Fréttir

true

Handverkshátíð í kvartöld í Eyjafjarðarsveit

Handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafirði hefur fyrir margt löngu skapað sér sess í hugum landsmanna sem vettvangur þar sem handverksfólk víðs vegar að af landinu kemur saman. Hátíðin fer fram um næstu helgi og er þema hennar að þessu sinni tré. „Við munum gera okkar ástkæra tré hátt undir höfði og höldum hátíð trésins. Sænski…Lesa meira

true

Heldur námskeiðið “Á dauðastundu”

Fullorðinsfræðsla sr. Þórhalls Heimissonar hefst á þessu hausti með námskeiði sem ber heitið „Á dauðastundu.“  Þar verður velt upp spurningunni sem fylgt hefur mannkyni frá örófi alda um hvað það er sem gerist þegar við deyjum. Er þá tilvistin á enda, eða heldur tilvistin áfram í einhverri mynd, og þá hverri? „Á námskeiðinu verður farið…Lesa meira

true

Æfðu notkun þyrlu við slökkvistarf í Skorradal

Áhöfnin á TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, æfði í síðustu viku slökkvistörf við Skorradalsvatn með svokallaðri slökkviskjólu (bambi bucket). Á æfingunni var líkt eftir hlutverki þyrlunnar samkvæmt áætlun Almannavarna vegna skógarelda í Skorradal. Alls var skjólan fyllt sex sinnum og vatninu úr henni sturtað úr á fyrirfram skilgreindum stað.Lesa meira

true

Höfði festir kaup á sérbúnum bíl

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfði á Akranesi festi nýverið kaup á nýjum bíl til farþegaflutninga. Bíllinn er af gerðinni Iveco Daily. Hann getur tekið níu farþega og verður notaður til fólksflutninga í bæjarfélaginu, en Höfði er m.a. með samning við sveitarfélagið um akstur fatlaðra. Að undangengnu útboði í febrúar var gengið frá kaupum á bílnum frá…Lesa meira

true

Tíunda Ólafsdalshátíðin verður á laugardaginn

Ólafsdalshátíð verður haldin í tíunda skipti í Ólafsdal í Gilsfirði laugardaginn 12. ágúst næstkomandi. Dagskráin er með fjölbreyttu sniði að vanda. Hún hefst á hádegi með gönguferð um minjastaði í Ólafsdal undir leiðsögn Birnu Lárusdóttur fornleifafræðings. Slegði verður upp markaði eftir hádegið þar sem selt verður m.a. lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti, ís frá Erpsstöðum og krækling…Lesa meira

true

Sóttu slasaða konu að Eldborg

Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út á laugardaginn vegna konu sem hafði slasast á fæti. Hún hafði verið á göngu við Eldborg á Snæfellsnesi og hrasað í hlíðum gígsins. Talsverðan tíma tók fyrir björgunarsveitir að komast á vettvang sökum fjarlægðar frá þjóðvegi, en björgunarsveitarmenn sem voru staddir nálægt komu fyrstir á vettvang og gátu hafið…Lesa meira

true

Eftir Versló – Sumartónleikar framundan á Akranesi

Dagarnir 10.-13. ágúst verða sannkallaðir tónlistardagar á Akranesi. Fimmtudaginn 10. ágúst mun Sigurður Flosason og Tríó Lars Jansson halda tónleika í Vinaminni kl. 20. Leikin verða lög af nýjum diski Sigurðar; „Green Moss Black Sand“. Á honum eru ellefu ný lög eftir Sigurð flutt af honum og tríói sænska píanóleikarans Lars Jansson.  Daninn Thomas Fonnesbæk…Lesa meira

true

Listahátíðin Plan B verður haldin um helgina

Blásið verður öðru sinni til listahátíðarinnar Plan B í Borgarnesi dagana 11.-13. ágúst næstkomandi. Skessuhorn ræddi við Sigríði Þóru Óðinsdóttur, eða Sigþóru eins og hún er oftast kölluð. Hún er myndlistarkona og einn af skipuleggjendum Plan B að þessu sinni. Sigþóra segir að hátíðin verði haldin eftir sama formi og á síðasta ári þegar hún…Lesa meira

true

Rúm hálf milljón safnaðist á uppboði

Blásið var til uppboðs á Seljanesi í Reykhólasveit síðdegis á laugardag í tengslum við byggðahátíðina Reykhóladaga. Var uppboðið haldið að frumkvæði Seljanesbræðra, líkt og á síðasta ári og rétt eins og í fyrra verður ágóði uppboðsins látinn renna til styrktar góðra málefna. Alls kyns varningur og þjónusta var boðin upp, allt frá verkfærum til snyrtivara.…Lesa meira

true

Margir fara til laugar

Mikil aðsókn hefur verið að sundlaugum Borgarbyggðar það sem af er sumri. Á hverjum degi sækja milli 500 og 600 manns laugina í Borgarnesi að því er fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar. Sundlaugina á Varmalandi sækja milli 200 og 300 gestir á degi hverjum yfir sumartímann, en nýverið voru gerðar á henni gagngerar endurbætur. Þá…Lesa meira