Fréttir

true

Ísland í sterkum riðli á HM

Rétt í þessu var dregið var í riðla fyrir Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi næsta sumar. Íslenska karlalandsliðið leikur þar á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Ísland dróst í D riðil, ásamt Argentínu, Króatíu og Nígeríu. Upphafsleikur mótsins verður leikinn 14. júní á Luzhniki-vellinum í Mosvku. Þar mæta gestgjafarnir Rússar liði Sádí Arabíu. Fyrsti…Lesa meira

true

Landsbyggðin komin í Strætóappið

Frá og með deginum í dag gefst farþegum Strætó kostur á að kaupa ferðir á landsbyggðinni í gegnum Strætóappið. Hægt er að sækja appið fyrir iPhone snjallsíma í App Store og fyrir Android snjallsíma í Google Play Store. Hingað til hafa fargjöld í Strætóappinu einungis verið gild innan höfuðborgarsvæðisins. Þessi breyting hefur í för með…Lesa meira

true

Útvarp Akranes komið í loftið

Það er orðinn fastur liður þegar aðventan gengur í garð á Akranesi að Sundfélag Akraness setji Útvarp Akraness í loftið. Það verður að þessu sinni dagana 1. – 3. desember, fyrstu helgina í aðventu. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta útvarpsdagskrá, efni fyrir alla aldurshópa bæði tónlist og viðtalsþætti sem snúa að daglegum málum…Lesa meira

true

Sótt um leyfi til opnunar apóteks á Akranesi

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi Lyfjastofnunar þar sem farið var fram á umsögn vegna útgáfu lyfsöluleyfis til Lyfja og heilsu vegna opnunar nýrrar lyfjaverslunar í verslana- og þjónustukjarnanum að Dalbraut 1. Lyf og heilsa er í eigu Karl Wernessonar og fjölskyldu hans og reka bæði Lyf og heilsu og Apótekarann.…Lesa meira

true

Samþykkt að ganga til viðræðna við Ragnar Frank um starf sviðsstjóra

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var samþykkt að ganga til viðræðna við Ragnar Frank Kristjánsson um að taka við stöðu sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs sveitarfélagsins. Átta sóttu um starfið og var ráðgjafi frá Intellecta sem stýrði viðtölum við þá tvo sem metnir voru hæfastir. Byggðarráð var samdóma í niðurstöðu sinni. Ragnar hefur um árabil…Lesa meira

true

Samþykkt að sameina hestamannafélögin Skugga og Faxa

Á aðalfundum í hestamannafélögunum Skugga í Borgarnesi og Faxa í Borgarfirði, sem haldnir voru samtímis í gærkvöldi, var samþykkt með yfirgnæfandi fjölda atkvæða að stofna nýtt hestamannafélag og leggja gömlu félögin niður. Hjá Faxa fór atkvæðagreiðsla um sameininguna þannig að 28 greiddu atkvæði með tillögu sameiningarnefndar og fimm voru á móti. Hjá Skugga fór atkvæðagreiðsla…Lesa meira

true

Snæfell hrifsaði til sín sigurinn

Snæfell vann góðan útisigur á liði FSu, 98-102, í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Selfyssingar höfðu undirtökin lungann úr leiknum en Snæfell náði forystunni í fjórða leikhluta og náði að hrifsa til sín sigurinn eftir æsispennandi lokamínútur. Heimamenn voru heldur sprækari í fyrsta leikhluta. Gott flæði var í sóknarleik þeirra og þeir höfðu…Lesa meira

true

Tók upp jólalag með blönduðum barna- og karlakór

Nýverið var gerð videóupptaka af nýju jólalagi eftir Valgerði Jónsdóttur tónlistarkonu af Akranesi. Lagið er samið við sálm eftir Brynju Einarsdóttur og nefnist Jólasálmur. Barnakór úr Grundaskóla og Karlakórinn Svanir sungu en um undirleik sáu þau Flosi Einarsson og Sigrún Þorbergsdóttir. Valgerður stjórnaði kórunum en Bergur Líndal Guðnason kvikmyndagerðarmaður tók upp. Nánar er rætt við…Lesa meira

true

Forseti Íslands sækir Dalina heim

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun fara í opinbera heimsókn í Dalabyggð ásamt föruneyti dagana 6. og 7. desember næstkomandi. Af því tilefni verður boðið til fjölskylduhátíðar í Dalabúð að kvöldi fimmtudagsins 7. desember. Á meðan ferð forseta um Dali stendur mun hann heimsækja bæði fyrirtæki og áhugaverða staði í Dalabyggð. Á vefnum budardalur.is er…Lesa meira

true

Ungmennafélagið Stjarnan stendur á tíræðu

Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Saurbæjarhreppi í Dölum laugardaginn 1. desember árið 1917. Félagið á því aldarafmæli næsta föstudag. Í tilefni þess ætla félagsmenn að halda upp á afmælið í Tjarnarlundi laugardaginn 2. desember næstkomandi kl. 20:00. Arnar Eysteinsson í Stórholti er formaður Umf. Stjörnunnar. „Ungmennafélagið býður öllum til kaffisamsætis í Tjarnarlundi í tilefni dagsins.…Lesa meira