Fréttir

true

Búið að lýsa GMR gjaldþrota

Fyrirtækið GMR Endurvinnslan ehf. á Grundartanga var tekið til gjaldþrotaskipta í Héraðsdómi Vesturlands 31. janúar. Öllum starfsmönnum fyrirtækisins, eða 17 talsins, var sagt upp störfum föstudaginn áður, eins og greint var frá í Skessuhorni í síðustu viku. Starfsemi fyrirtækisins var á sviði málmendurvinnslu, en þar var endurunnið stál sem féll til í ýmsum iðnaði hér…Lesa meira

true

Hálka á vegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að nú er hálka eða hálkublettir á vegum á Vesturlandi en snjóþekja er á Bröttubrekku.Lesa meira

true

Gunnlaugur Hlynur gengur í raðir Víkingsmanna

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur skrifað undir samning um kaup á leikmanninum Gunnlaugi Hlyni Birgissyni frá uppeldisfélagi hans Breiðabliki. Samningurinn er til tveggja ára og gildir því út keppnistímabilið 2018. Gunnlaugur lék með Víkingi Ólafsvík seinni hluta tímabilsins 2015 og spilaði á þeim tíma tíu leiki og átti drjúgan þátt í að koma liðinu upp í…Lesa meira

true

Borgarbyggð vill heldur ekki selja

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni hafnaði bæjarráð Akraneskaupstaðar fyrir sitt leyti að selja hlut sinn í Hellisheiðarvirkun, en tilboð um kaup hafði verið sent eigendunum Akraneskaupstað, Borgarbyggð og Reykjavíkurborg. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar sl. fimmtudag var sambærileg ákvörðun tekin og samþykkt að hafna tilboði í sölu á eignarhlut Borgarbyggðar í virkuninni.Lesa meira

true

Halda opinn kynningarfund um skipulagsmál

Á morgun, laugardaginn 4. febrúar, verður haldinn opinn kynningarfundur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar verða kynnt verkefni nemenda við umhverfisskipulagsbraut Landbúnaðarháskóla Íslands um greiningu og framtíðarsýn í Borgarnesi. Á dagskrá eru þrjú umfjöllunarefni; samgöngur í gegnum Borgarnes, þar sem nemendur hafa greint vegagerð í gegnum bæinn og velta því meðal annars fyrir sér hvort hjáleið…Lesa meira

true

Skagamenn fundu aldrei taktinn

ÍA mætti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrir leikinn höfðu liðin mæst tvisvar í deildinni það sem af er vetri og bæði sigrað hvort annað á útivelli. Engin breyting varð á því í gær, því Hamarsmenn unnu nokkuð auðveldan sigur á Skagamönnum, sem…Lesa meira

true

Gestirnir voru sterkari á lokamínútunum

Skallagrímur tók á móti Njarðvík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi meira og minna frá upphafi til enda en að lokum fór svo að Njarðvíkingar höfðu betur, 91-100. Skallagrímsmenn mættu mjög ákveðnir til leiks og komust í 9-0 eftir tveggja mínútna leik en gestirnir jöfnuðu um miðjan upphafsfjórðunginn.…Lesa meira

true

Baráttugleði Snæfells dugði ekki til

Snæfell mætti Stjörnunni í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Garðabæ og það voru heimamenn sem höfðu að lokum betur gegn baráttuglöðum Hólmurum, 101-77. Leikmenn Snæfells léku með sorgarbönd á búningum sínum í leiknum, í minningu um Birgi Pétursson, ungan manns úr Stykkishólmi sem lést þegar snjóflóð féll í Esjuhlíðum á…Lesa meira

true

Bjóða samstarf um fjármögnum og uppbyggingu ferðamannastaða

Félagið Bergrisi og Verkís verkfræðistofa standa saman að stofnun fyrirtækisins Sannir Landvættir. Markmiðið með stofnun félagsins er stuðla að uppbyggingu á ferðamannastöðum um land allt í samvinnu við fyrirtæki, landeigendur, sveitarfélög og ríki. Sannir Landvættir bjóða upp á fjármögnun, hönnun og framkvæmd við uppbyggingu ferðamannastaða án kostnaðar eða útgjalda fyrir landeigendur. Íslandsbanki er bakhjarl verkefnisins…Lesa meira

true

Tillaga um breytt nýtingarhlutfall lóða

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi í gær að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 – Miðsvæði. Í bókun frá fundinum segir að tillagan sé sett fram á uppdrætti og greinagerð dags. 31.1.2017 og feli í sér breytingu fyrir götureit innan miðsvæðis Borgarness M. „Innan miðsvæðis verður skilgreindur götureitur þannig að úr…Lesa meira