Fréttir

true

Æfingar í frjálsum hafnar á Akranesi

Frjálsíþróttaæfingar eru hafnar hjá Ungmennafélaginu Skipaskaga á Akranesi. Æft er í Akraneshöllinni á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:30-19:00 báða dagana. Æfingarnar miðast við aldurinn 6 ára og uppúr. Þjálfari er Ómar Ólafsson og er síminn hans 841-8065. Allir eru velkomnir að taka þátt, segir í fréttatilkynningu frá Umf. Skipaskaga.Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla

Umferðaróhapp varð á Smiðjuvöllum á Akranesi fyrir hádegi í dag, til móts við ÞÞÞ flutningafyrirtækið. Tveir bílar skullu saman á gatnamótum með þeim afleiðingum að önnur bifreiðin valt á hliðina. Að sögn lögreglu urðu engin meiðsl á fólki en báðir bílarnir eru töluvert skemmdir.Lesa meira

true

Skipuleggja dimman föstudag í Borgarbyggð

Þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og Heiður Hörn Hjartardóttir í Borgarnesi hafa boðað athyglisvert verkefni í Borgarbyggð föstudaginn 27. janúar. Hvetja þær til að íbúar í sveitarfélaginu taki hvíld frá raftækjum á föstudaginn og taki þátt í Föstudeginum Dimma.  „Um er að ræða algerlega sjálfsprottna viðburði sem ætlað er að hvetja til umhugsunar um raftækjanotkun, skjátíma…Lesa meira

true

Boðið á ráðstefnu um lyfjanotkun í íþróttum

Síðdegis á morgun, fimmtudag, mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnu um lyfjamál í íþróttum. Fer hún fram klukkan 17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. Í tilkynningu segir að þetta sé einstakt tækifæri til þess að fá að heyra um eitt stærsta málefni…Lesa meira

true

Góð reynsla af vinaliðaverkefni í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Vinaliðarnir í Grunnskóla Snæfellsbæjar fóru í vinaliðaferðina sína í síðustu viku. Vinaliðar eru valdir tvisvar sinnum á ári í 3. til 7. bekk en skólinn tekur þátt í verkefni sem gengur út á að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu í frímínútum og skapa betri skólaanda. Markmiðið er að sem flestir nemendur skólans finni…Lesa meira

true

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar stofnað

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála skrifaði í liðinni viku undir samning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Stjórnstöð ferðamála, á grundvelli samþykktar Alþingis frá því í október 2016, um verkefnið Hæfnisetur ferðaþjónustunnar. Í Vegvísi í ferðaþjónustu frá því haustið 2015 var lögð áhersla á sjö þætti til að byggja traustan grunn fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi og…Lesa meira

true

Stál í stál og verkfall sjómanna heldur áfram

Þegar samninganefndir sjómanna og SFS komu saman í dag að nýju eftir sex daga viðræðuhlé varð fljótlega ljóst að aðilar voru ekki að ná saman. Slitnaði því upp úr viðræðum sjómanna og SFS og hefur nýr fundur ekki verið boðaður í deilunni. Samningsaðilar vísa hvor á annan sökinni að málum er svona komið. Samtök útgerðarmanna…Lesa meira

true

ÍA átti erfitt uppdráttar gegn sterku Fjölnisliði

ÍA lék öðru sinni á fjórum dögum þegar liðið heimsótti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudag. Liðin berjast á sitthvorum enda deildarinnar, Skagamenn við botninn en Fjölnir við toppinn. Á brattann var að sækja fyrir ÍA í leiknum og Skagamenn áttu erfitt uppdráttar gegn sterku Fjölnisliði. því heimamenn voru sterkari og leiddu…Lesa meira

true

Skallagrímskonur feti framar Stjörnunni

Skallagrímur mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Borgarnesi og voru Skallagrímskonur í miklu stuði á heimavelli. Þær voru sterkari allan leikinn og leiddu frá upphafi til enda. Að lokum fór svo að þær höfðu fimm stiga sigur, 79-74. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stig leiksins en hann fór heldur rólega…Lesa meira