Fréttir

true

Ætlar að bjóða upp á dáleiðslu í Borgarnesi

Á næstunni gefst Borgnesingum og íbúum nágrannabyggðarlaga kostur á að panta sér tíma í dáleiðslu og sækja námskeið í sjálfsdáleiðslu. Það er Ingibjörg Bernhöft hjúkrunarfræðingur og dáleiðslufræðingur sem ætlar að bjóða þjónustuna í húsnæði Blómasetursins – Kaffi kyrrðar við Skúlagötu 13 í Borgarnesi. Ingibjörg hefur unnið við dáleiðslu frá 2011 en hjúkrun er hennar ævistarf.…Lesa meira

true

Einn af fáum girðingaverktökum á Vesturlandi

Baldur Árni Björnsson er bóndi í Múlakoti í Lundarreykjadal og einn af fáum girðingaverktökum á Vesturlandi. Hann hefur ýmislegt fengist við um ævina; verið til sjós, keyrt leigubíl, verið með fjölbreyttan búskap, tamið hross og nú síðast hafið uppeldi hænsnfugla. Girðingum hefur hann potað niður og haldið við í tvo áratugi. Skessuhorn hitti Baldur að…Lesa meira

true

Nýtti gamlársdag vel

Birta Sigþórsdóttir úr HSH gerði sér lítið fyrir og setti stúlknamet í kúluvarpi innanhúss á gamlársdag. Birta er úr Stykkishólmi, fædd 2003 og keppti í flokki 13 ára stúlkna. Hún tók þátt í Coca Cola móti FH í Kaplakrika í Hafnarfirði og bætti gildandi Íslandsmet í sínum aldursflokki þegar hún kastaði 2 kg kúlu 14,48…Lesa meira

true

Snorri er ný jarðræktarráðunautur með starfsstöð á Hvanneyri

Snorri Þorsteinsson frá Kvíum í Þverárhlíð hóf nýverið störf sem jarðræktarráðunautur hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins. Starfsstöð Snorra er á Hvanneyri, en þar er hann jafnframt búsettur. „Ég byrjaði í fullu starfi á áramótum en hef í haust unnið nokkur verkefni svona aðeins til að kynnast starfinu,“ segir Snorri í samtali við Skessuhorn. Aðspurður segir hann að…Lesa meira

true

Taldi sig vera á tveggja akreina vegi

Meðal verkefna Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku má nefna að fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt og reyndist um smávægileg meiðsli að ræða í þeim. Þó var einn sem lenti í bílveltu fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka en hann var ekki talinn mikið slasaður. 23 voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu og nokkrir ökumenn…Lesa meira

true

Menntskælingar skrifa í Skessuhorn

Síðastliðinn miðvikudag kom Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns, í heimsókn í félagsfræðitíma í Menntaskóla Borgarfjarðar til þess að kynna fyrir nemendum starfsemi Skessuhorns og starf blaðamanna. Nemendurnir lærðu heilmikið af þessari heimsókn og vilja þakka Magnúsi kærlega fyrir fróðlega kynningu. Á næstunni muni nemendurnir síðan skrifa nokkrar fréttir í Skessuhorn sem munu birtast á vef Skessuhorns…Lesa meira

true

Rakel Óskarsdóttir er nýr formaður SSV

Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi á Akranesi, tók við formennsku Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi á áramótum. Hún tók við stöðu formanns af Kristínu Björgu Árnadóttur, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, en Kristín kvaddi nýlega bæjarstjórn vegna flutninga frá Snæfellsbæ. Rakel hefur verið bæjarfulltrúi á Akranesi frá árinu 2014 og verið varaformaður stjórnar SSV frá hausti sama árs.Lesa meira

true

Verkar og selur lamba- og ærkjöt

Það hefur verið í nógu að snúast hjá Kristínu Helgu Ármannsdóttur, bónda á Ytra-Hólmi í Hvalfjarðarsveit. Hún byrjaði að verka lamba- og ærkjöt til sölu síðasta haust og hefur vart náð að stoppa síðan hún byrjaði. „Það eru mörg ár síðan mér datt þetta í hug. Mig fór að langa að prófa að reykja kjöt.…Lesa meira

true

Upplýsingamiðstöð í höfuðborginni færð í Ráðhúsið

Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur á mánudaginn en miðstöðin hefur verið starfrækt í Aðalstræti 2 frá árinu 2002. „Flutningur Upplýsingamiðstöðvarinnar er liður í því að nýta húsnæði í eigu borgarinnar enn betur og auka þjónustu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Miðstöðin er á jarðhæð Ráðhússins þar sem gönguás liggur í gegnum húsið en…Lesa meira

true

Hið íslenska bókmenntafélag flyst í Bændahöllina

Hið íslenska bókmenntafélag mun flytja starfsemi sína í Bændahöllina við Hagatorg í Reykjavík í maímánuði 2017. Skrifað hefur verið undir leigusamning til 15 ára milli Bændahallarinnar ehf. og Hins íslenska bókmenntafélags. Bókmenntafélagið verður á jarðhæð í austurhluta sem snýr að Landsbókasafninu og lóð Húss íslenskra fræða. Húsnæðið er hannað af Hornsteinum arkitektum og munu framkvæmdir…Lesa meira