Fréttir

true

Ný verslana- og þjónustumiðstöð ferðamanna á teikniborðinu

Fyrirtækið Borgarland ehf., sem er í eigu Kaupfélags Borgfirðinga, hefur nú lokið við að láta frumhanna tvær byggingar á lóðina Digranesgötu 4 í Borgarnesi, en þessa óbyggðu lóð hefur fyrirtækið ráðið yfir síðan 2005. Borgarland hafði verið tilbúið með fullhannaðar húsbyggingar á þessari lóð fyrir bankahrun, teiknaðar af Ingimundi Sveinssyni, og voru þær í stíl…Lesa meira

true

Lögreglan nýtur samstarfs útgerðar grænlenska togarans

Eins og fram kom í nokkrum fjölmiðlum í gærkvöldi hefur lögregla til rannsóknar hvort einn eða fleiri áhafnarmeðlima á grænlenska togaranum Polar Nanoq geti mögulega veitt upplýsingar um rannsókn á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, tvítugrar stúlku sem saknað hefur verið frá því á laugardagsmorgun. Togaranum hefur nú verið snúið af leið og er væntanlegur til Íslands…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Íslands endurnýjar kælikerfi

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í slægingar- og flokkunarstöð Fiskmarkaðs Íslands í Rifi. Má þar helst nefna endurnýjun kælikerfis sem á að halda hráefninu köldu í móttökunni við bestu mögulegu aðstæður. Kælikerfið er gríðarlega öflugt og er stefnt á að kerfinu verði stýrt með þeim hætti að það sé keyrt á fullum afköstum þegar hráefni…Lesa meira

true

„Ég fór í pólitík til þess að hafa áhrif“

Skagakonan Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var á dögunum skipuð ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Í kosningum til Alþingis skipaði hún annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og varð fyrsta konan sem er kosin beint á þing af þeim lista í kjördæminu. Þegar hún var skipuð ráðherra varð hún jafnframt yngsta konan…Lesa meira

true

Stefán Bjarnason fyrrverandi yfirlögregluþjónn er 100 ára í dag

Stefán Bjarnason, fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Akranesi, fagnar hundrað ára afmæli í dag. Stefán fæddist á Sauðárkróki 18. janúar 1917 en býr nú á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Hann segir heilsuna vera ágæta og þakkar langlífið fimleikunum sem hann byrjaði að stunda ungur og æfingum sem hann gerir enn á hverjum degi. „Mér líður…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í undanúrslitum bikarsins

Í dag var dregið í undanúrslitum Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ, en undanúrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöll miðvikudaginn 8. febrúar næstkomandi. Stórleikur undanúrslitanna er Vesturlandsslagur Skallagríms og núverandi bikarmeistara Snæfells í bikarkeppni kvenna. Snæfell sigraði Stjörnuna 68-63 í spennandi leik í átta liða úrslitum á sunnudagskvöld en Skallagrímur valtaði yfir KR, 78-42 á mánudag. Liðin eru bæði í…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel í Rifshöfn

Framkvæmdir í Rifshöfn hafa að undanförnu gengið vel miðað við aðstæður, en veðrið hefur ekki verið upp á það besta fyrir framkvæmdir af þessu tagi. Nú þegar er búið að reka niður 28 plötur, eða 42 metra, af þeim 200 metrum sem reka á niður í þessum áfanga. Vegna framkvæmdanna hefur hluta af bryggjunni verið…Lesa meira

true

Hálka eða hálkublettir á öllum vegum

Á vegum á Vesturlandi er nú hálka eða hálkublettir á flestum leiðum, samkvæmt samantekt Vegagerðarinnar. Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði og þæfingur á Bröttubrekku. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja eru á vegum Vestfjörðum og  éljagangur, þæfingur á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði. Þungfært er á Klettshálsi og þæfingur á KleifarheiðiLesa meira

true

Skallagrímur fór létt með 1. deildar liðið

Skallagrímur tryggði sér sæti í undanúrslitum Maltbikars kvenna í gærkvöldi með öruggum sigri á 1. deildar liði KR. Snemma leiks varð ljóst að ærin ástæða er fyrir því að liðin spila í sitthvorri deildinni. Skallagrímsliðið var einfaldlega miklu betra og vann að lokum mjög stóran sigur, 78-42. KR skoraði fyrstu körfur leiksins og leiddi 5-2…Lesa meira

true

Marel gefur sundbolta á Vesturland

Marel hefur nú sent sundbolta til bæjarfélaga þar sem Marel fiskvinnslutækni hefur verið innleidd. „Það er fátt íslenskara en upphituð sundlaug, nema ef til vill fiskvinnsla. Sundlaugar má finna í flestum bæjarfélögum á Íslandi og þær eru mikilvægur samkomustaður allan ársins hring. Marel sér fjölda fyrirtækja um allt land fyrir háþróuðum tæknibúnaði til fiskvinnslu. Samstarf…Lesa meira