Fréttir

true

Matur er menning okkar og saga

Það var hreint ekkert sjálfgefið að Íslendingar kæmust af hér á árum og öldum áður. Landið var harðbýlt og hér voru vetrarhörkur svo miklar að lífsnauðsynlegt var að birgja heimilin upp af forða ætti heimilisfólk að lifa veturinn af. Fyrir rafvæðinguna var frysting matar ekki kostur og því þurfti að geyma hann með þeim aðferðum…Lesa meira

true

Matarverkstæði brátt opnað í Borgarnesi

Unnið er að því að koma á fót aðstöðu fyrir fólk sem vill þróa vöru úr vestlensku hráefni. Ljómalind í Borgarnesi hefur tekið að sér skipulag og rekstur matarverkstæðis sem verður til húsa við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Stefnt er að opnum í næsta mánuði. Nánari upplýsingar um notkun og leyfisveitingar mun undirbúningshópur senda út…Lesa meira

true

Einstakt mannlíf á matarmörkuðum

Saga matarmarkaða nær langt aftur í tímann. Einn elsti matarmarkaður heims er Borough Market sem staðsettur er í miðbæ Lundúna. Hann hefur verið starfræktur í meira en þúsund ár. En þangað fóru íslenskir framleiðendur fyrir tveimur árum til að kynna, selja og segja frá sínum vörum. Þar á meðal voru tveir framleiðendur af Vesturlandi, Bjarteyjarsandur…Lesa meira

true

Jörðin skalf við jökulrönd

Tveir jarðskjálftar fundust við Langjökul í morgun kl. 10:06 og 11:08, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Fyrri skjálftinn mældist 2,8 á Richter en sá síðari 3,1. Upptök skjálftanna eru á þekktu skjálftasvæði sunnan Hafrafells skammt vestan við Langajökul. Smá skjálftahrina mældist á sama stað í nótt og eftirskjálftar hafa mælst í…Lesa meira

true

Nóg að gera hjá Starfsbraut FSN

Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga er rekin starfsbraut fyrir nemendur sem hafa verið í námsverum eða í sérdeildum grunnskóla eða haft aðlagað námsefni. Nemendahópurinn er fjölbreyttur á Starfsbrautinni og er allt nám einstaklingsmiðað. Á öðru ári námsins hefja nemendur starfsnám utan skóla og fer það fram innan veggja vinnustaðar sem nemandinn velur í samráði við kennara sinn.…Lesa meira

true

Sauðburður á Kambi í september

Alla jafnan er vorið tími sauðburðar til sveita, þegar grundirnar gróa og lömbin sér una um blómgaða bala. Haustið, aftur á móti, er sá tími þegar kindur og lömb eru sótt af fjalli eftir sumardvöl fram til heiða og upp til dala. Stöku sinnum kemur þó fyrir að einstaka ær fresti sauðburðinum fram á haustið.…Lesa meira

true

Tuttugu aðgerðir til eflingar ferðaþjónustu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamálaráðherra óskaði í sumar eftir tillögum Ferðamálaráðs um viðbrögð við þremur áskorunum sem íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir. Áskorarnirnar eru í fyrsta lagi möguleg misnotkun eða óeðlilegt samkeppnisforskot í heimagistingu, í öðru lagi möguleg ólögmæt starfsemi eða óeðlilegt samkeppnisforskot erlendra aðila og í þriðja lagi áhrif þess á ferðaþjónustu á…Lesa meira

true

Lúxushótel og jarðhitalón fyrirhugað á Snæfellsnesi

Til stendur er að reisa 150 herbergja lúxushótel í landi Eiðhúsa á sunnanverðu Snæfellsnesi. Við hótelið verður myndað eitt þúsund fermetra jarðhitalón sem er hannað eins og það sé frá náttúrunnar hendi. Að baki fyrirhugaðri framkvæmd stendur fyrirtækið Festir ehf., fasteignafélag Ólafs Ólafssonar, sem jafnan er kenndur við Samskip. Ólafur á hús og eignir að…Lesa meira

true

Einu lífrænt vottuðu verslanirnar á landinu

Verslunin Matarbúr Kaju var fyrst opnuð á Akranesi sumarið 2014 og í dag hefur kaffihús bæst við og önnur verslun verið opnuð í Reykjavík. Þetta eru einu verslanirnar á landinu sem hafa fengið lífræna vottun og fyrsta kaffihúsið. „Til að fá lífræna vottun þurfa allar vörurnar sem við seljum í lausu að vera ræktaðar og…Lesa meira

true

„Kjötborðið eitt það dýrmætasta sem verslunin hefur“

Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður hefur staðið vaktina í kjötborðinu í Verzlun Einars Ólafssonar á Akranesi undanfarin 19 ár. „Ég byrjaði hérna 1. mars 1998 og er því búinn að vera hér í 19 ár,“ segir Hafsteinn og brosir. Frá því hann stóð fyrstu vaktina í kjötborðinu í Einarsbúð hefur ýmislegt breyst í verslun í landshlutanum og…Lesa meira