Fréttir

true

Gjaldtaka af ferðamönnum blasir við

Umræðan um hvort taka eigi gjald af ferðamönnum hefur verið áberandi í þjóðfélaginu undanfarin misseri. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er rætt um verkefni sem meðal annars eiga að stuðla að „dreifingu ferðamanna um land allt og skynsamlegri gjaldtöku, t.d. með bílastæðagjöldum,“ eins og það er orðað í sáttmálanum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð…Lesa meira

true

Brexit-hópur grágæsa hefur hér vetursetu

Heill herskari grágæsa sást í gær á flugi og á beit í Leirár- og Melasveit í Borgarfirði. Þrátt fyrir rok og skafrenning var engu líkara en gæsirnir væru búnar að gleyma að þær eru farfuglar og virtust una hag sínum vel þótt veðrið væri dæmigert fyrir upphaf Þorra. Gæsirnar sáust fyrir hádegi í oddaflugi áleiðis…Lesa meira

true

Grundfirðingur sigurvegari í Vísnakeppni grunnskólanna

Margrét Helga Guðmundsdóttir nemandi í 7. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar varð hlutskörpust nemenda á miðstigi í Vísnasamkeppni grunnskólanna sem Menntamálastofnun stóð fyrir. Það kom í hlut Unnar Birnu Þórhallsdóttur íslenskukennari Margrétar Helgu að afhenda henni viðurkenningarskjal og bókaverðlaun frá Menntamálastofnun. Vísubotninn sem Margrét fær verðlaunin fyrir er hér:   Mér finnst gott að hlæja hátt, hafa…Lesa meira

true

Mannamót markaðsstofanna stendur nú yfir

Markaðsstofur landshlutanna í ferðamálum standa í dag fyrir ferðasýningunni Mannamót 2017 í flugskýli Ernis við Reykjavíkurflugvöll. Tilgangurinn með þessum degi er að auka dreifingu ferðamanna um landið allt með því að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Þrátt fyrir fjölgun ferðamanna til landsins á seinni árum eru enn mörg ónýtt sóknarfæri á…Lesa meira

true

Verðlaunamyndir til sýnis í Safnahúsinu

Síðastliðinn laugardag var opnuð ný sýning í Safnahúsinu í Borgarnesi; ljósmyndasýning með verkum eftir ellefu myndhöfunda. Allt eru það áhugaljósmyndarar og myndefnið er umhverfi og mannlíf í Borgarnesi á árinu 2016. Markmiðið með samkeppninni var að fanga sjónarhorn ólíkra ljósmyndara á mannlíf og umhverfi Borgarness árið 2016 sem undanfara að afmælisári. Leit dómnefnd jafnt til…Lesa meira

true

Fundað á morgun með sjómönnum á Akranesi

Síðastliðinn þriðjudag var ákveðið að fresta samningaviðræðum milli sjómanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fram til næsta mánudags. Stéttarfélög sjómanna hafa nýtt tímann í vikunni og fundað með sjómönnum. Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til fundar á morgun, föstudag, með þeim sjómönnum sem tilheyra félaginu. Að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA verður farið yfir stöðuna og…Lesa meira

true

Túnkort eru forsenda fyrir landgreiðslum og jarðabótastyrk

Samkvæmt nýjum búvörusamningum geta bændur nú sótt um bæði jarðabótastyrki og landgreiðslur. Þar er skilyrt að færð sé uppskera í skýrsluhaldskerfið jörð.is og að teiknuð hafi verið túnakort fyrir hvert lögbýli sem nýtt eru til fóðuröflunar. Skrá þarf síðan uppskeru í jörð.is. Á vefsíðu Búnaðarsamtaka Vesturlands segir að landgreiðslur séu greiddar út á allt land…Lesa meira

true

Glatt á hjalla í aldarafmælisveislu Stefáns Bjarnasonar

Eins og greint var frá í Skessuhorni fagnaði Stefán Bjarnason, fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Akranesi, hundrað ára afmæli sínu í gær. Stefán fæddist á Sauðárkróki 18. janúar 1917 en ólst upp á Siglufirði frá níu ára aldri. Hann byrjaði í lögreglunni á Siglufirði tvítugur að aldri en hóf störf hjá lögreglunni á Akranesi þegar hann var…Lesa meira

true

Kirkjubraut 28 til sölu

Fasteignin við Kirkjubraut 28 á Akranesi er nú auglýst til sölu. Um er að ræða stórt skrifstofuhúsnæði á þremur hæðum, ásamt þakrými og kjallara. Alls er eignin 1.652 fermetrar að stærð. „Þetta eru í dag fimm rými sem eru í útleigu en á efstu hæðinni er tómt rými sem væri hægt að stúka niður. Þetta…Lesa meira

true

Snjóa mun drjúgt síðdegis

Á milli klukkan 15 og 17 í dag mun snjóa nokkuð drjúgt suðvestanlands í fremur hægum vindi. Úrkomubakki gengur þá yfir til norðurs og hlánar í kjölfar hans. Með ofankomunni dregur úr skyggni og hægir á umferð.  Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir nú sé hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suðurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum…Lesa meira