Fréttir

true

Bæjarstjóri meðal umsækjanda um starf hjá Reykjavíkurborg

Tíu umsækjendur voru um stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, en frestur til að sækja um starfið rann út 23. janúar sl. Nöfn umsækjenda hafa verið birt á vef Reykjavíkurborgar og vekur athygli að í hópi umsækjenda er Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi. „Já, ég get staðfest að ég sótti um starf sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Ástæðan er…Lesa meira

true

Skaginn 3X er nýtt vörumerki þriggja fyrirtækja

Fyrirtækin Skaginn, 3X Technology og Þorgeir & Ellert verða hér eftir þekkt undir einu sameiginlegu vörumerki; Skaginn 3X. Starfsmönnum fyrirtækjanna var greint frá þessu á fundi á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi síðdegis á föstudag, samhliða því sem ný heimasíða, www.skaginn3x.com, var frumsýnd. „Þessar breytingar eru fyrst og fremst hugsaðar til þess að einfalda og sameina…Lesa meira

true

Íslandspósti heimilað að hækka gjaldskrá um ellefu prósent

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína að samþykkja beiðni Íslandspósts um 11% hækkun gjaldskrár fyrir bréf innan einkaréttar (0 – 50 gr.). Ákvörðunin er rökstudd með að tveir þættir hafa mest áhrif til hækkunar á gjaldskrá innan einkaréttar. Annars vegar hefur verið mikil og stöðug fækkun bréfasendinga en hins vegar hefur launakostnaður Íslandspósts aukist…Lesa meira

true

Málþing framundan um áskoranir við varðveislu báta og skipa

Árið 2015 leitaði bæjarstjóri Akraneskaupstaðar eftir ráðgjöf Þjóðminjasafns Íslands um framtíðarvarðveislu kútters Sigurfara. Í gegnum Þjóðminjasafnið var danskur skipasmiður fenginn til að meta ástand skipsins. Í ljós kom að ástand kútters Sigurfara er afar slæmt og eru flestir viðir þess mikið skemmdir eða ónýtir. Ráðgjöf þjóðminjavarðar var á þá leið að leggja ætti áherslu á…Lesa meira

true

Menn binda vonir við nýjan rannsóknaleiðangur

Fram kom í síðustu viku að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra ákvað að fylgja ráðgjöf Hafrannsóknastofunar um æskilegan hámarksafla á loðnu á komandi vertíð. Það þýðir að heildarkvótinn verður 57.000 tonn en þar af koma einungis 12.100 tonn í hlut íslenskra skipa. Að teknu tilliti til tegundatilfærslna standa aðeins eftir rúmlega 11.500 tonn af loðnu sem…Lesa meira

true

VW söluhæsti bíllinn á svindlári

Þýska Volkswagen bílasamstæðan er nú stærsti bílaframleiðandi heims og hefur velt hinum japanska Toyota af stalli. VW seldi á síðasta ári 10,3 milljónir bíla, en Toyota 10,18 bíla. Einkum er það mikil sala bíla Volkswagen í Kína sem tryggði þeim efsta sætið árið 2016. Þetta gerist þrátt fyrir fréttir á síðasta ári um svindl þar…Lesa meira

true

Banaslys þegar snjóflóð féll í Esjunni

Karlmaður lést og tveir slösuðust þegar snjóflóð féll í hlíðum Esjunnar síðdegis í gær. Fjölmennt lið björgunarsveita, sjúkraliðs, lögreglu og leitarhunda tók þátt í leit að manninum og aðgerðum á fjallinu auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð. Tveir mannanna komust af sjálfsdáðum úr flóðinu. Maðurinn sem lést fannst á áttunda tímanum í gærkvöldi. Snjóflóðið…Lesa meira

true

Skipulagsbreyting gerir ráð fyrir fjölbýlishúsi við Vallholt 5

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur auglýst tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akraness vegna lóðarinnar við Vallholt 5. Breytingin felur í sér að í stað íbúða í tveggja hæða fjölbýlishúsi, sem gætu þjónað nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands, megi byggja fjölbýlishús á tveimur hæðum fyrir almennan markað. Samhliða var auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ægisbrautar vegna sömu lóðar. Breytingin…Lesa meira

true

Skagasigur eftir spennandi síðari hálfleik

ÍA mætti liði FSu í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Selfossi. Eftir góðan fyrri hálfleik Skagamanna komust heimamenn inn í leikinn í þriðja leikhluta og hleypa spennu í leikinn. Skagamenn höfðu þó betur eftir spennandi lokafjórðung, 65-70 og kræktu í fimmta sigur sinn í deildinni. Mikið jafnræði var með liðunum…Lesa meira