Fréttir

true

Aukafundur boðaður í kjördæmisráði VG

„Stjórn kjördæmisráðs Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi boðar til aukafundar vegna alþingiskosninga 28. október næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga, sunnudaginn 24. september klukkan 14. Á dagskrá fundarins er undirbúningur framboðs, kosning kjörnefndar, ákvörðun hvernig skuli staðið að vali á lista í Norðvesturkjördæmi og önnur mál,“ segir í tilkynningu. „Í 4. grein…Lesa meira

true

Tólf vilja rífa Sementsverksmiðjuna

Gríðarlega mikill munur, eða 819 milljónir króna, var á hæsta og lægsta tilboði sem barst í niðurrif bygginga og búnaðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Alls bárust tólf tilboð í verkið og voru þau opnuð í síðustu viku.   Tilboðin eru eftirfarandi, lægsta boð efst:   Work North ehf., 175.297 þús.kr. ABLTAK ehf., 274.790 þús. kr. Ellert…Lesa meira

true

Sporðskurðarvél 4fish stórbætir flökun

Unnsteinn Guðmundsson er stofnandi og annar starfsmaður fyrirtækisins 4fish ehf. í Grundarfirði, ásamt Mandy Nachbar eiginkonu sinni. Fyrirtækið var meðal þátttakenda á Íslensku sjávarútvegssýningunni sem fram fór í Kópavogi í síðustu viku. Þar kynnti Unnsteinn sporðskurðarvél 4fish fyrir áhugasömum útgerðarmönnum og fiskvinnslufólki. Vélina hannaði hann sjálfur og var hún notuð til reynslu í eitt ár…Lesa meira

true

Spennandi vetur framundan í Landnámssetrinu

Nú er menningarveturinn að hefjast og við byrjum hann á því að frumsýna nýja sýningu á Söguloftinu:  Auður djúpúðga – sagan öll. Það er hinn vinsæli rithöfundur Vilborg Davíðsdóttir sem hér stígur á stokk en hún lýkur í haust þríleik sínum um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögunni með sjálfstæðri bók um siglinguna…Lesa meira

true

Sjónhverfing dregur úr umferðarhraða á gangbraut

Nýstárlegri hraðahindrun hefur nú verið komið upp á Hafnarstræti á Ísafirði. Á fréttavef BB.is er greint frá þessu en þar segir að nýja gangbrautin minni á pappalöggurnar frægu sem stillt var upp á Reykjanesi um árið, sem að vísu vöktu takmarkaða lukku. Hraðahindrunin á Ísafirði er nokkurs konar sjónhverfing og hefur þann kost að geta…Lesa meira

true

Dr. Sæmundur Sveinsson skipaður í stöðu rektors LbhÍ

Að fenginni tillögu háskólaráðs Landbúnaðarháskóla Íslands hefur Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra skipað dr. Sæmund Sveinsson í stöðu rektors til eins árs frá og með 1. október nk. Tekur hann við starfinu af Dr. Birni Þorsteinssyni. Á árunum 2010 til 2014 var Sæmundur aðstoðarkennari við grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að…Lesa meira

true

Matarmenningu á Vesturlandi gerð skil í næstu viku

Með Skessuhorni í næstu viku fylgir veglegt sérblað um mat og matarmenningu. Það nefnist Matarauður Vesturlands. Áhersla verður lögð á að kynna viðburði og tilboð á veitingastöðum sem og matarmarkaði sem framundan eru í október á Vesturlandi. Auk þess eru ýmis viðtöl, greinar og efni sem tengjast mat. Verkefni þetta er samstarf Skessuhorns og verkefnisstjórnar…Lesa meira

true

Nýr Bárður SH verður stærsti trefjaplastbátur landsins

Pétur Pétursson, útgerðarmaður og skipstjóri á Arnarstapa skrifaði í síðustu viku undir samning við dönsku skipasmíðastöðnia Bredgaard Bådeværft um smíði á nýjum báti. Samningurinn var undirritaður á Íslensku sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Kópavogi. Nýi báturinn mun leysa af hólmi hinn fengsæla Bárð SH-81 sem Pétur hefur gert út síðan 2001. Pétur hóf útgerð frá…Lesa meira

true

Vesturgata malbikuð fyrir lok mánudags

Endurgerð Vesturgötu á Akranesi, milli Stillholts og Merkigerðis, hefur verið eitt stærsta verkefni Akraneskaupstaðar á árinu 2017. Vegna umfangs verksins var því skipt upp í tvo áfanga en er komið langt á leið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar.  Stefnt er að því að ljúka malbikun fyrsta áfanga næsta mánudag, 25.…Lesa meira

true

Samfylkingin í NV kjördæmi boðar til kjördæmisþings

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur boðar til kjördæmisþings laugardaginn 23. september kl. 12. Þar verður ákveðin aðferð við val á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Fundað verður á Stillholti 16-18 á Akranesi. „Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á kjördæmisþingið og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi alþingiskosninga,“ segir í tilkynningu sem…Lesa meira