Fréttir

true

Söngbræður boða til árlegrar sviða- og söngveislu

Karlakórinn Söngbræður heldur sína árlegu, þjóðlegu sviða- og hrossakjötsveislu í Þinghamri á Varmalandi í Stafholtstungum, laugardaginn 13. janúar kl. 20:00. Að sögn Gunnars Arnar Guðmundssonar formanns kórstjórnar hafa sviðin verið pöntuð frá Kópaskeri líkt og fyrri ár. Bæði hafa þau reynst væn og hæfilega sviðin af þeim Þingeyingum. „Ungu hrossin tvö, til veislunnar ætluð, voru…Lesa meira

true

369 listamönnum úthlutað 600 milljónum úr ríkissjóði

Úthlutunarnefndir Launasjóðs listamanna hafa lokið störfum vegna úthlutunar listamannalauna árið 2018. Nefndirnar starfa samkvæmt reglugerð um listamannalaun, þar sem kveðið er á um að allar umsóknir fái sanngjarna umfjöllun. Til úthlutunar voru 1.600 mánaðarlaun, en starfslaun listamanna eru 377.402 kr. á mánuði samkvæmt fjárlögum þessa árs, alls rúmlega 600 milljónir króna. Um verktakagreiðslur er að…Lesa meira

true

Hækka tómstundaframlög barna

Frá nýliðnum áramótum hækkar tómstundaframlag Akraneskaupstaðar um tíu þúsund krónur og verður framlag kaupstaðarins til íþrótta- og tómstundaiðkunar barna 35.000 krónur fyrir eitt barn. Tómstundaframlagið hækkar síðan um 25% fyrir annað barn og aftur um 25% við þriðja barn. Framlagið skiptist því þannig að foreldri með eitt barn fær 35.000 kr., foreldri með tvö börn…Lesa meira

true

Andlát: Sigurður Lárusson knattspyrnumaður

Sigurður Lárusson, skipasmíðameistari og fyrrum knattspyrnumaður, lést miðvikudaginn 3. janúar síðastliðinn 63 ára að aldri eftir skyndileg veikindi. Sigurður fæddist á Akureyri 26. júní 1954 og var kvæntur Valdísi Ármann Þorvaldsdóttur. Hann lék knattspyrnu með Akureyrarliðinu og síðan Þór áður en hann hóf að leika með ÍA árið 1979. Var hann einn af lykilmönnum í…Lesa meira

true

Skýrsla væntanleg um einkarekna fjölmiðla

Síðar í þessum mánuði er væntanleg skýrsla starfshóps sem Illugi Gunnarsson þáverandi menntamálaráðherra skipaði til að fjalla um bætt rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Skýrslan hefur verið lengi í smíðum, átti upphaflega að koma út fyrir vorið 2017, þá fyrir jól, en nú hefur fréttavefurinn mbl.is það eftir Björgvin Guðmundssyni formanni nefndarinnar að skýrslan sé nú komin…Lesa meira

true

Stefnir í framkvæmdir við Þjóðgarðsmiðstöð eftir 12 ára bið

Breytingartillaga fjárlaganefndar Alþingis þess efnis að veita 150 milljónum króna í Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi á árinu 2018, var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum við aðra umræðu fjárlaga 22. desember síðastliðinn. „Þetta gerir það að verkum að hægt verður að setja fullan kraft í framkvæmdir á árinu 2018 og reikna má með að miðstöðin verði tilbúin…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði í fyrsta leik ársins

Fyrsti leikur nýja ársins í 1. deild karla í körfuknattleik fór fram í Borgarnesi í gærkvöldi. Þar tóku heimamenn í Skallagrími á móti Gnúpverjum og sigruðu, 101-80. Skallagrímsmenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiksins og leiddu með þremur stigum um miðjan fyrsta leikhluta, 16-13. Þá náðu Gnúpverjar smá rispu og komust tveimur stigum yfir, 18-20…Lesa meira

true

Sami stigabónus til leikmanna A landsliða karla og kvenna

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur endurskoðað fyrirkomulag á árangurstengdum greiðslum (stigabónusum) til leikmanna A landsliðanna vegna leikja í undankeppnum stórmóta. Upphæðir sem greiddar eru til leikmanna fyrir áunnin stig í undankeppnum stórmóta verða nú þær sömu óháð því hvort lið er um að ræða. Hingað til hefur fyrirkomulagið milli A landsliða karla og kvenna verið gerólíkt…Lesa meira

true

Forsetahjónin ánægð með heimsóknina í Dalina

Eins og Skessuhorn greindi frá fyrir jól kom forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson í opinbera heimsókn í Dalabyggð dagana 6. og 7. desember ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid, og föruneyti. Í kjölfar heimsóknarinnar sendi fréttaritari Skessuhorns forsetahjónunum fáeinar spurningar sem þau gáfu sér tíma til að svara. Aðspurð hvort þau hjónin hafi verið kunnug Dölunum…Lesa meira

true

„Staðir allt um kring“ – sýning opnuð í Safnahúsi

Myndlistarsýning Guðrúnar Helgu Andrésdóttur verður opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar kl. 13.00 á morgun, laugardaginn 6. janúar. Guðrún Helga býr í Borgarnesi og á ættir að rekja í uppsveitir Borgarfjarðar og til Suður-Þingeyjarsýslu; dóttir Þorgerðar Kolbeinsdóttur frá Stóra-Ási og Andrésar Kristjánssonar ritstjóra.  Guðrún hefur lagt stund á myndlist um margra ára skeið og sótt sér margvíslega…Lesa meira