Fréttir

true

Víkingur mætir Íslandsmeisturunum í kvöld

Í kvöld fer fram leikur FH og Víkings Ólafsvíkur í Pepsideild karla í knattspyrnu. Leikið verður á Kaplakrikavelli og er leikurinn í raun í elleftu umferð þó að um sé að ræða tíunda leik Víkings. Tíunda umferð verður spiluð á sunnudag og mánudag en er þessi leikur fyrr sökum þess að FH leikur gegn færeyska…Lesa meira

true

Sveitamarkaðurinn á Breiðabliki um helgina

Sveitamarkaðurinn á Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi fagnar nú tíu ára afmæli. Markaðurinn verður að þessu sinni haldinn afmælishelgina 8.-9. júlí frá klukkan 12-18 í félagsheimilinu Breiðabliki. Markaðurinn varð vinsæll viðburður strax frá upphafi. Það voru konur á Snæfellsnesi sem höfðu mikinn áhuga fyrir að koma heimaframleiðslu sinni á framfæri og stofnuðu markaðinn sem síðan…Lesa meira

true

Valdís mun spila á velli í eigu Trump forseta

Á fimmtudaginn í næstu viku mun atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir frá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefja þátttöku í Opna bandaríska meistaramótinu, fyrst íslenskra golfspilara. Á þessu móti er í boði hæsta verðlaunafé í Bandaríkjunum og spilað á golfvelli í eigu Donald Trump bandaríkjaforseta, en völlurinn heitir Trump National Golf Club, Bedminster. Völlurinn hefur fjórum sinnum…Lesa meira

true

Borgarbyggð mótmælir fyrirhugaðri gjaldtöku við Hraunfossa

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samhljóða bókun á fundi sínum í gær þar sem mótmælt er fyrirætlun landeigenda Hraunsáss II í Hálsasveit um að hefja innheimtu bílastæðagjalda við Hraunfossa. Þar segir m.a.: „Fram hefur komið að fyrrgreindar fyrirætlanir um gjaldtöku eru settar fram án samráðs og samskipta og í andstöðu við Umhverfisstofnun, Vegagerðina, hinn landeigenda svæðisins, rekstraraðila…Lesa meira

true

Forsetinn hrósar Skagamönnum fyrir Norðurálsmótið

Norðurálsmótið í knattspyrnu fór fram helgina 23.-25. júní sl. og þótti heppnast mjög vel. Mótið er fyrir drengi á aldrinum sex til átta ára og í ár voru um 1600 keppendur, í 180 liðum frá 31 félagi. Mikill fjöldi foreldra, ættingja og annarra gesta heimsóttu Akranes þessa helgi en einn gestur vakti meiri athygli en…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í boði á Hvanneyrarhátíð

Hvanneyrarhátíðin verður haldin á morgun, laugardaginn 8. júlí, frá klukkan 13:30 til 17. Þennan dag taka heimamenn vel á móti gestum og gangandi með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Upphaf hátíðarinnar má rekja til Safnadagsins sem Landbúnaðarsafn Íslands tók þátt í og bauð þá velunnurum sem og gömlum nemendum að koma á Hvanneyri og kíkja…Lesa meira

true

Breyta skipulagi Skógarhverfis

Bæjarráð Akranesbæjar samþykkti á fundi sínum 29. júní breytingar á deiliskipulagi fyrsta og annars áfanga Skógarhverfis. Breytingarnar í fyrsta áfanga felast í hæð húsa sunnan Asparskóga. Þar verður aðallega gert ráð fyrir tveggja hæða húsum án bílageymsla í stað þriggja hæða með bílageymslum. Hins vegar er skipulagssvæðið stækkað sem nemur einni lóðaröð norðan Asparskóga með…Lesa meira

true

Aldrei meiri umferð í júní

Umferð um Hvalfjarðargöng í júní jókst um rúmlega 11% frá sama mánuði í fyrra. Er það langmesta umferð í júnímánuði frá opnun ganganna árið 1998, en tæplega 8.900 ökutæki óku að jafnaði um göngin á sólarhring. Á heimasíðu Spalar er greint frá því að umferðarmet hafi verið slegið í öllum mánuðum það sem af er…Lesa meira

true

Valdís Þóra fyrst íslenskra kylfinga á Opna bandaríska

Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur Golfklúbbsins Leynis er kominn inn á Opna bandaríska mótið sem er eitt fimm risamóta í kvennagolfinu og það golfmót kvenna þar sem verðlaunafé er hæst, eða hálfur milljarður króna alls. Valdís Þóra er sem stendur á Tælandi þar sem hún var að keppa en heldur nú til Bandaríkjanna til að taka…Lesa meira

true

Makrílveiðar hafnar austan við land

Makrílveiðar nokkurra uppsjávarveiðiskipa eru nú hafnar og fara vel af stað. Í veiðunum taka meðal annarra þátt Venus NS og Víkingur AK, nýju skip HB Granda, en auk þess Huginn VE. Stóru skipin eru flest enn á kolmunnaveiðum. Makríllinn heldur sig austan við landið. Venus var í gær á Papagrunni en Víkingur var þá að…Lesa meira