesa meira

true

KR-ingar urðu deildarmeistarar í Hólminum

Snæfell tók á móti Íslandsmeisturum KR í næstsíðustu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Gestirnir gátu með sigri í leiknum tryggt sér deildarmeistaratitilinn, sem þeir og gerðu. Eftir góða byrjun Snæfellinga tóku KR-ingar stjórn leiksins í sínar hendur og sigruðu að lokum örugglega, 67-87. Snæfellingar fóru vel af stað gegn Íslandsmeisturunum og léku…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn fallnir

Skallagrímur tók á móti Þór Þ. í næstsíðasta leik Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur þurfti á sigri að halda í leiknum og jafnframt að treysta á hagstæð úrslit í leik Stjörnunnar og Hauka til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni, en Borgnesingar háðu harða baráttu við síðarnefnda liðið…Lesa meira

true

Zontakonur styrkja Endó-samtökin

Næstkomandi miðvikudagur, 8. mars, er alþjóðabaráttudagur kvenna. Af því tilefni ætla konur í Zontaklúbbi Borgarfjarðar – Uglu, að selja gulu slaufuna til styrktar samtökum um sjúkdóminn endómetríósu (legslímuflakk). Zontakonur munu verða í Hyrnutorgi Borgarnesi og fyrir utan Bónus á Akranesi kl. 17:00-18:00 þennan dag. Zonta International er alþjóðleg hreyfing/samtök sem vinna að því að bæta…Lesa meira