Fréttir

true

Sigmundur Davíð hættur í Framsókn og vinnur að stofnun Samvinnuflokks

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum og tilkynnir á heimasíðu sinni að hann vinni ásamt öðrum að stofnun nýs flokks sem bjóða mun fram í kosningunum eftir fimm vikur. Þar með galopnast staðan fyrir Framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi sem koma saman á kjördæmaþingi í dag. Ljóst…Lesa meira

true

Söfnuðu yfir 80 milljónum

Í gær fór fram á RUV söfnunarþáttur til styrktar átakinu Á allra vörum, sem styður við rekstur og uppbyggingu Kvennaathvarfsins. Ríflega 80 milljónir króna söfnuðust, bæði með frjálsum framlögum og sölu á Á allra vörum, varasettum frá Benecos. „Við erum í skýjunum með árangurinn. Þetta þýðir að góður grundvöllur er nú fyrir byggingu húsnæðis þar…Lesa meira

true

Keppninni um kokk ársins lauk í gær

Klúbbur matreiðslumeistara stóð fyrir keppninni um Kokk ársins 2017 og fór úrslitakeppnin fram í Hörpunni í gær. Kokkur ársins er Hafsteinn Ólafsson matreiðslumaður á Sumac Grill + Drinks. Garðar Kári Garðarsson matreiðslumaður hjá Deplar Farm/Strikinu var í öðru sæti og Víðir Erlingsson matreiðslumaður hjá Bláa lóninu lenti í því þriðja. Keppnin fór fram fyrir fullum…Lesa meira

true

Breytinga að vænta á framboðslista Framsóknarflokks í NV kjördæmi

Á aukakjördæmaþingi Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í dag bar heldur betur til tíðinda. Fyrirfram var vitað að sótt yrði að oddvita listans, Gunnari Braga Sveinssyni. Óánægja er með störf hans hjá hluta flokksbundinna Framsóknarmanna, jafnvel í baklandi hans í heimahéraðinu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður, sem er hinn þingmaður flokksins í kjördæminu, tilkynnt…Lesa meira

true

Sjö þingmenn NV kjördæmis flytja frumvarp um vegagerð um Teigsskóg

Sjö af átta þingmönnum Norðvesturkjördæmis, allir utan Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur VG, munu á næsta fundi Alþingis leggja fram frumvarp þess efnis að veita Vegagerðinni leyfi til framkvæmda á leið Þ-H á Vestfjarðarvegi (60), sem liggur um Teigsskóg í vestanverðum Þorskafirði. Þrátt fyrir að vera ekki meðflutningsmaður er Lilja Rafney, samkvæmt heimildum Skessuhorns, engu að síður…Lesa meira

true

Akranes og Snæfellsbær mætast í Útsvari

Tvö vestlensk sveitarfélög senda þennan veturinn lið til þátttöku í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV. Það eru Akranes og Snæfellsbær og það vill einmitt þannig til að lið þeirra mætast í öðrum þætti vetrarins í kvöld, föstudag. Lið Akraness komst alla leið í úrslitaþáttinn síðasta vetur en varð að játa sig sigrað gegn sterku liði…Lesa meira

true

Búast má við hvassviðri á landinu á morgun

Veðurstofa Íslands bendir á að kröpp lægð kemur upp að landinu í fyrramálið.  Henni fylgir hlýtt loft og úrkoma. Hvassast verður á Suðausturlandi þar sem mun rigna mikið á morgun frá morgni til kvölds. Á Austfjörðum verður regnið mest frá hádegi og fram á kvöld. Í öðrum landshlutum getur rignt talsvert þegar hitaskilin ganga norðvestur…Lesa meira

true

Kallað eftir verkefnum á dagskrá fullveldisafmælis

Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands verður fagnað á næsta ári með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Opnuð hefur verið vefsíða afmælisársins á slóðinni www.fullveldi1918.is. Vefsíðan verður upplýsingasíða þar sem m.a. verður hægt að fylgjast með dagskrá afmælisársins og skrá verkefni á dagskrá afmælisársins. Á síðunni verður einnig að finna fróðleik um árið 1918 og fullveldishugtakið…Lesa meira

true

Borgfirskir briddsspilarar hefja vetrarstarfið

Næstkomandi mánudagskvöld klukkan 20:00 ætlar Briddsfélag Borgarfjarðar að hefja vetrarstarf sitt. Sem fyrr verður spilað í Félagsheimilinu Logalandi. Að sögn Ingimundar Jónssonar eru allir velkomnir og hvattir til þátttöku. Byrjað verður á léttum tvímenningi og býst Ingimundur við að hann verði spilaður öll mánudagskvöld og út október.  Lesa meira

true

Skagamenn fallnir

ÍA féll úr Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær þegar Fjölnir sigraði FH 2-1, þar sem sigurmarkið kom ekki fyrr en á lokamínútu leiksins. Fjölnir hafði 21 stig fyrir leikinn en ÍA 15. Til að halda sér í deildinni þurftu Skagamenn því að vinna í leikjunum tveimur sem eftir voru og jafnframt treysta á…Lesa meira