Fréttir

true

Ætla síðar í þessum mánuði að leita að flaki SS Wigry

Freista á þess í sumar að finna flak pólska flutningaskipsins SS Wigry sem fórst í aftakaveðri nærri Mýrum fyrir 75 árum síðan. Af 27 manna áhöfn lifðu aðeins tveir af; einn Íslendingur og einn Pólverji. Í maílok var afhjúpaður minnisvarði um skipið í fjörunni við Syðra Skógarnes og minningarsýningin „Minningin lifir“ opnuð í Sjóminjasafninu í…Lesa meira

true

Komast Skagamenn í undanúrslit í fyrsta sinn í fjórtán ár?

Skagamenn mæta fyrstudeildar liði Leiknis Reykjavík í Breiðholti klukkan 19:15 í kvöld en um er að ræða leik í átta liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn er síðasti leikur umferðarinnar en Stjarnan, FH og ÍBV hafa öll tryggt sér sæti í undanúrslitum. Skagamenn unnu Gróttu í 16-liða úrslitum og náðu þar með sínum besta árangri í bikarkeppninni…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn gerðu það gott á Norðurlandamóti

Norðurlandamót yngri landsliða í körfuknattleik fór fram í Finnlandi í síðustu viku. Þar kepptu U16 og U18 ára landslið Íslands í drengja og stúlknaflokkum. Fulltrúar Íslands áttu gott mót ytra, drengirnir í U16 sneru heim með silfurverðlaun í farteskinu og stúlkurnar í U16 nældu í bronsið. Stúlkurnar í U18 höfnuðu í 4. sæti og drengirnir…Lesa meira

true

Stórhveli vestan við Akranes

Hópur stórhvala hefur haldið sig á sundunum nokkrar mílur vestan við Akranes í morgun. Hægt er með góðum sjónauka eða aðdráttarlinsu að fylgjast með hvölunum úr landi. Sjást ýmist svartir skrokkar þeirra eða hvítir belgir. Ekki er hægt að greina á myndum hvaða tegund hvala er hér á ferð, en líklegt að það sé langreyður,…Lesa meira

true

Draumurinn að hjóla í ísgöngunum í Langjökli

Ryder Hesjedal er einn þekktasti hjólreiðamaður heims. Meðal annars er hann sigurvegari Giro D’Italia 2012. Kappinn kom til Íslands í síðustu viku og mun verða hér á landi í rúma viku. Í ferðinni dvelur hann m.a.  á Hótel Húsafelli. Ástæðan fyrir komu hans til landsins er þátttaka í KIA Gullhringnum sem hjólaður verður frá Laugarvatni…Lesa meira

true

Alls tóku 150 þátt í Jökulmílu og tengdum keppnisgreinum

Laugardaginn 1. júlí var hjólreiðakeppnin Jökulmílan haldin á Snæfellsnesi. Samtals var um sex hjólaviðburði að ræða og voru tæplega 130 hjólreiðamenn skráðir til leiks, auk 20 keppenda í Mílusprettinum. Einmunablíða var á laugardaginn og nýttu því margir hjólarar lognið og meðvindinn til að bæta skráða tíma. Í Íslandsmeistaramóti í flokki kvenna sigraði Erla Sigurlaug Sigurðardóttir…Lesa meira

true

Sundlaugin á Varmalandi opnuð á nýjan leik

Sundlaugin á Varmalandi hefur nú verið opnuð fyrir almenning á nýjan leik eftir endurbætur sem þar voru gerðar. Skipt var um dúk á lauginni og öryggismyndavélar settar upp. Á. Óskarsson sá um verkið, Vatnsverk ehf. sá um lagnavinnu en Pétur Oddsson og Guðjón Guðlaugsson sáu um smíðavinnuna. Laugin er nú opin fyrir gesti alla daga…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins lagðist að bryggju í Grundarfirði síðastliðin fimmtudag. Þar var á ferðinni franska skipið Le Soleal sem var smíðað árið 2012 og fór í jómfrúarferð sína árið eftir. Skipið tekur 264 farþega og er með 139 í áhöfn. Flestir farþeganna stigu beint upp í rútu og fóru í skipulagðar ferðir um Snæfellsnesið en…Lesa meira

true

Séra Hjálmar tekur tímabundið við Staðastaðarprestakalli

Á fréttaveitunni Dreifaranum á sunnanverðu Snæfellsnesi var greint frá því í gær að biskup Íslands hafi tekið ákvörðun um að færa séra Pál Ágúst Ólafsson sóknarprest í Staðastaðarprestakalli til í starfi. Séra Páll mun nú þjóna sem héraðsprestur í Vesturlandsprófastsdæmi frá 1. júlí, eða frá deginum í gær, og láta af starfi sóknarprests í Staðastaðarprestakalli.…Lesa meira

true

Trymbill frá Stóra-Ási efstur í úrslitum A flokks

Fjörðungsmóti hestamanna er nú lokið í Borgarnesi en mótið hefur staðið yfir frá því á miðvikudaginn. Hápunktur mótsins, líkt og á stórmótum í hestaheiminum, var þegar alhliða gæðingum var riðið til úrslita í A flokki. Þar kom, sá og sigraði stóðhesturinn Trymbill frá Stóra-Ási sem Mette Mannseth sýndi. Trymbill er i eigu Mette og Gísla…Lesa meira