Fréttir

true

Sigurður tekur við starfi framkvæmdastjóra UMSB

Sigurður Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB). Hann tekur til starfa 1. febrúar næstkomandi af Pálma Blængssyni sem er á förum úr Borgarnesi. Sigurður er Hvanneyringur að uppruna og býr þar. Hann starfaði síðast sem verkefnastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) og hefur þar komið að skipulagningu stórra viðburða á borð við Reykjavíkurmaraþonið. Hann hefur…Lesa meira

true

Fyrrum aðstoðarskólameistara dæmdar bætur vegna uppsagnar

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað skömmu fyrir áramót upp þann dóm að íslenska ríkinu bæri að greiða Hafliða Páli Guðjónssyni 6,5 milljónir króna auk dráttarvaxta og málskostnaðar, vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi aðstoðarskólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands haustið 2015. Hafliði hafði starfað sem kennari við skólanna allt frá árinu 1998 en árið 2015 sótti hann um og fékk stöðu…Lesa meira

true

Skagamenn öruggir Vesturlandsmeistarar í bridds

Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds var spilað á Hesti í Borgarfirði um liðna helgi. Sex sveitir voru skráðar til leiks. Fimm þeirra höfðu keppnisrétt til að spila um þrjú sæti Vesturlands í undankeppni Íslandsmótsins í bridds. Hart var barist um þessi sæti og rafmögnuð spenna í síðustu setunni þegar úrlit loks réðust. Spennan um fyrsta…Lesa meira

true

Þór sigldi með neysluvatn í Flatey

Varðskipið Þór var í gær við störf við Flatey á Breiðafirði en heimamenn höfðu haft samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eyjunni. Alla jafnan er það flóabáturinn Baldur sem annast þessa vatnsflutninga en hann er eins og kunnugt er bilaður í höfn og verður það framundir mánaðamót. Áhöfn Þórs dældi þrjátíu tonnum af ferskvatni…Lesa meira

true

Valdís Þóra Jónsdóttir er Íþróttamaður Akraness 2017

Kjöri Íþróttamanns Akraness 2017 var lýst í gærkvöldi eftir að þrettándabrennu og flugeldasýningu lauk á Jaðarsbökkum. Það skyldi engum koma á óvart að Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, hlýtur þetta sæmdarheiti að þessu sinni. Hún náði á nýliðnu ári besta árangri íslenskra kylfinga þegar hún komst á verðlaunapall á tveimur stórmótum erlendis. Var þetta…Lesa meira

true

Glóð leyndist í flugeldakerrunni

Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað út á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna elds sem logaði í flugeldakerru björgunarsveitarinnar Lífsbjargar. Kerran stóð á hafnarsvæðinu í Rifi þegar eldsins varð vart. Vegfarandinn, Davíð Óli Axelsson fyrrum formaður sveitarinnar, kom fyrstur á svæðið og náði hann að mestu að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettfang. Engin hætta…Lesa meira

true

Hlánar skart í dag – reiknað með hvassviðri og hálku

Nú í morgun var hálka, snjóþekja og þæfingur á vegum víða á Vesturlandi. Snjókoma og éljagangur var all víða, en Vegagerðin segir stórhríð vera á Útnesvegi á Snæfellsnesi. Þá er vakin athygli á aukinni hálku á vegum þegar hlýnar í dag, einkum á fáfarnari vegum. Það hvessir síðdegis og hviður verða á veginum við Hafnarfjall,…Lesa meira

true

Tilraun tvö til að fella efnissílóin mistókst

Laust eftir klukkan 16 í dag var reynt að nýju að sprengja efnissílóin á lóð Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Ein kraftmikil sprenging kvað við, en sílóin högguðust ekki. Tilraunin mistókst því. Hér má sjá upptöku af sprengingunni í dag.Lesa meira

true

Reynt verður að klára að fella efnissílóin á morgun, laugardag

Akraneskaupstaður vekur í tilkynningu athygli íbúa á að fyrirhugað er að fara í frekari aðgerðir við að fella efnissílóin fjögur á lóð Sementsverksmiðjunnar á morgun, laugardaginn 6. janúar á meðan bjart er. Ekki er gefin upp nákvæmari tímasetning hvenær sprengt verður, en gera verður ráð fyrir því að ef tekst að fella sílóin má búast…Lesa meira

true

Björn Bergmann til FC Rostov

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur verið seldur frá Molde í Noregi til rússneska úrvalsdeildarliðsins FC Rostov. Greint var frá félagaskiptunum á heimasíðu Molde í dag. Björn er 26 ára gamall og hefur leikið með Molde frá því sumarið 2016 og var markahæsti leikmaður liðsins á liðnu keppnistímabili með 16 mörk. Þá var hann enn fremur…Lesa meira