Fréttir

true

Víkingar unnu frækinn sigur á FH

Víkingur Ó. vann frækinn sigur á Íslandsmeisturum FH þegar liðin mættust í Kaplakrika í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Nokkuð jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en leikurinn nokkuð bragðdaufur. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér ákjósanleg marktækifæri og fyrir vikið var markalaust þegar flautað var til hálfleiks. En það átti eftir að breytast. Síðari hálfleikur…Lesa meira

true

Jarðareigandi sýknaður af kröfu um greiðslu fjallskila

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað eiganda jarðarinnar Sólheimatungu í Stafholtstungum í Borgarfirði af kröfu sem sveitarfélagið Borgarbyggð höfðaði til greiðslu ógreidds fjallskilagjalds. Í málinu var þess krafist að stefnda verði gert að greiða fjallskilagjald vegna jarðarinnar fyrir árin 2012 til 2014, sem lagt hafi verið á hann samkvæmt heimild í lögum um afréttarmálefni, fjallskil og fleira.…Lesa meira

true

Grundfirskar kvenfélagskonur gáfu stórgjöf á Landspítalann

Föstudaginn 7. júlí síðastliðinn afhentu kvenfélagskonurnar Sólrún Guðjónsdóttir og Mjöll Guðjónsdóttir, formaður Gleym mér ei í Grundarfirði, krabbameinsdeild Landspítala háskólasjúkrahúss veglega gjöf. Gjöfin samanstendur af fjórum 32 tommu sjónvarpstækjum sem sett verða á tveggja manna stofur á deildinni og tveimur 50 tommu tækjum sem fara á eins manns stofur. Kvenfélagið færði deildinni auk þess veggfestingar…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Grindhvalir í sjálfheldu við Rif

Grindhvalavaða með um 100 hvölum, sem fyrr í dag var stuggað frá fjörunni við Ólafsvík, er nú komin að landi rétt austan við Rif, nánast við hafnargarðinn. Hvalirnir eru ráðvilltir og sækja fast í land. Einhverjir þeirra eru samkvæmt lýsingu sjónarvotta særðir. Verið er að reyna að stugga hölunum til hafs á ný á björgunarbát…Lesa meira

true

Grindhvölum stuggað frá landi

Um hundrað grindhvalir gerðu sig líklega til að synda á land við Bug, austan við Ólafsvík um nónbil í dag. Þá höfðu þeir verið á svæðinu frá því í morgun. Gúmmíbátur frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu var fenginn á svæðið og náðu skipverjar á honum að stugga við hvölunum þannig að þeir syntu til hafs, áleiðis út…Lesa meira

true

Hvalavaða við Bug á Snæfellsnesi

Áætlað er að um hundrað hvalir séu í einhvers konar sjálfheldu við Bug, austan við Ólafsvík á Snæfellsnesi. Fólk á vettvangi telur líklegt að hér séu grindhvalir á ferð. Von er á slöngubáti frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu og á að freista þess að stugga hvölunum frá landi. Fjöldi fólks fylgist með vöðunni úr landi.Lesa meira

true

Nafn konunnar sem lést í hlíðum Kirkjufells

Fréttavefurinn mbl.is hefur greint frá nafni konunnar sem hrapaði til bana í fjallgöngu í Kirkjufelli við Grundarfjörð síðastliðinn föstudag. Konan hét Agata Bornikowski, fædd árið 1974 í Póllandi. Hún var á ferðalagi hér á landi ásamt eiginmanni og öðru pari. Slysstaðurinn er í sunnanverðum hlíðum Kirkjufells en áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar náði að hífa konuna upp…Lesa meira

true

Varðeldur hluti af skógarlífinu á Húsafelli

Í áratugi hefur það verið fastur liður í starfsemi Ferðaþjónustunnar á Húsafelli að kveikja varðeld klukkan 21 á laugardagskvöldum á sumrin. Þangað streymir fólk af tjaldstæðunum og úr sumarhúsunum og nýtur útiverunnar; hlustar á trúbador og syngur með, en börnin steikja sykurpúða yfir grilli. Í gær spilaði á gítar og söng Orri Sveinn Jónsson trúbador…Lesa meira

true

Björgunarsveitir kallaðar út vegna slyss við Kirkjufell – Uppfærð frétt.

Nú fyrir stundu voru björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðar út vegna slasaðrar konu við Kirkjufell á norðanverðu Snæfellsnesi. Björgunarsveitir af Vesturlandi eru komnar á slysstað ásamt sérhæfðum fjallabjörgunarmönnum. Búið er að hífa hina slösuðu í þyrlu Landhelgisgæslunnar og er hún á leiðinni til Reykjavíkur. Aðgerðir við Kirkjufell eru enn í gangi, en verið er að aðstoða…Lesa meira

true

Hundspakur Þjóðgarðsrefur vanur fyrirsætustörfum

Þessi sællegi refur varð nýverið á vegi blaðamanns Skessuhorns á ferð um Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Venjulega eru refir lítið fyrir að spóka sig í návist fólks, en þessum var alveg sama þótt bíl væri lagt í vegarkanti við hlið hans, rúðan skrúfuð niður og myndir teknar í gríð og erg. Líklega er hann meðvitaður um að…Lesa meira