
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM. Liðin mætast á Laugardalsvelli klukkan 18:15 í kvöld, en frítt er inn fyrir áhorfendur. Litlar breytingar eru á liðinu frá því á EM í Hollandi. Samkvæmt Uefa.com mun Ísland spila 4-3-3 í leiknum í dag en Elín Metta Jensen er fremst.Lesa meira








