Fréttir

true

Embættismenn bregða fæti fyrir sjóstangveiðifélögin

Fiskistofa hefur synjað Sjóstangveiðifélaginu Skipaskaga (Sjóskip) og sjö öðrum sjóstangveiðifélögum innan Landssambands sjóstangveiðifélaga hér á landi veiðiheimildum og þar með leyfi til að halda sjóstangveiðimót á þessu ári. Einungis eitt félag sjóstangveiðimanna í Vestmannaeyjum hefur fengið afturkallaða synjun og þar með leyfi til mótshalds á þessu ári, en heimildin varð til í tengslum við sáttatilraun…Lesa meira

true

Reykhólahreppur fagnar þrjátíu ára afmæli í næstu viku

Flestir tengja 4. júlí við sjálfstæðisdag Bandaríkjanna en dagurinn er einnig merkilegur fyrir Reykhólahrepp þar sem sveitarfélagið varð til á þeim degi. 4. júlí árið 1987. Þá voru sameinuð sveitarfélögin Geiradalshreppur, Gufudalshreppur, Reykhólahreppur, Múlahreppur og Flateyjarhreppur. Í ár ber afmælið upp á þriðjudaginn í næstu viku og ætla íbúar í hreppnum að gera sér glaðan…Lesa meira

true

Hvalur hf. dæmdur til greiðslu vangoldinna launa

Héraðsdómur Vesturlands hefur kveðið upp dóm í máli sem Verkalýðsfélag Akraness höfðaði gegn Hvali hf. vegna starfsmanns í hvalskurði. Krafan sem dómurinn samþykkti laut að sérstakri greiðslu sem getið er um í ráðningarsamningi starfsmanna, en dómurinn féllst á að Hvalur skyldi greiða umræddum starfsmanni 455.056 krónur ásamt dráttarvöxtum frá 19. janúar 2016. Hvalur hf. var…Lesa meira

true

Bláfáninn dreginn í fimmta sinn að húni við Langasand

Í morgun var Bláfáninn 2017 dreginn að húni við Langasand á Akranesi. Þetta er fimmta árið í röð sem Langisandur fær viðurkenningu Bláfánans en hann er alþjóðlegt umhverfismerki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Bláfánann hljóta þeir einir sem leggja sig fram um að bæta gæði og þjónustu stranda…Lesa meira

true

Aftanákeyrsla við Rif

Jeppa var ekið aftan á fólksbíl við neðri afleggjarann að Rifi á Snæfellnesi um hádegisbil í dag. Þrennt var flutt til læknisskoðunar á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Lítið sá á jeppanum en fólksbíllinn var óökufær og fluttur burt á palli.Lesa meira

true

Skagakonur sigruðu í Vesturlandsslagnum

Í gær var leikið í áttundu umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu. Á Akranesvelli mættust Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur Ólafsvík en bæði hafa þau átt í vandræðum með stigasöfnun það sem af er sumri. Víkingur var fyrir leikinn í næstneðsta sæti með fjögur stig og ÍA í áttunda með sjö stig. Leikur gærdagsins var hin…Lesa meira

true

Belgískur þríþrautarkappi í 666 Challange á Vesturlandi

Arnaud de Meester er belgískur ofuríþróttamaður sem nú er staddur hér á landi. Hann hóf í morgun þríþraut sem er harla óvenjuleg og kallar hana 666-Challange. Þar mun hann synda sex kílómetra, hjóla sexhundruð kílómetra og endar síðan á 60 kílómetra hlaupi. Allar þessar þrautir ætlar hann að yfirvinna á Vesturlandi og ætlar til þess…Lesa meira

true

Álagningarseðlar nú sýnilegir á skattur.is

Nú geta framteljendur nálgast álagningarseðla skatts á þjónustuvefnum skattur.is. Seðlar verða síðan bornir út með landpósti til þeirra sem ekki afþökkuðu þá á pappír. „Með örfáum undantekningum verða inneignir lagðar inn á bankareikninga föstudaginn 30. júní. Engar ávísanir verða sendar út og þurfa þeir sem ekki hafa tilkynnt um bankareikning því að sækja inneignir sínar…Lesa meira

true

Taka vatnasvæði Lýsu á leigu

„Það er okkur mikill heiður og sönn ánægja að fá í sölu Vatnsvæði Lýsu á Snæfellsnesi en þessi fallega perla er frábær silungsveiðikostur og í bestu árum hafa veiðst hátt í 200 laxar á sumri,“ segja þau Stefán Sigurðsson og Harpa Þórðardóttir sem hafa nú tekið Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi á leigu í sumar. „Veiði…Lesa meira

true

Ver í kvöld meistararitgerð sína í hestafræði við LbhÍ

Í kvöld, miðvikudaginn 28. júní, ver Gunnar Reynisson meistararitgerð sína, „Analysis of movement in tölt and pace in the Icelandic horse“ [Hreyfigreiningar á tölti og skeiði í íslenska hestinum]. Þetta er meistaraverkefni í hestafræði frá Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Leiðbeinendur eru Dr. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþyngs ytra, og Dr. Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar. Prófdómari…Lesa meira