Fréttir

true

Færeyskur línubátur landaði í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Jákup B frá Klakksvík landaði rúmlega 40 tonnum af fiski í Ólafsvík í dag og fór aflinn til sölu í Fiskmarkaði Íslands. Aflinn fékkst í fimm lögnum vestur af Snæfellsnesi. Að sögn Óskars Melsted sölustjóra fékkst gott verð fyrir fiskinn sem var að mestu þorskur. Fengust 345 krónur fyrir kílóið. Óskar sagði í…Lesa meira

true

Leiknir/Skáney efst eftir fyrstu keppni Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudagskvöldið. Það var liðið Leiknir/Skáney sem hlaut Fjórgangs – liðaplattann fyrir bestan samanlagðan árangur, en fyrir liðið kepptu þau Randi Holaker liðsstjóri, Haukur Bjarnason og Konráð Valur Sveinsson. Randi og Haukur riðu til úrslita og höfnuðu þar í öðru og þriðja sæti…Lesa meira

true

„Orðið er laust“ opin þingmannaviðtöl VG

Þingmenn Vinstri hreifingarinnar græns framboðs boða almenning til skrafs og ráðagerða í höfuðstöðvum hreyfingarinnar á Túngötu 14 í Reykjavík einu sinni í mánuði alveg fram á vor. „Þetta er nýmæli í vinnu þingmanna, sem kynnt er í dag á 18. afmælisdegi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Þetta er hugsað til þess að auka gagnsæi og aðgengi…Lesa meira

true

„Tvisvar í sömu fötum! Er það í lagi?“

Á næstu vikum og mánuðum stendur Náttúrustofa Vesturlands fyrir röð opinna fræðsluerinda um fjölbreytt viðfangsefni sem tengjast umhverfi og náttúru. Erindin verða alls tíu og flutt af nokkrum af helstu sérfræðingum landsins um viðkomandi efni, ýmist heimafólki eða gestum. Það verður Borgnesingurinn Stefán Gíslason hjá UMÍS sem ríður á vaðið með fyrirlestri miðvikudagskvöldið 8. febrúar…Lesa meira

true

Hvassir vindstrengir við fjöll

Veðurstofan býst við stormi, 18-25 m/s víða á sunnan- og suðvestanverðu landinu í dag. Gert er ráð fyrir snörpum vindhviðum meðal annars á Kjalarnesi og á veginum við Hafnarfjall, allt að 35 m/s þegar verst lætur um miðjan dag.Lesa meira

true

Hætta með verslunina Dekurblóm

Þær Kirstín Benediktsdóttir og Auður Vestmann opnuðu verslunina Dekurblóm við Dalbraut á Akranesi haustið 2015. Þær hafa nú ákveðið að loka. „Við í Dekurblómum höfum ákveðið að hætta með verslunina vegna ýmissa ástæðna. Við höfum átt frábæran tíma hérna og langar okkur að þakka þeim sem hafa litið inn til okkar kærlega fyrir öll viðskiptin,“…Lesa meira

true

Snæfell fór illa með botnliðið

Heil umferð var leikin í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Snæfell fór illa með botnlið Grindavíkur þegar liðin mættust í Stykkishólmi í gær. Snæfell hafði yfirhöndina allan leikinn og stakk af í síðari hálfleik. Að lokum fór svo að sigur Snæfells var æði stór, 90-59. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrsta…Lesa meira

true

Sigurganga Skallagríms heldur áfram

Heil umferð var leikin í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik um helgina. Á laugardag mættust Skallagrímur og Njarðvík. Leikið var suður með sjó. Skallagrímskonur voru sterkari allan leikinn en heimaliðið lét þó aðeins finna fyrir sér á köflum í síðari hálfleik. Fór að lokum svo að Skallagrímur sigraði með 13 stigum, 60-73. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina…Lesa meira

true

FVA áfram í Gettu Betur – Mæta MH í kvöld

Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, hófst í síðustu viku. Fyrstu umferð er lokið og tóku allir framhaldsskólarnir á Vesturlandi þátt; Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Menntaskóli Borgafjarðar. FVA bar sigurorð af Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, 23-20 og er kominn áfram í keppninni.  MB mætti liði Menntaskólans við Hamrahlíð og tapaði 36-9 og loks mætti FSN liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja og…Lesa meira

true

Dagur leikskólans er í dag

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í dag í tíunda skipti. Þennan dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið. Dagurinn er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra…Lesa meira