Fréttir

true

Hvassviðrið gengur niður fyrir hádegi í dag

Áfram verður hvasst suðvestanlands framundir hádegi í dag. Vindur í hviðum verður áfram milli 30 og 40 m/sekúndu á þekktum vindastöðum, svo sem á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að greiðfært sé um alla vegi á Vesturlandi, en hálkublettir í innsveitum.Lesa meira

true

Ísilögð Rifshöfn

Talsvert fros var á landinu fyrstu viku ársins. Víða hefur því ís náð að myndast á ám og vötnum. Ekki er algengt að ís nái að myndast í höfnum þó vissulega gerist það. Meðfylgjandi miðsvetrarmynd tók Alfons Finnsson í Rifshöfn í liðinni viku.Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Blóðsöfnun frestað

Blóðbanki Íslands ætlaði í dag að vera á ferðinni á Akranesi með blóðbankabílinn, en því hefur sökum veðurs verið frestað um einn dag. Bíllinn verður að óbreyttu við Ráðhúsplandið, Stillholti 16-18 á Akranesi frá klukkan 10-17 á morgun. Blóðgjafar eru hvattir til að mæta og láta tappa af sér smá slurk, sem getur orðið lífgjöf…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri í fyrramálið

Veðurstofan varar við hvassviðri í fyrramálið. Það gengur í suðaustan hvassviðri eða storm fyrst suðvestanlands seint í kvöld og nótt með talsverðri eða mikilli rigningu suðaustanlands á morgun. Því má víða búast við slæmu ferðaveðri og hálku á vegum. Einkum er búist við snörpum hviðum undir morgun á Reykjanesi, undir Eyjafjöllum og við fjöll við…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í kaflaskiptum Vesturlandsslag

ÍA tók á móti Snæfelli í Vesturlandsslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gær, sunnudaginn 7. janúar. Leikurinn var kaflaskiptur mjög, Skagamenn heilt yfir sterkari í fyrri hálfleik og leiddu í hléinu. Snæfell var hins vegar sterkara í síðari hálfleik og vann að lokum með 103 stigum gegn 85. Snæfell hafði heldur yfirhöndina á upphafsmínútum…Lesa meira

true

Kláruðu leikinn í lokafjórðungnum

Skallagrímur vann góðan útisigur á Njarðvík í fyrsta leik liðsins eftir jólafrí síðastliðinn laugardag. Eftir jafnan leik framan af kláraði Skallagrímur leikinn í fjórða leikhluta og sigraði, 61-76. Jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en Skallagrímur jafnaði í 6-6 og eftir það fylgdust liðin að. Undir lok leikhlutans náðu Skallagrímskonur síðan…Lesa meira

true

Skattbreytingar um áramót bæta hag hátekjuhópa sexfalt meira en annarra

Um áramót hækkaði persónuafsláttur til samræmis við hækkun á verðlagi undanfarið ár en efri tekjumörk hækkuðu til samræmis við launavísitölu, eins og lög gera ráð fyrir. Alþýðusamband Íslands hefur ítrekað vakið athygli á þessu ósamræmi í framkvæmd skattkerfisins, sem leiðir kerfisbundið til aukins tekjuójafnaðar. Þannig nam hækkun persónuafsláttur 1,9% um áramótin, fór úr 52.907 kr.…Lesa meira

true

Snæfell stigalaust í fjórða leikhluta

Keppni í Domino‘s deild kvenna hófst að nýju eftir jólafrí síðastliðinn laugardag. Í Stykkishólmi tóku Snæfellskonur á móti Keflavík. Leikurinn var mjög einkennilegur, Snæfell leiddi með tíu stigum í hléinu en afleitur síðari hálfleikur varð til þess að liðið varð á endanum að sætta sig við stórt, 53-80. Báðum liðum gekk hálf illa að fóta…Lesa meira

true

Hálka á öllum vegum

Samkvæmt yfirlitssíðu Vegagerðarinnar um færð á Vesturlandi má glöggt sjá að hálka er á öllum vegum í landshlutanum. Flughált er á Skógarstrandarvegi, hálkublettir á Útnesvegi og við Hafnarfjall, en að öðru leyti er hálka á öllum vegum. Sömuleiðis er flughált á gönguleiðum við hús og inni í byggð og er fólk hvatt til að fara…Lesa meira

true

Erill í Grundarfjarðarhöfn vegna ófærðar á Vestfjörðum

Það var mikið um að vera í Grundarfjarðarhöfn í gær en þá myndaðist biðröð eftir löndun í höfninni. Þá voru þrír bátar sem áttu að landa í Ísafjarðarhöfn en þurftu frá að hverfa vegna ófærðar um landveginn á Vestfjörðum. Þá var brugðið á það ráð að sigla til Grundarfjarðar og landa þar en þaðan var…Lesa meira