Fréttir

true

Veglokun við Borgarnes í vændum

Sunnudagskvöldið 16. ágúst og mánudagskvöldið 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að Borgarfjarðarbrú, ef veður leyfir. Lokað verður fyrir umferð milli gatnamóta Borgarbrautar/Hringvegar og Borgarfjarðarbrautar á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjá leið um Borgarfjarðarbraut. Merkingar og upplýsingaskilti verða setta upp, en áætlað er að framkvæmdirnar standi…Lesa meira

true

Friðrik snýr heim og tekur við söngkennslu í Stykkishólmi

Hólmarinn Friðrik S. Kristinsson er fluttur aftur heim í Stykkishólm og hefur tekið við starfi söngkennara við Tónlistarskóla Stykkishólms. Friðrik er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri og býr yfir áratugalangri reynslu af tónlistarstarfi. Friðrik er hvað þekktastur fyrir störf sín með Karlakór Reykjavíkur, en þar hefur hann starfað og stjórnað kórnum um langt árabil. Um…Lesa meira

true

Metmánuður í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal

Júlímánuður reyndist einstaklega góður í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal og fór aðsókn fram úr væntingum. Gestir voru fjölmargir allan mánuðinn og hvert aðsóknarmetið féll á fætur öðru. Mesta aðsóknin var um verslunarmannahelgina þegar um 750 gestir lögðu leið sína í miðstöðina. Sundlaugin naut sérstaklega mikilla vinsælda í góða veðrinu, en gestir nýttu einnig líkamsræktina, íþróttasalinn og…Lesa meira

true

Kosið um bestu mynd Hvalfjarðardaga

Rafræn kosning er hafin í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026 en þema keppninnar í ár er „Hvalfjarðarsveit – Allt milli himins og jarðar.“ Alls bárust 120 myndir frá 22 þátttakendum og var þátttaka því afar góð. Menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar valdi á fundi sínum 4. ágúst tíu myndir sem þóttu skara fram úr. Myndirnar verða til sýnis…Lesa meira

true

Leiðrétting á myndatexta

Misritun varð á myndatexta undir mynd af mönnum sem sitja í Soffíu III sem var til sýnis á Hvanneyrarhátíðinni og birtist með myndasyrpu af hátíðinni í Skessuhorni miðvikudaginn 12. ágúst. Jón Pétursson er fremst til vinstri og  Arnar Guðnason til hægri. Nafn þriðja mannsins sem situr aftast er starfsmönnum blaðsins ekki kunnugt um. Þá er…Lesa meira

true

Kristrún á ferð í Bæjarsveit

Á næstu vikum mun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að halda hlustunarfundi vítt um land, þetta kemur fram í færslu á Facebook síðu hennar. Kristrún tekur þar fram að hún sé að koma til að hlusta á ólík sjónarmið og eiga hreinskiptið samtal um hagsmuni Íslands: „Hver eru tækifærin? En áhyggjurnar? Hvernig vinnum við áfram með leiðsögn…Lesa meira

true

Dimmdi snögglega en skýin stálu sýningunni

Múgur og margmenni safnaðist saman við Langasand og víðar á Akranesi síðdegis í dag til að fylgjast með almyrkva á sólu. Þétt skýjahula setti þó strik í reikninginn og hvorki sást til sólar né hinnar tilkomumiklu kórónu hennar. Náttúran bauð engu að síður upp á sérstaka upplifun þegar skyndilega varð nær almyrkvað yfir bænum. Deildarmyrkvinn…Lesa meira

true

Skallagrímur valtaði yfir Þorlák og tryggði sæti í úrslitakeppninni

Skallagrímsmenn fóru á kostum þegar þeir tóku á móti Þorláki á Skallagrímsvelli í Borgarnesi mánudaginn 10. ágúst í 12. umferð A-riðils 5. deildar karla. Heimamenn réðu lögum og lofum frá upphafi og unnu sannfærandi stórsigur, 7:0. Með sigrinum tryggði Skallagrímur sér jafnframt sæti í úrslitakeppni 5. deildar. Borgnesingar gáfu tóninn strax í fyrri hálfleik. Carlos…Lesa meira

true

Danskir dagar lífga upp á Stykkishólm

Danskir dagar hófust kl. 12 í Stykkishólmi í dag. Stendur hátíðin til 16. ágúst og má búast við líflegri hátíðarstemningu í bænum næstu daga. Hátíðin á sér langa sögu, en hún var fyrst haldin árið 1994 og er því ein elsta bæjarhátíð landsins. Danskir dagar hafa fyrir löngu skipað sér fastan sess í menningarlífi Stykkishólms…Lesa meira

true

Undirbúningur á Akranesi vegna rútuferða á almyrkvadag

Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Akranesi í dag og hefur Akraneskaupstaður gefið út sérstakar leiðbeiningar vegna rútuferða til bæjarins. Almyrkvinn mun vara í um eina mínútu og sjö sekúndur á Akranesi. Deildarmyrkvinn hefst kl. 16:46:49 en almyrkvinn sjálfur kl. 17:47:50. Rútufyrirtæki sem hyggjast koma með gesti til Akraness þennan dag eru beðin um að…Lesa meira